Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? SVÞ 5. mars 2026 11:38 Boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá á ráðstefnunni UPPBROT sem Samtök verslunar og þjónustu standa fyrir 12. mars á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll. Mynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson. Hvað geta stjórnendur og millistjórnendur í verslunar- og þjónustugreinum gert til að nýta tækni af skynsemi, efla mannauðinn og skapa sjálfbæran og árangursríkan rekstur? Þessir þættir og fleiri til verða umfjöllunarefni ráðstefnunnar UPPBROT sem Samtök verslunar og þjónustu (SVÞ) halda árlega og verður að þessu sinni haldin 12. mars á Iceland Parliament Hotel við Austurvöll milli kl. 13 og 17. „
Tækninni fleygir fram, kröfurnar aukast, kostnaður hækkar og samkeppnin þéttist. Hvað gerist þegar við náum markmiðum á Excel-skjali en missum besta fólkið okkar? Hver borgar reikninginn þegar menningin veikist? Þetta eru kjarnaspurningar sem við spyrjum okkar á UPPBROTI 2026,“ segir Rúna Magnúsdóttir, markaðs- og kynningarstjóri SVÞ og sérfræðingur í meðvitaðri forystu. Kynntu þér dagskrána hér. Rúna Magnúsdóttir er markaðs- og kynningarstjóri SVÞ og sérfræðingur í meðvitaðri forystu.Mynd/Bjarney Lúðvíksdóttir. „Stjórnendur í dag standa frammi fyrir raunverulegum rekstrarlegum þrýstingi. Ákvarðanir um tækni, nýliðun, netverslun og kostnað hafa bein áhrif á afkomu en líka á traust og menningu. Spurningin er ekki hvort við nýtum tæknina, heldur hvernig við gerum það án þess að tapa fólkinu okkar á leiðinni,“ bætir Rúna við. Tími, tækni og tilgangur í forgrunni Í ár eru þrjú lykilþemu í forgrunni. „Í fyrsta lagi tími en við skoðum hvernig stjórnendur losna úr hjólförum dagsins, greina flöskuhálsa og vinna markvisst með tímann þar sem hann skiptir mestu máli. Í öðru lagi er það tækni en við kynnum lifandi dæmi um hvernig gervigreind og sjálfvirkni geta stutt daglegan rekstur, sparað tíma og bætt þjónustu í verslun og þjónustu.“ Klippa: Ráðstefnan Uppbrot 2025. Að lokum nefnir Rúna tilgang en á ráðstefnunni er ætlunin að skapa rými fyrir samtal um hvað fær fólk til að leggja sig fram, ekki af skyldu, heldur af vilja. „Við fjöllum um helgun, lærdóm, menningu og traust og um leið hvernig skýr sýn og mannleg forysta geta orðið að raunverulegu samkeppnisforskoti.“ Í fyrra komust færri að en vildu og hvetur Rúna fólk að skrá sig tímanlega. Gervigreindarverkstæði SVÞ er undir stjórn Þórönnu K. Jónsdóttur, ráðgjafa með hagnýta þekkingu á notkun gervigreindarMynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson. Eitthvað við allra hæfi Dagskráin er fjölbreytt og skemmtileg og fer fram í tveimur sölum í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll, þar sem skemmtistaðurinn NASA var lengi til húsa. Auk þess fer stór hluti dagskrárinnar fram á tveimur hæðum í gamla Kvennaskólanum sem er samtengdur Sjálfstæðissalnum. Boðið er upp á fyrirlestra, sófaspjall, pallborð, gervigreindarverkstæði SVÞ og svo nýjan lið sem heitir Mannlega víddin. Gervigreind og sjálfvirkni eru orðin hluti af daglegum rekstri en innleiðing án skýrrar stefnu getur verið dýr mistök. „Á ráðstefnunni verða kynnt raunveruleg dæmi úr íslenskum fyrirtækjum þar sem tæknin styttir greiningartíma, bætir þjónustugæði, hagræðir ferlum og lækkar kostnað án þess að fórna gæðum.“ Gervigreindarverkstæði SVÞ er undir stjórn Þórönnu K. Jónsdóttur, ráðgjafa með hagnýta þekkingu á notkun gervigreindar. Þar vinna þátttakendur með átta sérfræðingum að lausnum sem hægt er að innleiða strax. „Við erum ekki að tala um tæknidýrkun. Við erum að tala um arðsemi. Hvar skilar tæknin mælanlegu virði og hvar á hún ekki heima?,“ segir Rúna. „Á tímum þar sem samkeppni eykst og framlegð þrengist er það ekki hlutlaus ákvörðun að bíða með tækninýtingu.“ Auður Daníelsdóttir, formaður stjórnar SVÞ, hélt erindi á ráðstefnunni á síðasta ári.Mynd/Birgir Ísleifur Gunnarsson. Þegar afköst aukast en tengsl minnka Kulnun, kynslóðabil og breyttar væntingar til vinnustaðarins hafa bein áhrif á rekstur. Starfsmannavelta kostar nefnilega, bæði fjárhagslega og menningarlega. Á UPPBROTI 2026 er Mannlega víddin nýr vettvangur þar sem þátttakendur fá tækifæri til að læra af hver öðrum. „Margir stjórnendur upplifa að þeir þurfi að vera rekstrarstjórar, mannauðsstjórar og breytingastjórar í senn. Það er ekki veikleiki, það er raunveruleikinn. Spurningin er hvernig við bregðumst við honum af skýrleika,“ segir Rúna. Mannlega víddin er byggð upp sem lifandi samtal því menning breytist ekki með PowerPoint-glærum heldur með samtali og ábyrgð. „Þær þrjár meginspurningar sem við ætlum að takast á við eru: hvar erum við hætt að hlusta? hvenær hættir fólk að leggja sig fram? og hvar gæti stöðnun verið farin að laumast inn í reksturinn?“ Rúna mun stýra Manlegu víddinni en utan þess að vera markaðs- og kynningarstjóri SVÞ er hún einn reyndasti leiðtogamarkþjálfi landsins. „Markmið okkar er að búa til rými þar sem við áttum okkur á því að við erum ekki ein. Við höldum nefnilega svo oft að við séum ein að ströggla og jafnvel að við séum sjálf vandamálið. En við munum pottþétt heyra að svo er alls ekki og við erum svo sannarlega ekki ein í þessu.“ Það var góð mæting á ráðstefnunni á síðasta ári. Dagskrá mótuð af raunverulegum áskorunum Dagskrá ráðstefnunnar er mótuð af Ráðstefnuráði SVÞ í samstarfi við stjórnendur úr aðildarfélögum SVÞ sem svöruðu einfaldri en krefjandi spurningu: Hvað erum við raunverulega að glíma við í rekstri í dag? „Úr þeirri vinnu urðu meðal annars þessi þemu: Bestun sem menning en ekki stöðug pressa, nýliðun sem skilar árangri frá fyrsta degi, netverslun sem vaxtartækifæri, ekki ógn, og þjónusta sem samkeppnisforskot. „Við viljum að fólk fari heim með aðgerðir sem hafa áhrif á rekstrarniðurstöðu ekki bara hugmyndir sem hljóma vel,“ segir Rúna. Tengsl sem styrkja ákvarðanir Ráðstefnunni lýkur með sameiginlegri tengslastund þar sem þátttakendur fá tækifæri til að ræða hugmyndir og mynda samstarf. „Á umbreytingatímum skiptir ekki bara máli hvað þú veist heldur hverjum þú treystir þegar þú þarft að taka erfiða ákvörðun,“ segir Rúna. UPPBROT 2026 fer fram 12. mars á Parliament Hótel við Austurvöll frá kl. 13-17. Nánari upplýsingar og skráningu er að finna á vef SVÞ.
Verslun Mest lesið Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin Atvinnulíf Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Viðskipti innlent Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Samstarf 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Fleiri fréttir Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Icewear Garn opnar í Kringlunni Bíllinn sem rúllaði upp vetrardrægniprófi NAF Íþróttaálfurinn reynir við Íslandsmet á fjölskylduhátíð BL Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Sjá meira