Erlent

Rússar gerðu á­rás á sjúkra­hús í Kharkív

Smári Jökull Jónsson skrifar
Sprengjur Rússa lentu á gangi sem tengir saman byggingar sjúkrahússins.
Sprengjur Rússa lentu á gangi sem tengir saman byggingar sjúkrahússins. Ríkissaksóknari Úkraínu

Að minnsta kosti 73 eru særðir eftir árás Rússa á sjúkrahús í Kharkív í nótt. Flytja þurfti yfir tvö hundruð sjúklinga á önnur sjúkrahús en samkvæmt ríkissaksóknara Úkraínu var árásin gerð á gang sem tengir saman byggingar sjúkrahússins.

Samkvæmt frétt miðilsins Pravda urðu skemmdir á ytra byrði hússins sem og innviðum. Einnig skemmdist rannsóknarstofa á sjúkrahúsinu og þá brotnuðu yfir þúsund rúður í sjúkrahúsbyggingunni og tíu íbúðabyggingum í nágrenninu.

Upphaflega var sagt að tuttugu og fimm hefðu slasast í árásunum en síðan var sú tala uppfærð í sextíu og tvo slasaða. Flytja þurfti 226 sjúklinga á önnur sjúkrahús en lögreglumenn telja að um FAB-250 sprengjur hafi verið að ræða útbúnar með UMPK-5R stýribúnaði.

Brot úr sprengju frá árásinni á sjúkrahúsið í nótt.Ríkissaksóknaraembætti Úkraínu

Þá hafa Rússar greint frá því að stórfelld árás hafi verið gerð á orkuinnviði í Úkraínu í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá flugher Úkraínu gerðu Rússar drónaárás en óljóst er hversu margir drónar voru sendir á loft. Orkufyrirtækið DTEK hefur greint frá því að gripið hafi verið til neyðarráðstafana og rafmagn tekið af á ákveðnum svæðum í Kænugarði og Dnipropetrovsk.

Í gær var greint frá árás Rússa á bæinn Komyshuvakha í Sapórísja en fyrstu sprengjurnar féllu þegar íbúar bæjarins komu saman í skólanum, eins og þeir gera reglulega samkvæmt Selenskí forseta, til að fá mat.

Fleiri sprengjum var varpað og drónaárásir gerðar í kjölfarið og sagði Selenskí að þeim hefði í einhverjum tilfellum verið miðað á byrgi þar sem fólk hafði leitað sér skjóls. Samkvæmt úkraínskum viðbragðsaðilum létust að minnsta kosti 20 í árásunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×