Önnur hver stelpa beðin um nektarmyndir og fær klámfengin skilaboð Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 4. mars 2026 19:31 Yfir 70 ungmenni í Hafnarfirði tóku þátt í málþingi Barnaheilla í dag um kynferðisofbeldi í nánum samböndum. Unglingarnir segja allt of algengt að slíkur vandi þróist milli unglinga. Mikilvægt sé að bregðast við. Vísir/Sigurjón Ofbeldi í nánum samböndum unglinga er risastórt mál að mati ungmenna sem komu saman í Hafnarfirði dag til að ræða málið og finna lausnir. Verkefnastýra hjá Barnaheillum segir birtingarmyndir ofbeldisins oft grófari í dag en áður. Brýnt sé sé að stjórnvöld bregðist við.
Ein af hverjum átta stelpum í tíunda bekk segja annan ungling hafa haft samfarir eða munnmök við þær gegn vilja þeirra. Fjögur prósent stráka. Þetta kemur fram í Íslensku æskulýðsrannsókninni sem var gerð á síðasta ári. Alls svöruðu um sex hundruð börn í áttunda til tíunda bekk slíkri spurningu játandi. Samkvæmt sömu rannsókn hefur næstum helmingur stelpna í tíunda bekk verið beðinn um að senda af sér nektarmynd, einn af hverjum sex strákum. Önnur hver stelpa í sama bekk hefur fengið óumbeðin klámfengin skilaboð en þriðjungur stráka. Þá voru ríflega hundrað og þrjátíu kynferðisbrot gegn barni tilkynnt til lögreglu á síðasta ári og um fimmtíu vegna barnaníðs. Ungmenni þinga vegna vandans Barnaheill standa fyrir sex ungmennaþingum víðs vegar um land vegna vandans. Krakkar í áttunda til tíunda bekk hafa verið kölluð til að ræða og koma með lausnir vegna kynferðisofbeldis í nánum samböndum unglinga. Yfir sjötíu ungmenni frá grunnskólum í Hafnarfirði tóku þátt í einu slíku í dag. Við ræddum við nokkur ungmenni sem tóku þátt í þinginu sem sögðu að ofbeldi í nánum samböndum unglinga væri stórt vandamál. Þau sögðu jafnframt að það væri gott að fá tækifæri til að ræða málið á svona þingi og reyna að finna lausnir. „Við erum hérna til að læra um þessi mál. Það er t.d. mikilvægt að fólk virði mörk hvors annars. Það eru líka mjög mörg vandamál sem við ræðum hér, eins og kynferðislega áreitni sem er algeng meðal ungmenna,“ sögðu þeir Þorsteinn og Marinó. Birtingarmyndir ofbeldisins grófari en áður Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnastýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum, segir að þó þetta sé bara annað þingið af sex sé þegar byrjað að koma í ljós hvað brennur fyrst og fremst á krökkunum. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra ofbeldis- og kynheilbrigðismála hjá Barnaheillum.Vísir/Sigurjón „Við sjáum að birtingamyndir ofbeldisins eru grófari en áður. Það kemur líka í ljós að krökkunum finnst erfitt að segja frá því þegar þeir verða fyrir ofbeldi. Foreldrar og starfsfólk sem vinnur með börnum þarf að taka fyrsta skrefið og opna samtalið til þess að þau eigi auðveldara með að tjá sig. Við sjáum líka að það er talsvert mikið um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Þá eru þau oft að fá skakkar hugmyndir frá samfélagsmiðlum og klámefni á vefnum um hvað á og má gera í kynlífi. Loks vil ég nefna að þau segja mikilvægt að aðstoða gerendur. Það sé skortur á úrræðum fyrir þá. Það þurfi líka að vera hægt að hjálpa þeim út úr vítahring ofbeldisins,“ segir Kolbrún. Kolbrún segist finna mikinn áhuga hjá unglingunum á málefninu og fleiri hafi sótt um að komast á þingið í dag en hægt var að taka á móti. Hún finnur að krökkunum finnst afar gagnlegt að koma og ræða saman. Stjórnvöld þurfi hins vegar að sinna málaflokknum betur, „Við viljum að stjórnvöld hlusti á ungmennin. Það þarf að setja meira fjármagn í forvarnarstarf og bæta fræðsluna verulega,“ segir Kolbrún.
Klám Grunnskólar Ofbeldi barna Ofbeldi gegn börnum Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira