Flughræddur Dóri DNA fékk hrós frá flugfreyju Birgir Olgeirsson skrifar 12. mars 2026 16:41 Kjartan Atli, Dóri DNA og Danni Deluxe voru allir saman í rapphljómsveitinni Bæjarins Bestu sem naut vinsælda í kringum aldamótin síðustu. Þeir eru nú byrjaðir með hlaðvarpið Betri en flestir. aðsend Hlaðvarpið Betri en flestir hefur litið dagsins ljós en mennirnir á bak við það eru þeir Halldór Halldórsson (Dóri DNA), Kjartan Atli Kjartansson og Daníel Ólafsson (Danni Deluxe)
Þremenningarnir voru saman í rapphljómsveitinni Bæjarins Bestu sem naut vinsælda í kringum aldamótin síðustu. Þeir fengu hugmynd undir lok síðasta árs að vinna saman að hlaðvarpi og breyttu stofunni heima hjá Daníel í hljóð- og myndver, sem þeir kalla Stúdíó Sigurbraut. Í þessum þáttum ætla þeir félagarnir að fjalla um málefni líðandi stundar og koma út að minnsta kosti vikulega. Í fyrsta þættinum fara þeir yfir Evrópusambandsumræðuna, hvenær er best að fara í frí og hvernig frí er best að taka, gamla bíla sem þeir áttu og muninn á Evrópu og Bandaríkjunum. Þeir ræða meðal annars flughræðslu en þeir Kjartan Atli og Dóri voru eitt sinn mjög flughræddir. Þátturinn á að koma út í það minnsta vikulega og verður fjallað um málefni líðandi stundar. Vísir/aðsend Dóri segir meðal annars frá flugi sínu um vesturströnd Bandaríkjanna, en þá var mikil ókyrrð í lofti. Dóri fann sig tilneyddan til að segja einni flugfreyjunni frá líðan sinni og fékk við lendingu hrós í kallkerfi vélarinnar: „A special little thank you to a brave little someone, you know who you are.“ Dóri beinir svo orðum sínum að Kjartani Atla: „Ég man þegar þú varst flughræddur eins og persóna í teiknimynd.“ Kjartan Atli segist hafa sigrast á sinni flughræðslu þegar hann flaug sem þjálfari með lið 13 ára drengja í keppnisferðalagi til Egilsstaða. „Ég hugsaði bara, ég þarf að vera sterkur hér. Ég get ekki sýnt þeim að ég sé flughræddur. Þá bara gleypti ég flughræðsluna.“
Hlaðvörp Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Fleiri fréttir Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Sjá meira