Clark fór á kostum í fyrsta landsleiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. mars 2026 12:31 Caitlin Clark sést hér gefa eina af tólf stoðsendingum sínum í leiknum. Getty/Edgardo Medina Bandaríska körfuboltakonan Caitlin Clark spilaði sinn fyrsta A-landsleik í gærkvöldi og um leið fyrsta keppnisleik sinn síðan hún meiddist í júlí síðasta sumar.
Clark er einn vinsælasti íþróttamaður Bandaríkjanna og þetta var í fyrsta sinn í næstum því níu mánuði sem fólk sá hana spila fyrir opnum tjöldum. Clark er í bandaríska landsliðinu sem er að taka þátt í undankeppni HM og liðið mætti Senegal í fyrsta leik. Mótspyrnan var ekki mikil því bandarísku konurnar unnu leikinn með 64 stiga mun, 110-46. Clark kom inn af bekknum í fyrsta landsleiknum en fór heldur betur á kostum. Hún skoraði ekki aðeins sautján stig á rúmum nítján mínútum því hún gaf einnig tólf stoðsendingar á félaga sína. Clark skaut þó aðeins fimm sinnum á körfuna en fjögur af fimm þriggja stiga körfum hennar rötuðu rétta leið. Rhyne Howard var stigahæst með 21 stig en hún setti niður sex þriggja stiga skot í leiknum. Kahleah Copper var síðan þriðja stigahæst á eftir Clark með tíu stig. „Ég hélt að ég yrði stressuð en ég var bara spennt,“ sagði Clark. „Ég er búin að undirbúa mig fyrir þetta í mjög langan tíma. Það er ekkert sem jafnast á við að fá að hlaupa um völlinn og hafa gaman, sérstaklega með jafn hæfileikaríkum hópi og þessum. Þetta kom nokkuð fljótt til mín, sérstaklega þegar ég náði að setja niður fyrsta þristinn,“ sagði Caitlin Clark. Í júlí í fyrra var Clark frá keppni um óákveðinn tíma vegna nárameiðsla og síðan kom beinmar á vinstri ökkla hennar í veg fyrir að hún gæti prófað að fullu bata nárameiðslanna. Indiana Fever tók hana úr umferð í september og hún hafði því ekki spilað alvöru leik síðan.
WNBA Mest lesið Marcus Rashford búinn að fá nóg Enski boltinn Eiður gaf Liverpool algjöra falleinkunn Enski boltinn Stjarnan rak þjálfarann í annað sinn í sumar Íslenski boltinn Kjartan svarar gamla stjóra sínum: „Ekki ánægjulegt að spila undir hans stjórn“ Fótbolti Mætti með seðlabúntin inn í klefa í sigurvímu Fótbolti Víkingur - Borac | Slagur um Sambandsdeild og hundruð milljóna Fótbolti Aðalþjálfarar KFG stýra Stjörnunni út tímabilið Íslenski boltinn Þrættu um kaup Arsenal á Bruno: „Ekkert rosalega hrifinn“ Enski boltinn „Versta ár ævi minnar“ Fótbolti Tveir látnir og sjö særðir eftir að maður ók niður hjólreiðalið Sport Fleiri fréttir Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Sjá meira