Breytum menningu og eflum menntakerfið okkar – vitundarvakning meðal foreldra Sigurður Sigurðsson skrifar 26. febrúar 2026 15:30 Heimili og skóli – landssamtök foreldra hafa starfað ötullega að málefnum barna og foreldra um árabil. Á undanförnum árum hafa orðið miklar samfélagsbreytingar sem hafa haft veruleg áhrif á börn, foreldra og skólasamfélagið í heild. Verkefni samtakanna hafa þróast í takt við þessar breytingar og sífellt verið aðlöguð að nýjum áskorunum. Þegar netið breytti öllu Eitt af fyrstu stóru verkefnunum á þessu tímabili var netöryggisfræðsla í 6. bekkjum grunnskóla. Þá heyrðist sú gagnrýni að mögulega væri verið að fara of snemma inn í skólana með fræðslu um ábyrga nethegðun og að slíkt ætti ekki erindi við nemendur á miðstigi. Afstaða okkar var skýr. Best væri að börn lærðu um kosti netsins og hvað bæri að varast áður en þau fengju tækin í hendurnar. Á örfáum árum urði hins vegar dramatískar breytingar. Við fórum úr því að þurfa að útskýra einföldustu atriði fyrir miðstigsnemendum yfir í það að langflest börn voru orðin vön notkun snjalltækja og komin með eigin síma. Dæmið hafði snúist við. Í stað þess að vera of snemma á ferðinni reyndist fræðslan víða koma of seint. Ábyrgðin liggur hjá okkur Til að bregðast við þessari þróun var ráðist í margvíslegar aðgerðir. Skólar fengu leiðbeiningar um hvernig koma mætti á skilvirku símafríi, en fyrst og fremst var lögð aukin áhersla á hlutverk foreldra. Það eru foreldrar sem bera ábyrgð á notkun barnanna á snjalltækjum – við afhendum tækin og stofnum jafnvel aðganga að forritum sem börn eiga ekki erindi inn á. Ljóst er að bakslag varð í netöryggismálum barna um tíma. Nú er, sem betur fer, að verða vitundarvakning meðal foreldra. Foreldrar hittast, ræða málin og vinna saman að því að snúa þróuninni við. Stjórnvöld hafa einnig stigið inn í umræðuna með tillögum um ný viðmið og símafrí í skólum. Þegar rýnt var í rót vandans kom fljótt í ljós að hann tengdist skorti á samstarfi. Samstarfi foreldra sín á milli og samstarfi skóla og foreldra. Of lengi höfðum við unnið hvert í sínu horni. Farsældarsáttmálinn – Mikilvægt verkfæri í valdeflingu foreldra Úr þessari greiningu varð Farsældarsáttmálinn til ásamt vinnustofu sem boðin er foreldrum. Sáttmálinn hefur nú þegar verið innleiddur í meira en 100 grunnskóla á Íslandi, en betur má ef duga skal. Vinnustofan er aðgengileg fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla og er stefnum við á að efla innleiðingu í leik- og framhaldsskólum á næstu misserum. Farsældarsáttmálinn er verkfæri sem hvetur foreldra til að koma saman og ræða sameiginleg gildi og viðmið fyrir börnin okkar. Úr verður verðmætt samtal sem foreldrar, börn og skólasamfélagið býr að til framtíðar. Árangurinn lætur ekki á sér standa. Það eitt að foreldrar komi saman og komi sér saman um gildi og viðmið um uppeldi barna sinna hefur haft jákvæð og mælanleg áhrif. Sögur hafa borist víðsvegar af landinu um breyttan anda í skólasamfélögum. Kennarar hafa greint frá því að þeir fái meira svigrúm til kennslu í stað þess að verja óhóflegum tíma í agastjórnun og úrlausn árekstra. Vinsældir Farsældarsáttmálans hafa farið fram úr björtustu vonum. Eftirspurnin er orðin svo mikil að erfitt hefur reynst að anna henni. Starfsfólk Heimilis og skóla hefur verið á ferð um land allt, kvöld eftir kvöld, við að leiða foreldra í gegnum sáttmálann og ræða brýn málefni, ekki síst netöryggi og samskipti. Foreldrar eru lykillinn að sterkara menntakerfi Starf samtakanna hefur haft raunveruleg og jákvæð áhrif á íslenskt samfélag og sérstaklega börnin okkar. Unnið er að umfangsmiklum og kostnaðarsömum verkefnum sem miða að því að efla menntun og vellíðan barna. Hingað til hefur starfsemin notið dyggs stuðnings mennta- og barnamálaráðuneytisins auk framlaga félagsmanna. Verkefnið er skýrt. Að styrkja foreldra sem lykilaðila í menntakerfinu og stuðla að jákvæðri menningu sem styður við nám og líðan barna. Rannsóknir og reynsla sýna að foreldrar eru einn mikilvægasti hlekkurinn í því að efla menntakerfið. Þegar foreldrar vinna saman næst árangur. Mikilvægt er að halda þessu starfi áfram svo tryggja megi að börn fái tækifæri til að þroska og nýta hæfileika sína og njóta bernsku sinnar. Á næstu dögum mun Heimili og skóli leita til fyrirtækja og sveitarfélaga um samstarf sem gerir samtökunum kleift að halda áfram þessu mikilvæga starfi í þágu foreldra og barna um land allt. Höfundur er framkvæmdastjóri Heimilis og skóla – Landssamtaka foreldra Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar