Ráðleggur Þorgerði fram að þjóðaratkvæðagreiðslu Árni Sæberg skrifar 10. mars 2026 14:07 Heiða Kristín aðstoðar Þorgerði Katrínu næstu mánuði. Vísir Heiða Kristín Helgadóttir, fyrrverandi varaþingmaður, hefur verið ráðin ráðgjafi Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra fram að þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, sem stefnt er á að halda í lok ágúst.
Þetta staðfestir Heiða Kristín í samtali við Vísi en sést hefur til hennar á göngum utanríkisráðuneytisins undanfarið. Tekur við af Aðalsteini að hluta Utanríkisráðherra hefur aðeins notið krafta eins aðstoðarmanns síðan í desember, þegar Aðalsteinn Leifsson fór í leyfi til þess að einbeita sér að prófkjöri fyrir borgarstjórnarkosningar í vor. Hann tilkynnti að því loknu að hann kæmi ekki aftur til starfa, þrátt fyrir að hafa ekki farið með sigur af hólmi í prófkjörinu. „Ég er að taka að mér sérstaka ráðgjöf varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna, þannig að ég er að fylla að hálfu leyti í það hlutverk en ekki að öllu leyti,“ segir Heiða Kristín. Hún reiknar með því að hafa nóg á sinni könnu næstu mánuði. „Ég held að þetta geti orðið mjög skemmtilegt. Þetta er mikilvægt og spennandi verkefni, þannig að ég er klár í slaginn, til í þetta.“ Annar makinn sem Þorgerður Katrín sækir Heiða Kristín hefur áður aðstoðað Þorgerði Katrínu tímabundið en það gerði hún um nokkurra mánaða skeið árið 2023, þegar Þorgerður Katrín var aðeins formaður Viðreisnar en ekki ráðherra. Athygli vakti þá að hún fetaði í fótspor eiginmanns síns, Guðmundar Kristjáns Jónssonar, sem aðstoðaði Þorgerði Katrínu þegar hún var sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra árið 2017. Þá aðstoðaði Heiða Kristín Jón Gnarr, þingmann Viðreisnar, þegar hann bauð sig fram til forseta árið 2024. Nú vekur ekki síður athygli að nú eru bæði Heiða Kristín og aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar að feta í fótspor maka síns. María Rut Kristinsdóttir, þingmaður Viðreisnar, var aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar sem formanns og eiginkona hennar, Ingileif Friðriksdóttir, er nú aðstoðarmaður hennar ráðherra. Uppfært: Upphaflega var ritað að Heiða Kristín væri fyrrverandi alþingismaður en hún var varaþingmaður. Þá sagði að hún myndi aðstoða ráðherra en hún hefur ekki verið ráðin aðstoðarmaður ráðherra formlega.
Viðreisn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Vistaskipti Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Flugvél fór út af brautinni á Hólmsheiði Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Sjá meira