Leið Sigmundar Davíðs og Trump eða fjölga valkostum fyrir Ísland? María Svanfríður Malmquist skrifar 12. mars 2026 06:02 Undanfarið hefur verið fjallað um tengsl Sigmundar Davíðs og Miðflokksins við hópa tengda Trump-hreyfingunni vestanhafs. Þessi tengsl eru engin tilviljun. Miðflokkurinn og Trump eiga nefnilega margt sameiginlegt. Þeir ala á tortryggni gagnvart alþjóðasamstarfi og aðhyllast einangrunarhyggju og umbúðapólitík. Nú á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. Þetta er reyndar gamalt loforð Sigmundar Davíðs sem hann treysti sér ekki til að efna. Hann þorði ekki að leyfa þjóðinni að fá orðið. Þann 29. ágúst fær þjóðin loksins orðið. Við munum ekki kjósa um inngöngu í Evrópusambandið, heldur munum við fyrst kjósa um hvort við viljum afla meiri upplýsinga og fá samning á borðið svo við getum átt upplýsta umræðu um ESB. Einangrunarsinnar vilja hins vegar hræða þjóðina til að segja nei. Loka dyrum að nánara samstarfi við ríkin sem við eigum mesta samleið með og mest viðskipti við. Ég mun segja já við áframhaldandi viðræðum því ég vil fá samning á borðið. Ég treysti þjóðinni og vil ræða ESB út frá staðreyndum en ekki hræðsluáróðri einangrunarsinna. Því þannig eru hagsmunir Íslands best tryggðir. Höfundur er laganemi og situr í stjórn Ungra Evrópusinna sem og Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Undanfarið hefur verið fjallað um tengsl Sigmundar Davíðs og Miðflokksins við hópa tengda Trump-hreyfingunni vestanhafs. Þessi tengsl eru engin tilviljun. Miðflokkurinn og Trump eiga nefnilega margt sameiginlegt. Þeir ala á tortryggni gagnvart alþjóðasamstarfi og aðhyllast einangrunarhyggju og umbúðapólitík. Nú á að halda þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram viðræðum um aðild að Evrópusambandinu. Þetta er reyndar gamalt loforð Sigmundar Davíðs sem hann treysti sér ekki til að efna. Hann þorði ekki að leyfa þjóðinni að fá orðið. Þann 29. ágúst fær þjóðin loksins orðið. Við munum ekki kjósa um inngöngu í Evrópusambandið, heldur munum við fyrst kjósa um hvort við viljum afla meiri upplýsinga og fá samning á borðið svo við getum átt upplýsta umræðu um ESB. Einangrunarsinnar vilja hins vegar hræða þjóðina til að segja nei. Loka dyrum að nánara samstarfi við ríkin sem við eigum mesta samleið með og mest viðskipti við. Ég mun segja já við áframhaldandi viðræðum því ég vil fá samning á borðið. Ég treysti þjóðinni og vil ræða ESB út frá staðreyndum en ekki hræðsluáróðri einangrunarsinna. Því þannig eru hagsmunir Íslands best tryggðir. Höfundur er laganemi og situr í stjórn Ungra Evrópusinna sem og Uppreisnar, ungliðahreyfingar Viðreisnar.
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar