Harry Maguire sakfelldur í Grikklandi Aron Guðmundsson skrifar 4. mars 2026 15:05 Harry Maguire í leik með Manchester United Vísir/Getty Harry Maguire, leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United, hefur verið dæmdur til fimmtán mánaða skilorðsbundins fangelsisdóms af grískum dómstól fyrir atvik sem átti sér stað á grísku eyjunni Mykonos árið 2020.
Greint er frá úrskurði gríska dómstólsins á vef Sky Sports í dag en Maguire er sakfelldur í liðum sem sneru að minniháttar líkamsárás, mótspyrnu við handtöku sem og tilraun til mútugreiðslu. Maguire hefur neitað sök í málinu og hefur Sky Sports heimildir fyrir því að lögmenn hans muni reyna að áfrýja dómnum á æðra dómsstigi. Greint var frá því í ágúst árið 2020 að Maguire hefði verið handtekinn í Mykonos þar sem að hann hafði varið hluta af sumarfríi sínu. Sögðu grískir fjölmiðlar frá því að enski landsliðsmaðurinn hefði lent í útistöðum fyrir utan bar á grísku eyjunni. Hann hafi síðan ráðist á lögreglumann og reynt að múta honum í kjölfarið. Útistöðurnar hafi tengst tveimur mönnum sem höfðu nálgast systur hans sem var með Maguire og fjölskyldunni í fríi. Maguire var dæmdur til 21 mánaða skilorðsbundið fangelsi árið 2020 en ákveðið var að málið skyldi endurupptekið eftir áfrýjun og var sakfellingin á sama tíma felld úr gildi í samræmi við grísk lög. Endurupptöku málsins var svo frestað fjórum sinnum, nú síðast í október á síðasta ári, en nú hefur dómur aftur verið kveðinn upp og Maguire dæmdur í fimmtán mánaða skilorðsbundið fangelsi. Maguire tjáði sig um málið í samtali við BBC á sínum tíma. Þar sagðist hann hafa óttast um líf sitt þegar að óeinkennisklæddir lögreglumenn handtóku hann. Hann taldi að verið að væri að ræna sér.
Manchester United Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Enski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn Engin uppalin spilaði með Fram Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ „Þetta snýst ekki um mig“ „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Sjá meira