Hvernig ætlar Ísland að marka spor sín í hinum gervigreinda heimi? Sara Sigurðardóttir skrifar 12. mars 2026 09:30 Fyrir ekki svo löngu héldu eflaust margir að gervigreind væri fyrst og fremst áhugavert tæknitól. Hjálpartæki til að búa til plan fyrir ræktina eða hjálpa til við vikumatseðilinn. Hinn fullkomni stafræni aðstoðarmaður. En það hefur breyst hratt. Í raun svo hratt, að bara síðan í byrjun febrúar hefur verið talað um nýja tæknibyltingu. En það er of einfalt að líta á gervigreind sem eingöngu tæknimál sem hefur áhrif á störf í tæknigeiranum. Við erum að horfast í augu við eina stærstu umbreytingu okkar tíma, breytingu sem mun hafa mikil og varanleg áhrif á samfélagið okkar til framtíðar. Þetta er ekki bara tæknimál. Þetta er atvinnumál, menntamál, hagstjórnarmál, öryggismál, menningarmál, orkumál og margt fleira. Tækniheimurinn nánast nötrar af breytingum. Nú er komið að okkur hinum að opna augun betur. Hvernig snertir gervigreindin okkur? Við erum þegar farin að sjá áhrifin víða. Mikið hefur verið skrifað um nýjustu vendingar í þróun gervigreindar upp á síðkastið og atvinnulífið hamast við að ná utan um breytingarnar. En stjórnvöld virðast vera skrefi á eftir og rúmlega það. Á sama tíma og gervigreind er orðinn eitt stærsta vinnutæki og umræðuefni í öllum helstu geirum á heimsvísu þá virðist sem stjórnvöld hérlendis séu ekki byrjuð að huga almennilega að því hvaða risastóra hagsmunamál liggur þarna fyrir þjóðfélagið í heild sinni. Það sem við vitum nú þegar er að gervigreind er farin að leysa ótrúlega mörg tæknistörf af hólmi. Sú þróun mun halda hratt áfram og ná til fleiri atvinnugreina. Við sjáum líka áhrif gervigreindar í alþjóðlegum stjórnmálum. Hún hefur verið notuð í hernaði og árásum, í kosningabaráttum, í áróðri og til að búa til djúpfalsanir sem hefur haft áhrif á samfélagsumræðu og jafnvel á lýðræði. En áhrifin stoppa ekki þar. Þau munu fljótlega snerta okkur öll. Við þurfum að spyrja okkur sem samfélag spurninga eins og hvernig menntum við börnin okkar og kennara? Hversu tilbúin erum við fyrir breytingarnar sem munu eiga sér stað í atvinnulífinu? Hvaða hæfni verður mikilvægust fyrir stjórnendur og starfsfólk almennt? Hvernig verndum við gögnin okkar sem við treystum alþjóðlegum fyrirtækjum fyrir? Hvernig líta fjárfestingarnar út og orkumálin? Hvaða styrkleika hefur Ísland til að hlaupa áfram og vera leiðandi í byltingunni? Ég gæti haldið áfram. Mikilvægasta spurningin er samt, hvernig náum við að vinna með breytingunum, en ekki á móti þeim? Hvað getur gervigreindin raunverulega gert? Skólarnir eru í grófum dráttum tveir; þeir sem trúa að gervigreindin sé komin það langt að hún geti bráðum fengið algjörlega sjálfstæðan vilja og nánast tekið yfir heiminn, farið að rýna sjálfa sig og bæta og betra út í hið óendanlega. Og svo eru það þeir sem sem eru talsvert passívari og minna á að þetta er ennþá bara reiknilíkan sem ítrar og fullkomnar einungis það sem er þegar til og notað er til þjálfunar. Án tilfinninga, án uppgötvana og án sköpunar. Enginn sjálfstæður vilji og því ekkert að hræðast. Ef gervigreindin talar stundum eins og hún sé hér komin til að taka yfir, þá er það einungis vegna þess að hún hefur lært að hún geti sagt það vegna alls kyns skrifa á internetinu um að hún geti það. Hún lærir það sem við segjum og leggjum út á internetið, ekkert annað. Vegferðin framundan Þó þetta séu andstæðir pólar, þá eru sviðsmyndirnar eflaust mun fleiri og það er ekki mitt að segja eða geta mér til um hvert þessi þróun leiðir okkur. Það sem ég veit hins vegar og er óhjákvæmilegt er að við munum sjá meiriháttar breytingar á næstu mánuðum og árum sem munu halda áfram að hafa snjóboltaáhrif á samfélagið allt, skólana, atvinnulífið og stjórnmálin. Þetta mun breyta miklu hjá öllum. Þetta mun breyta hvernig við vinnum, hvernig við lærum, hvernig við hugsum, hvernig við tökumst á við vandamál og eflaust margt fleira sem við sjáum ekki fyrir í dag. Þess vegna þurfa stjórnendur og stjórnmálamennað sýna hugrekki og auðmýkt, og byrja ekki seinna en í dag að efla sína eigin hæfni og getu til að stíga inn í breytta heimsmynd, því þetta er alls ekki bara tæknimál. Það vantar samtal á stærra plani um samfélagsleg tækifæri og ógnir, og það vantar umfram allt skýrari fókus stjórnmálamanna gagnvart þessu risastóra hagsmunamáli. Þess vegna spyr ég; Hvernig ætlar Ísland að marka spor sín í hinum gervigreinda heimi? Höfundur er breytingarleiðtogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Gervigreind Mest lesið Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson Skoðun Nei-fólkið mitt, þið eruð svo sæt þegar þið hlýðið Viktor Ólason Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar Skoðun ESB, afsal eða útvíkkun á fullveldi? Karl Andersson Claesson skrifar Skoðun Kaupmáttur þjóðanna í Meistaradeild Evrópu Stefán Ólafsson skrifar Skoðun Nei-fólkið mitt, þið eruð svo sæt þegar þið hlýðið Viktor Ólason skrifar Skoðun Fyrirhuguð hækkun á máltíðum fyrir eldra fólk í Reykjavík Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Ekkert plan, engin sleggja Illugi Gunnarsson skrifar Skoðun Þetta er líka sagt af mikilli virðingu Ólafur Margeirsson skrifar Skoðun Afhverju ég ætla að segja JÁ Sverrir Páll Einarsson skrifar Skoðun Hvað vilja ólígarkarnir að þú kjósir 29. ágúst?" Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Hvar er heilbrigðiskerfið mitt? Gunnhildur Erla Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvað ef þú hefur rangt fyrir þér? Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Kolkrabbinn, sneiðarnar og eyðing byggðarinnar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Já, fyrir vísindi, nýsköpun og menningu Logi Einarsson skrifar Skoðun Viltu minni verðbólgu og lægri vexti? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sirkussleggja forsætisráðherra sló í bjölluna Sveinn Óskar Sigurðsson skrifar Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Hvernig bætum við lífsgæði síðustu 20-30 æviárin? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar Ólafur Ragnar Grímsson vísar veginn Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Greining SFS. Hver er óttinn? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Þú þarft ekki að vera ESB-sinni til að segja já Baldur Johnson skrifar Skoðun Sama framtíðarsýn í Reykjavík og Brussel Ingvar Sverrisson skrifar Skoðun Réttindi barna til framtíðar Guðrún Pétursdóttir,Brynjar Bragi Einarsson skrifar Skoðun Bæjarráð Hveragerðis krefst svara frá ríkinu um strætó Lárus Jónsson skrifar Skoðun Evrópusambandið og heilbrigðismál - saman værum við sterkari Alma D. Möller skrifar Skoðun Það sem raunverulega skiptir máli fyrir fólkið í landinu Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar Skoðun Hvar eru eigendur Icelandair? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Hálfgert vandræðabarn Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Að velja evruna fyrir sig en krónuna fyrir okkur hin Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar liggur ábyrgðin? Guðrún Ebba Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Áskorun til samningsaðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda um endurskoðunneysluvísitölu og brottfall húsnæðisliðar úr neysluvísitölu skrifar
Skoðun Evruna fyrir sig? Nei, Þórður Snær. Reikningsskil virka ekki þannig. Páll Steingrímsson skrifar
Skoðun Við eigum rétt á að kjósa, sama hvað þið segið Atli Már Haraldsson Zebitz,Sunna Dögg Ágústsdóttir,Sveinbjörn Benedikt Eggertsson skrifar