Þorsteinn hættur hjá Deloitte þrátt fyrir sýknu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 09:17 Þorsteinn Pétur hættir sem forstjóri Deloitte. Þorsteinn Pétur Guðjónsson og stjórn Deloitte hafa komist að samkomulagi um að hann láti af störfum sem forstjóri félagsins. Hann var fyrir skömmu sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Deloitte. Signý Magnúsdóttir mun gegna stöðu forstjóra tímabundið á meðan unnið er að ráðningu nýs forstjóra. Vísir greindi frá því að Þorsteinn var ákærður fyrir kynferðisbrot og honum gefið að sök að hafa veist að ungri konu á hóteli á Suðurlandi vorið 2023. Hann lýsti yfir sakleysi sínu. Um miðjan febrúar féll dómur í málinu og var Þorsteinn alfarið sýknaður af ákærunni. „Að undangengnu samtali Þorsteins og stjórnar hefur verið ákveðið að leiðir skilji og að Deloitte á Íslandi haldi áfram vegferð sinni undir nýrri forystu. Stjórn þakkar Þorsteini kærlega fyrir hans framlag til félagsins í gegnum árin og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni,” er haft eftir stjórn Deloitte í tilkynninguni. „Eftir að hafa stigið til hliðar vegna dómsmáls sem lauk með fullri sýknu hef ég nýtt tímann til að staldra við og meta næstu skref. Ég hef starfað hjá Deloitte í 26 ár sem er langur tími hjá einu og sama fyrirtæki. Eftir að hafa rætt stöðu mála við mína nánustu fjölskyldu, vini og stjórn Deloitte töldum við rétt að leiðir skildu á þessum tímapunkti,” er haft eftir Þorsteini.
Vistaskipti Mest lesið Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Innlent „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Fleiri fréttir Sóknarnefnd ræður úrslitum um örlög regnbogafánans Skúli fagnar með „sannleikann að vopni“ Samherji og Guðrún Karls berjast saman gegn fíknidjöflinum Ástarsvik sífellt algengari og rannsókn lokið í Eyjum Eftirlitsmenn Strætó báðu um að fá að klæðast stunguvestum Fórnuðu gúmmístígvélunum við að slökkva sinueld á Ströndum Ekki auðvelt að skrifa grein sem þessa Ómálefnalegir dónar fara í skammarkrókinn „Ég er ekki búinn að afskrifa hana“ „Maður vill trúa kúnnunum sínum“ Hætta rannsókn á andláti á Hraunbúðum „Fær þessar fréttir og við förum að gráta og allt ömurlegt“ „Þetta kemur okkur mjög á óvart“ Segir ótímabært að ræða undanþágur Þrír í haldi vegna fjárkúgunar og ótímabærar undanþágur Þrír handteknir vegna slagsmála Kölluð út um helgina vegna barns sem læstist inni á salerni Leifturhröð viðbrögð björgunarsveitar dugðu ekki til Frestun á frestun ofan í martraðarheimferð frá Gautaborg Atli Steinn biðst auðmjúkur afsökunar Foreldrar velta fyrir sér „innivistartíma barna“ Tuttugu verðandi mæður geti ekki fætt nærri heimili sínu Sæti í almyrkvaflugi falt fyrir hundruð þúsunda króna Maðurinn leitaði ítrekað hjálpar án viðbragða lögreglu Ráðist á mann fyrir utan skemmtistað í nótt Fjárkúgun, nýjasti ráðherrann og loks sól í Reykjavík Hnífstunguárás sem var framin í nótt á borði rannsóknardeildar Sá sem féll í Ölfusá er látinn Gréta María og Hrund til liðs við Sjá Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá boðin út Sjá meira