Örorka er ekki hvati – hún er afleiðing alvarlegra veikinda Helga Edwardsdóttir og Sigríður Elín Ásgeirsdóttir skrifa 5. mars 2026 20:33 Ályktun stjórnar Læknafélag Íslands um tengingu örorku- og almannatryggingabóta við vísitölur vekur djúpar áhyggjur meðal þeirra sem lifa við langvinn og hamlandi veikindi. Í ályktuninni er bent á að hlutfall einstaklinga á örorku- og endurhæfingarlífeyri hafi hækkað úr 6,3% í 9,4% á árunum 2020–2024 og sé nú komið í 12%. Sú staðreynd er notuð til að draga í efa að núverandi kerfi styðji við virkni og endurkomu á vinnumarkað og jafnvel gefið í skyn að fjárhagslegir hvatar skipti þar máli. Við spyrjum: Datt engum í hug að þessi aukning kunni að skýrast af heimsfaraldri sem skildi eftir sig þúsundir einstaklinga með langvinn einkenni? Frá árinu 2020 hefur fjöldi fólks glímt við langvarandi einkenni eftir COVID-19, svokallað Long Covid. Hluti þess hóps uppfyllir síðar greiningarskilmerki fyrir ME (Myalgic Encephalomyelitis), alvarlegan taugasjúkdóm sem einkennist m.a. af áreynsluóþoli (post-exertional malaise), vitrænni skerðingu og verulegri skerðingu á starfsgetu. Þetta eru ekki tímabundin einkenni heldur ástand sem getur staðið árum saman og jafnvel til æviloka. Endurhæfing sem er ekki til staðar Í ályktun Læknafélagsins er vísað til þess að kerfið sé orðið „opnara“ og að ekki þurfi lengur að hefja endurhæfingu til að fá greiðslur – nægi að vera á biðlista eða of veikur til að taka þátt. Við bendum á að fyrir stóran hóp fólks með Long Covid og ME er staðan einfaldlega sú að viðeigandi endurhæfing er ekki í boði. Stofnanir á borð við VIRK, Reykjalund og Heilsustofnun NLFÍ hafa ítrekað metið einstaklinga með þessi veikindi „ekki hæfa til endurhæfingar“. Ástæðan er ekki viljaleysi sjúklinga heldur lífeðlisfræðileg takmörkun: áreynsla versnar sjúkdóminn. Hefðbundin starfsendurhæfing sem byggir á stigvaxandi álagi getur leitt til afturfarar. Þegar læknar lýsa áhyggjum af því að fólk sé á biðlista eða of veikt til að hefja endurhæfingu, væri eðlilegra að beina sjónum að því hvers vegna kerfið bjóði ekki upp á sérhæfð úrræði fyrir þennan ört stækkandi sjúklingahóp. Ranghugmyndir um „fjárhagslega hvata“ Fullyrðingar um að ráðstöfunartekjur geti orðið sambærilegar eða hærri en laun í fullu starfi skapa hættulega einföldun. Í fyrsta lagi nær það aðeins til afmarkaðs hóps sem hefur greitt í lífeyrissjóð um árabil og á rétt á framreiknaðri örorkutryggingu. Sá réttur er áunninn með skylduiðgjöldum á vinnumarkaði. Að gera lítið úr þeim rétti er að gera lítið úr tryggingakerfinu sjálfu. Í öðru lagi er örorka ekki valkostur sem fólk velur sér til að bæta lífskjör sín. Ferlið er langt, íþyngjandi og byggir á ströngu og varanlegu mati. Flestir sem greinast með ME eða glíma við Long Covid hafa misst starfsgetu, tekjur, félagslegt hlutverk og lífsgæði. Að halda því fram að hópurinn „festist“ á örorku vegna fjárhagslegra hvata gengur gegn klínískri reynslu og raunveruleika sjúklinga. Rannsóknir sýna vissulega að þeir sem geta snúið aftur til vinnu upplifa oft betri lífsgæði. En sú staðreynd á ekki við þegar undirliggjandi sjúkdómur gerir það ómögulegt. Þá er vandinn ekki hvati heldur heilsufar. Orsakasamhengi þarf að greina – ekki gefa sér Ef algengi örorku hefur aukist eftir 2020 er faglega ábyrg nálgun að greina orsakasamhengi: Hver er hlutur langvinnra eftirkasta COVID-19? Hver er fjölgun tauga- og sjálfsofnæmissjúkdóma eftir faraldurinn? Hversu stór hluti nýrra örorkumatsmála tengist viðurkenndum, alvarlegum heilsufarsvanda? Án slíkrar greiningar er varasamt að gefa í skyn að kerfisbreytingar eða „of rausnarlegar“ greiðslur skýri þróunina. Beinum kröftunum að raunverulegu vandamáli Ef stjórn Læknafélagsins vill stuðla að bættri heilsu og aukinni atvinnuþátttöku væri nær að: Þrýsta á um sérhæfð greiningar- og meðferðarúrræði fyrir ME og Long Covid. Tryggja að endurhæfing taki mið af þekktri meingerð sjúkdómanna, m.a. áreynsluóþoli. Styðja við rannsóknir og klínískar leiðbeiningar fyrir þennan hóp. Vinna að því að fólk fái raunhæfa starfsendurkomu þegar og ef heilsufar leyfir – ekki með fjárhagslegum þrýstingi heldur með viðeigandi heilbrigðisþjónustu. Að beina sjónum að meintri „rangri hvatauppbyggingu“ á sama tíma og stór hópur fólks fær þau skilaboð að það sé „ekki hæft til endurhæfingar“ er ekki lausn. Örorka er ekki umbun. Hún er neyðarúrræði þegar heilsa brestur. Við skorum á stjórnvöld og læknastéttina að nálgast þessa umræðu af yfirvegun, virðingu og faglegri nákvæmni – og að forgangsraða uppbyggingu raunverulegra úrræða fyrir þá sem hafa misst starfsgetu vegna alvarlegra veikinda eftir heimsfaraldur. Höfundar eru formaður ME félags Íslands og formaður Ský – Félags fólks með Long Covid. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Faraldur kórónuveiru (COVID-19) Tenging almannatrygginga við launavísitölu Félagsmál Mest lesið Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson Skoðun Skoðun Skoðun It's complicated: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Stefanía K. Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Gleymdi framhaldsskólinn Sigurður E. Vilhelmsson skrifar Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn er að grafa sína eigin gröf Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar Skoðun Við unnum stóra vinninginn Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Við erum öll í sama liðinu Jónas Hagan Guðmundsson skrifar Skoðun Látið Ljósleiðarann vera! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Það sem mun sökkva okkur Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ef Ísland sækir um „djobbið“ Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Tangarhald á lífæð samfélagsins Björn Brynjúlfur Björnsson skrifar Skoðun Leyfið okkur að velja framtíð okkar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Hver kenndi Viðskiptaráði að rýna í gögn og tölur? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Gervigreind mun ekki skipta út leiðtogum. Hún mun afhjúpa þá Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Enginn kemst langt með skóflu eina að vopni Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Að gera upp á milli barna Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hólar í Hjaltadal á uppboð Jón Bjarnason skrifar Skoðun Er ekki best að tala bara íslensku um ESB og matvælaverð? Trausti Hjálmarsson skrifar Skoðun Lausnin sem leysir ekkert Jóhann Skagfjörð Magnússon skrifar Skoðun Vestmannaeyjabær, þar sem þögn er þegjandi samkomulag Linda Rós Sigurdardóttir skrifar Skoðun Starfsfólkið er öflugasta varnarlínan Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Þegar samkennd og tortryggni lifa hlið við hlið á netinu Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Geðheilbrigðisþjónusta óháð efnahag? Steinunn Bragadóttir skrifar Skoðun Um skipulag bæja Þórður Már Sigfússon skrifar Sjá meira
Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun
Skoðun Álfsnes er rangur staður fyrir skotsvæði Kristbjörn Haraldsson,Anja Þórdís Karlsdóttir skrifar
Skoðun Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir skrifar
Skoðun Nokkur atriði varðandi mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu Jón Frímann Jónsson skrifar
Skoðun Opið bréf til stjórnsýslu Reykjanesbæjar vegna aðgengis í Gömlu búð Arnar Helgi Lárusson skrifar
Skoðun Þegar fjarlægðin hættir að standa í vegi fyrir heilsu kvenna Helga Dagný Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Skammsýni á tímum tæknibyltingar, erum við að missa af framtíðinni? Sævar Þór Jónsson skrifar
Eru félagasamtök sem boða eigið fagnaðarerindi nóg til að upplýsa almenning? Eyrún Magnúsdóttir Skoðun