„Ákall eftir stjórnmálum sem snúast um umhverfisvernd og mannréttindi“ Smári Jökull Jónsson skrifar 8. mars 2026 13:20 Rósa Björk er nýr formaður VG. Vísir/Vilhelm Nýr formaður Vinstri grænna segir vegið að umhverfisvernd og mannréttindum við núverandi aðstæður í íslenskum stjórnmálum. Hún segir Samfylkinguna hafi færst til hægri eftir að hafa tekið sæti í ríkisstjórn og skili líka auðu þegar kemur að umhverfisvernd.
Rósa Björk Brynjólfsdóttir var í morgun kjörin nýrformaður Vinstri Grænna á landsfundi flokksins á Selfossi. Tveir voru í framboði en sigur Rósu gegn Hlyni Má Ragnheiðarsyni var öruggur og hlaut Rósa 95% atkvæða. Tekur hún við embættinu af Svandísi Svavarsdóttur sem hefur verið formaður síðan í október 2024. Rósa Björk metur stöðu VG góða en flokkurinn féll út af þingi í síðustu kosningum sem Rósa segir engin áhrif hafa á sín störf sem formaður. Næsta stóra verkefni séu sveitarstjórnarkosningar þar sem flokkurinn bjóði fram í fjölmörgum kjördæmum. Eina leiðin sé áfram og hugur sé í fólki innan flokksins. „Það er ákall eftir stjórnmálum sem snúast um alvöru umhverfisvernd, náttúruvernd og mannréttindi. Það er líka sömuleiðis ákall eftir stjórnmálum sem að taka á vaxandi ójöfnuði. Við erum þetta stjórnmálaafl sem er með skýra stefnu og málefni í þessum efnum,“ sagði Rósa í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Finnst þér þessum málefnum ekki haldið nægilega vel á lofti eins og staðan er núna? „Nei, alls ekki. Það er vegið að umhverfisvernd við núverandi aðstæður, það er boðuð harðkjarnavirkjanastefna. Það er verið að læða inn orkufrekum gagnaverum án allrar lýðræðislegrar umræðu og svo mætti lengi telja. Síðan erum við að sjá líka að það er vegið að mannréttindum, bæði í opinberri umræðu inni á Alþingi og víðar í samfélaginu.“ Samfylkingin hafi hjólað í rammaáætlun Rósa Björk segir Samfylkinguna hafa færst til hægri eftir að hafa tekið sæti í ríkisstjórn. „Mér finnst sá flokkur hafa hallast mjög mikið til hægri og mér finnst sá flokkur hafa yfirgefið umhverfisvernd sem var alltaf til staðar í Samfylkingunni. Með svona harðri virkjanastefnu og afnámi reglugerða í í umhverfisvernd og einnig líka með því að hjóla í rammaáætlun.“ „Þetta eru allt merki um það að bæði hefur Samfylkingin hallast til hægri og skilar auðu þegar kemur að umhverfisvernd. „Nærsamfélagsmál eru VG mál“ Í ræðu sinni eftir kjörið sagði Rósa Björk VG ekki vera að fara neitt þrátt fyrir að standa utan þings. „Við eigum öfluga fulltrúa í sveitarstjórnum um allt land og erum á fullu að undirbúa framboð víða. Við erum með sérframboð á Akureyri og verðum á sameiginlegum framboðslistum í Múlaþingi, Hafnarfirði, Kópavogi og í glænýju öflugu framboði í Reykjavík. Ég bind líka vonir við að sjá okkur á framboðslistum í Norðurþingi, Skagafirði og í Borgarbyggð.“ Rósa sagði þessi nærsamfélagsmál vera VG mál og sagði stefnu flokksins þurfa að vera við borðið þegar ákvarðanir væru teknar. Þá sagði hún bakslag í mannréttindum vera staðreynd. „Hægrislagsíðan í íslenskum stjórnmálum gengur svo langt að það sem þótti óhugsandi að segja fyrir stuttu, er orðið að kór sem syngur fölskum rómi gegn innflytjendum og þvælir öllu saman í málefnum útlendinga á Íslandi. Þetta er falskur söngur sem snýr venjulegu fólki gegn hvort öðru.“ Krafðist svara frá Samfylkingu og Viðreisn Ríkisstjórnarflokkarnir eltu orðræðuna og væru óttaslegnir yfir fylgi Miðflokksins og kæmu fram með þingmál sem snúist um að herða alla umgjörð fyrir fólk af erlendum uppruna og gera það tortryggilegt. Þá spurði hún hvenær Samfylkingin og Viðreisn urðu að stjórnmálaflokknum sem vísuðu börnum á flótta úr landi og ætluðu að halda börnum og fjölskyldum þeirra í brottnámsbúðum sem væru ekkert annað en frelsissvipting. „Þessu þurfa ráðherrar, þingmenn og félagar í Samfylkingu og Viðreisn að svara. Þau þurfa að svara því hvenær var ekki pláss fyrir öll börn hér á Íslandi. Landi sem stærir sig af því að virða barnasáttmálann en ætlar að ganga gegn ráðum mannréttindasamtaka,“ sagði Rósa Björk meðal annars.
Vinstri græn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Alþingi Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Sjá meira