Gengur stolt frá borði reynslunni ríkari Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 11. mars 2026 22:44 Ingibjörg Isaksen, fyrrverandi formaður þingflokks Framsóknar. Aðsend Ingibjörg Isaksen, fráfarandi þingflokksformaður Framsóknar, segist ganga stolt frá borði, reynslunni ríkari. Nýr formaður Framsóknar lagði til að breytingar yrðu gerðar á skipan þingflokksins.
Stefán Vagn Stefánsson hefur tekið við sem þingflokksformaður Framsóknarflokksins og Þórarinn Ingi Pétursson tekur við sem varaþingflokksformaður. Stefán Vagn sagði í viðtali á Vísi að það hafi verið Lilja Alfreðsdóttir, nýr formaður flokksins, sem lagði fyrir þingflokkinn að skipta um formann. Tæpur mánuður er síðan Framsókn kaus sér nýjan formann og stóð valið á milli Lilju og Ingibjargar. „Það hefur mér verið mikill heiður að leiða þingflokk Framsóknar á þessum árum. Starfið hefur verið krefjandi en um leið afar lærdómsríkt og ég er þakklát fyrir það traust sem mér var sýnt þegar mér var falið þetta mikilvæga hlutverk af formanni, með stuðningi þingflokksins,“ segir Ingibjörg í færslu á Facebook. Fréttastofa hefur reynt að ná tali af Ingibjörgu án árangurs. Í færslunni segist hún hafa öðlast dýrmæta reynslu af störfum Alþingis og þakkar starfsfólki þingsins sérstaklega fyrir gott samstarf. „Það sem stendur þó sérstaklega upp úr er samstarfið við grasrót Framsóknar um allt land. Fyrir mér hefur alltaf skipt máli að tengslin milli þingflokksins og fólksins í flokknum séu sterk. Í þeim anda lögðum við til að halda reglulega fjarfundi með grasrótinni um störf þingsins, vettvang sem hefur mælst vel fyrir og skapað gott samtal um þingstörfin og þau mál sem eru þar til umfjöllunar,“ segir hún. „Ég geng stolt frá borði, reynslunni ríkari og þakklát fyrir samstarfið við allt það góða fólk sem ég hef kynnst á þessari leið.“ Þrátt fyrir að ákveðinn kveðjubragur sé á færslu Ingibjargar virðist hún ekki vera að hætta í stjórnmálum miðað við síðustu setningu færslunnar. „Stjórnmál snúast að lokum um að halda áfram að vinna að þeim verkefnum sem skipta fólkið í landinu máli og það mun ég áfram gera.“
Framsóknarflokkurinn Alþingi Mest lesið Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Erlent Heiða í veikindaleyfi Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Fleiri fréttir Flugvél fór út af brautinni á Hólmsheiði Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Sjá meira