Staðan ekki breyst í samræmi við lýsingar ráðherra Sunna Sæmundsdóttir skrifar 11. mars 2026 11:50 Alma Möller, heilbrigðisráðherra, segir engar skyndilausnir á vanda Landspítalans. vísir/samsett Heilbrigðisráðherra segir búið að grípa inn í vanda Landspítalans með öllum tiltækum ráðum og færa fimmtíu sjúklinga líkt og um hafi verið beðið. Samkvæmt gögnum frá Landspítala hefur staðan hins vegar lítið breyst frá því að starfsfólk sendi frá sér neyðarkall.
Þann 11. febrúar efndu stéttarfélög starfsmanna bráðamóttöku Landspítala til neyðarfundar þar sem kallað var eftir aðgerðum í ljósi þess að fjöldi sjúklinga væri langt umfram þolmörk. Alma Möller heilbrigðisráðherra, segir að unnið hafi verið stöðugt í málinu síðan. „Það er búið að grípa inn í með öllum tiltækum ráðum og það er þegar búið að færa fimmtíu sjúklinga annað eins og um var beðið en það hefur ekki dugað til,“ segir Alma. Fjöldi þeirra sem eru inniliggjandi á Landspítala með svokallað gilt færni- og heilsumat og bíða þess þar með að komast í önnur úrræði er breytilegur á milli daga. Mismargir leita á spítalann á hverjum degi og misjafnt er hversu marga er unnt að útskrifa. Vandi bráðamóttökunnar hefur falist í því að ekki er hægt að koma stórum hópi fólks þaðan og á aðrar þéttsetnar deildir spítalans. Ekki eru laus hjúkrunarrými fyrir þá sem eru með gilt færni- og heilsumat og þurfa ekki að vera á spítalanum. Fjölgar á ný Hinn 11. febrúar þegar starfsmenn boðuðu til fundarins og kölluðu eftir aðgerðum voru 127 í þeim hópi. Talan lækkaði eftir fundinn og tveimur dögum síðan stóð fjöldinn í 118. Talan hefur hins vegar aftur verið á uppleið og í gær biðu 119 með gilt færni- og heilsumat útskriftar, eða fleiri en rétt eftir fundinn. Þegar litið er til fjölda útskrifaðra á tímabilinu án þess að horfa til þess sem bæst hefur við er hins vegar hægt að telja upp í fimmtíu, eða fjöldans sem ráðherra vísar til. Samkvæmt Landspítala hefur staðan því lítið breyst. Í morgun voru yfir fjörutíu á bráðamóttöku sem biðu þess að komast á aðrar deildir. Til að losa um alvarlega stöðu á bráðamóttökunni þyrfti fjöldi þeirra sem eru inniliggjandi á spítalanum með gilt færni- og heilsumat að vera í kringum fjörutíu til fimmtíu. Ráðherra á þó von á því að ástandið batni að einhverju leyti á næstu tveimur vikum. „Það opna ellefu rými á hjúkrunarheimili á Sléttuvegi sem hefur verið lokað eftir bruna sem þar varð og það verður byrjað að taka inn í biðrýmin í Urðarhvarfi. Ég hef alltaf sagt að þegar vandinn er jafn langstæður og mikill og raun ber vitni eru engar skyndilausnir. En það er margt búið að gera og það eru stór atriði fram undan,“ segir Alma.
Landspítalinn Heilbrigðismál Ástand á bráðamóttöku Landspítalans Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Innlent Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Erlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent Kourani farinn úr landi Innlent Halla hæstánægð með stólaskiptin Innlent Kanna hvort Kim eigi son Erlent Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik Erlent Fleiri fréttir Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Sjá meira