Listamönnum fækkar ört Tómas Arnar Þorláksson skrifar 6. mars 2026 21:30 Mynd úr safni. vísir/vilhelm Starfandi listamönnum hefur fækkað umtalsvert hér á landi á síðustu tveimur árum. Svo virðist sem flótti sé úr ýmsum greinum en forstöðukona rannsóknarseturs skapandi greina segir mikilvægt að brugðist sé við enda um mikinn missi að ræða.
Hagstofa Íslands birti í dag tölfræði um fjölda fólks starfandi í menningu og skapandi greinum. Fækkunin nemur um fimmtungi á níu árum og um 15,2 prósentum á aðeins tveimur árum. Fréttastofa greindi frá því á dögunum að töluverður flótti væri í kvikmyndageiranum hér á landi en Jóna Hlíf Halldórsdóttir, forseti Bandalags íslenskra listamanna, segir í samtali við fréttastofu að svipað væri uppi á teningnum í öðrum greinum. Erla Rún Guðmundsdóttir, forstöðukona Rannsóknarseturs skapandi greina, segir um varhugaverða þróun að ræða. „Sem rannsakanda og fyrrum starfsmanni þarna á Hagstofunni þá kemur á óvart hve mikil fækkunin hefur verið. Það er umtalsverð fækkun á starfandi fólki í menningu og skapandi greinum. Þeim sem starfa sjálfstætt fækkar mest á meðan launafólki lækkar mikið. Þeir sem eru í blandaðri starfsemi fækkar minnst, en það er samt fækkun í öllum hópum.“ Starfsfólki er skipt í þrjá flokka: Í fyrsta lagi menningarstörf í menningargreinum, sem dæmi leikari í leikhúsi. Í öðru lagi önnur störf í menningargreinum eins og markaðsstjóri leikhúss. Og í þriðja lagi menningarstörf í öðrum atvinnugreinum líkt og grafískur hönnuður hjá tæknifyrirtæki. „Þegar maður horfir á þessa hópa er fækkunin eingöngu í menningarstörfunum, hvort sem það er í skapandi greinum eða utan þeirra. Á meðan þeim sem eru í öðrum störfum innan skapandi greina er ekki að fækka. Það virðist vera að stoðþjónusta fái að halda sér sem launafólk á meðan listamönnum og öðrum sem hafa skapandi störf er að fækka. Erla Rún Rannsóknaseturs skapandi greinavísir/bjarni Hún veltir því upp hvort svokallað gigghagkerfi hafi þau áhrif að listamenn færist yfir í verktöku og smærri hliðarstörf. Heldurðu að þetta gæti orðið enn verra ef það er ekki brugðist við með einhverjum hætti? „Já, sjálfsagt. Auðvitað hefur það verið í umræðunni og maður sér það í fjárlögum og almennt í umræðunni að það er verið að skera af og það eru aðhaldskröfur út um allt og í menningarstofnunum og í sjóðunum. Auðvitað virðist þetta benda til þess að það sé ástæða til að staldra aðeins við og endurskoða það.“ Hún segir um mikinn missi að ræða. „Þetta er fólk sem kemur samfélagi og efnahagi til góða og líka bara hæfni sem kemur með listafólki sem skiptir máli fyrir samfélagið og ekki síst í kringum þessar breytingar sem eru að verða núna með tilkomu gervigreindar og tækni.“
Listamannalaun Menning Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Nei eða já? Af eða á? Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Hættulegt að lána lyf Kjaradeilan vekur upp spurningar um framtíð Icelandair Vör ýtt úr vör Barn missti meðvitund eftir árekstur á skólalóð Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Ari Edwald enn undir feldi Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Sjá meira