Slógu í gegn með dansi áður en mars-geðveikin hefst Sindri Sverrisson skrifar 9. mars 2026 13:17 Charlisse Leger-Walker, Gabriela Jaquez og Lauren Betts kunna fleira fyrir sér en að vinna körfuboltaleiki. Skjáskot/Youtube Þrír leikmanna kvennaliðs UCLA í körfubolta fengu að láta ljós sitt skína með öðrum hætti á dögunum, þegar þær slógust í lið með dansliði skólans í skemmtilegu hálfleiksatriði.
Það styttist óðum í að „mars-geðveikin“ svokallaða hefjist um miðjan þennan mánuð, þegar úrslitakeppnin í bandaríska háskólakörfuboltanum fer af stað. Kvennalið UCLA er sigursælt og aldrei að vita nema að það keppi um titilinn og þá er ljóst að leikmenn, sérstaklega þrír þeirra, munu stíga sigurdans af miklum móð. Þær Charlisse Leger-Walker, Gabriela Jaquez og Lauren Betts sýndu nefnilega mikil tilþrif í óvænta dansatriðinu í hálfleik á leik karlaliðs UCLA við Nebraska í síðustu viku. Atriðið má sjá hér að neðan. Aðdragandinn að þessu var sá að Leger-Walker birti myndband á Youtube-síðu sinni, með Jaquez, þar sem þær skoruðu á UCLA-dansliðið að kenna þeim heilan dans á aðeins 24 klukkutímum. Leger-Walker lofaði svo að ef að myndbandið fengi 1.000 „like“ þá fengi hún liðsfélaga með sér í að dansa með dansliðinu í hálfleikssýningu á leik karlaliðsins. Það gekk strax eftir. „Lauren og ég höfðum viljað taka danstíma í LA í langan tíma,“ sagði Jaquez við ESPN og bætti við: „Við ólumst báðar upp við að dansa og elskum að dansa í búningsklefanum og svona. En þetta var ekki bara einhver TikTok dans, þetta var alvöru dæmi. Svo þegar að Charlisse kom með þessa hugmynd þá fórum við í þetta af fullum þunga.“ „Við höfðum bara einn dag til þess að æfa okkur svo við vorum að æfa fyrir framan spegilinn og undirbúa okkur eins og við gátum,“ sagði Jaquez og bætti við að í liðinu hennar væri lögð áhersla á að hafa gaman og það virðist hafa skilað sér í mjög góðu gengi í vetur.
Körfubolti Mest lesið Gunnlaugur Árni á U.S. Open Golf Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Reyndur lýsandi ruglaðist á liðum á HM og var rekinn Fótbolti Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Handbolti Tár hetjunnar höfðu áhrif og mamma hans fær að koma á HM Fótbolti Kanadamenn unnu stórsigur en misstu mann af velli fótbrotinn Fótbolti Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Fótbolti Fleiri fréttir Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Sjá meira