Segja verktakann hafa fallið á prófinu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 27. febrúar 2026 10:35 Svona var umhorfs við lóð Ölduselsskóla í morgun. Vísir/Vilhelm Reykjavíkurborg segir að verktaki sem kom að framkvæmdum í Ölduselsskóla í Breiðholti hafi ekki uppfyllt gæðakröfur við frágang á verkinu. Vegna þessa var ákveðið að slaufa samstarfinu og fá annan í staðinn. Hættuástand skapaðist við skólann eftir að verktakinn tók saman búnað sinn í gær. Til stendur að hefja skólastarf samkvæmt stundatöflu á mánudag.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg í framhaldi af fréttaflutningi Vísis af málefni skólans. Foreldrar barna í skólanum fengu að vita á sjöunda tímanum í gærkvöldi að skólahald félli niður í dag í öllum bekkjum skólans sem telur alla bekki grunnskóla. Óvarðir skurðir Vísir greindi frá því í morgun að embættismenn á vegum borgarinnar og fulltrúar verktakans HHHús hefðu hnakkrifist á kaffistofu kennara á miðvikudag að viðstöddum kennurum. Í ályktun starfsmanna skólans í gær kom fram að öryggisbúnaður sem settur var upp til að forða slysum og koma í veg fyrir myglugró hefði verið tekinn niður. Þannig mætti ætla að myglugró og heilsuspillandi efni hefðu dreift sér um skólann, með tilheyrandi hættu fyrir nemendur og starfsfólk. Bæði innan- og utanhúss væru vinnusvæði iðnaðarmanna með óvörðum skurðum, hellum og steypubrotum. „Starfsfólk Ölduselsskóla telur að núverandi vinnuumhverfi í skólanum sé hættulegt og heilsuspillandi starfsfólki og nemendum og treystir sér af þeim sökum ekki til að vinna í því umhverfi og taka ábyrgð á nemendum. Starfsfólk óttast bæði um heilsu og öryggi nemenda og starfsmanna,“ sagði í ályktuninni. Skólastarf á mánudag Reykjavíkurborg segist í tilkynningu hafa gert breytingar á hópi verktaka sem koma að framkvæmdum við Ölduselsskóla. „Foreldrar voru upplýstir síðdegis í gær um að loka þyrfti skólanum í dag, föstudaginn 27. febrúar, til að tryggja öryggi nemenda og öryggi á verkstað á meðan skipt er um verktaka. Gert er ráð fyrir að skólastarf hefjist á ný á mánudag.“ Við eftirlit verkefnastjóra hafi komið í ljós að frágangur í verkinu uppfyllti ekki þær gæðakröfur sem gerðar séu í slíkum framkvæmdum og ekki hefði verið brugðist nægilega vel við athugasemdum. „Þá voru hæfnisviðmið ekki uppfyllt í samræmi við samning og var ákvörðun tekin í samráði við innkaupadeild og lögfræðinga umhverfis- og skipulagssviðs að ljúka samstarfi við verktakann í þessu verkefni og fá annan í hans stað.“ Tóku saman með hraði Reykjavíkurborg segir að eftir að samstarfinu við HHHús var slitið hafi öryggisgirðingar og tvær innanhúslokanir verið fjarlægðar. „Þetta gerðist með nokkrum hraða sem olli því að öryggi var tímabundið ekki eins og það á að vera. Eftirlit borgarinnar brást strax við og nýr verktaki var kallaður út án tafar til að tryggja svæðið.“ Nýr verktaki sé kominn í verkið og hafi þegar unnið við að tryggja öryggi á svæðinu á fimmtudag og fram á kvöld við nauðsynleg þrif og frágang, með stuðningi annarra verktaka. Ljóst var að halda þyrfti áfram með verkið í dag. „Ekki er gert ráð fyrir að þessi breyting valdi verulegum töfum á framkvæmdunum í heild. Nýr verktaki mun skila endurskoðaðri verkáætlun í næstu viku og verður staðfest tímalína verkefnisins birt þegar hún liggur fyrir.“
Grunnskólar Skóla- og menntamál Byggingariðnaður Reykjavík Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Sjá meira