Reynslumikill flugmaður við stjórnina Samúel Karl Ólason skrifar 3. nóvember 2026 19:33 Adam Robinson, Helen Sharp og tvö ung börn þeirra voru á leið til Bahamaeyja með vinafólki og barnfóstru þegar flugvélin brotlenti. Flugvélinni sem brotlenti í Palm Beach í Bandaríkjunum á dögunum var flogið af mjög reynslumiklum flugmanni. Allir níu sem voru um borð í flugvélinni létu lífið þegar hún hrapaði skyndilega til jarðar í íbúðarhverfi en enginn lést á jörðu niðri. Tvö ung börn voru um borð í flugvélinni, ásamt foreldrum þeirra og barnfóstru.
Flugstjórinn hefur verið nafngreindur sem Jeff Gregory. Hann var 55 ára gamall, þriggja barna faðir frá Philadelphia. Hann og hin tvítuga Nathalia Filgueiras, aðstoðarflugmaðurinn, voru að fljúga þeim Adam Robinson, Helen Sharp og tveimur ungum börnum þeirra, Emmu (fjögurra ára) og Charlie (tveggja ára), frá Texas til Bahamaeyja þegar flugvélin brotlenti. Vinapar þeirra, þau Rachael Reed og Charmi Fehr, voru einnig um borð og barnfóstra sem hét Anita Maria Cetina. Tildrög slyssins eru til rannsóknar en skömmu áður en hún lýsti yfir neyðarástandi hafði Filgueriras sagt flugumferðarstjóra að þau hefðu lent í ókyrrð og að ísing væri að myndast á flugvélinni. Þau þyrftu að hækka flugið úr 35 þúsund fetum í 37 þúsund fet. Stjúpfaðir Filgueiras sagði í samtali við New York Post að um tíu mínútum fyrir slysið hafi hún sent kærasta sínum skilaboð um að hún væri að fljúga í ókyrrð og að glíma við ísingu. Þá var Gregory að fljúga flugvélinni en AP-fréttaveitan segir hann hafa haft mikla reynslu af flugi og hafa verið menntaðan flugkennara. Upptökur af samskiptum Filgueiras við flugumferðarstjóra þegar flugvélin var að hrapa til jarðar hafa verið birtar á netinu. Þar má í bakgrunni heyra mann biðja til guðs þegar Filgueriras segir að þau muni brotlenda. Vinir hans eru sannfærðir um að það hafi verið Gregory, sem ku hafa verið mjög trúrækinn maður. Á upptökunni heyrðist Filgueiras segja að þau myndu brotlenda og deyja en þau væru að reyna að beygja flugvélinni. Það síðasta sem hún sagði var að tíminn væri á þrotum. Talsmaður rannsóknarnefndar samgönguslysa vestanhafs sagði í gær að veðrið væri stór liður í rannsókninni á slysinu. Hann sagði von á bráðabirgðaskýrslu eftir um mánuð en rannsóknin myndi líklega taka meira en ár.
Bandaríkin Flug Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fleiri fréttir Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Sjá meira