Fá rödd Guðna lánaða Magnús Jochum Pálsson skrifar 11. mars 2026 12:52 Guðni Ágústsson í góðum selskap. Nýjustu fréttir af Guðna eru að hann sé orðinn rödd tónlistarstaðarins Sviðsins. Eygló Gísladóttir Tónleikastaðurinn Sviðið á Selfossi hefur fengið Guðna Ágústsson til að taka upp sérstakar tilkynningar sem heyrast í salnum fyrir og eftir viðburði. Guðni mun þar bjóða gesti velkomna, taka við þeim í hléi og þakka þeim loks fyrir komuna.
Davíð Lúther, einn af eigendum Sviðsins, staðfesti þetta í samtali við Vísi. Kvaðst hann afar ánægður með samstarfið enda rödd Guðna þekkt meðal landsmanna og henni fylgi vigt og virðing. „Okkur fannst vanta ákveðna stemningu í upphaf og lok viðburða. Rödd Guðna var efst á óskalistanum hjá okkur og það tók ekki langan tíma að komast að samkomulagi við þennan öðling,“ segir Davíð Lúther. Guðni Ágústsson er þjóðþekktur fyrir störf sín í stjórnmálum, var þingmaður frá 1987 til 2008 og landbúnaðarráðherra frá 1999 til 2007. Á Selfossi er hann einnig oft kallaður Miðbæjarstjórinn og sést gjarnan ganga um bæinn með hópa þar sem hann rekur fyrir þeim uppbyggingu Selfoss. Þegar gestir eru sestir í sætin sín hljómar rödd Guðna þar sem hann býður alla velkomna og lætur vita að tónleikarnir séu að hefjast. Röddin heyrist einnig í hléi, minnir gesti á að koma sér fyrir og í lok kvölds þegar gestum er þakkað fyrir komuna.
Tónlist Tónleikar á Íslandi Framsóknarflokkurinn Árborg Tengdar fréttir Guðni Ágústsson telur í hjá Stuðmönnum á Selfossi í kvöld Þrátt fyrir að nýi miðbærinn á Selfossi hafi verið opinn í rúmlega eitt ár er ekki komin starfsemi í öll þrettán húsin á svæðinu. Það er þó að gerast smátt og smátt en í kvöld opnar þar skemmtistaður, sem hefur fengið nafnið Sviðið. Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra spilar þar stórt hlutverk. 29. október 2022 13:05 Mest lesið Einelti kvenna á vinnustað lúmskt og einkennist af gaslýsingu Lífið Fór á skeljarnar undir almyrkvanum Lífið Hvað veistu um… kirkjur á Íslandi? Lífið Frægustu mágar landsins Lífið Jói Pé og Molly selja skrifstofuhæð innréttaða sem íbúð Lífið Guðni var lokaður inni í síðasta almyrkva: „Ég man þennan morgun enn“ Lífið Þjóðir sem eigi í vopnuðum átökum megi ekki halda Eurovision Lífið Móðir Perezar Hilton sækir um tímabundið forræði yfir börnunum Lífið OnlyFans-stjarna dæmd fyrir að stinga kærastann til bana Lífið Ocasio-Cortez á lausu Lífið Fleiri fréttir Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira
Guðni Ágústsson telur í hjá Stuðmönnum á Selfossi í kvöld Þrátt fyrir að nýi miðbærinn á Selfossi hafi verið opinn í rúmlega eitt ár er ekki komin starfsemi í öll þrettán húsin á svæðinu. Það er þó að gerast smátt og smátt en í kvöld opnar þar skemmtistaður, sem hefur fengið nafnið Sviðið. Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra spilar þar stórt hlutverk. 29. október 2022 13:05