Þorgerður Katrín treystir ekki þjóðinni Hjörvar Sigurðsson skrifar 13. mars 2026 09:46 Ég hef óbeit á því að beita popúlískum málflutning eins og þeim sem einkennir titil þessarar greinar. Þó finn ég mig knúinn til þess vegna þess að þetta er því miður planið sem utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín, hefur markvisst ákveðið að halda umræðunni á. Þetta gerir hún með því að víkja sér undan málefnalegri gagnrýni, eða einföldum spurningum, með ódýrum dylgjum um að sá sem kynnir gagnrýnina eða spyr spurningannar treysti ekki þjóðinni – þ.e. að hann sé óvinur þjóðarinnar. Þetta er kjarni popúlisma. Þorgerður segist treysta þjóðinni á sama tíma og hún heldur frá henni upplýsingum eða jafnvel veitir henni misvísandi upplýsingar. Þetta gerir hún í hvert sinn sem hún heldur því fram að þjóðaratkvæðagreiðslan snúist um að „kíkja í pakkann“, „skoða hvað býðst“, o.s.frv. Með þessari framsetningu kyndir hún undir þann misskilning sem finnst víða meðal almennings um að aðildarviðræðurnar séu eiginlegar viðræður. Hún veit auðvitað að svo er ekki. Samt velur hún að haga orðræðu sinni með þeim máta að hann hvetur fólk til þessa misskilnings. Í þingsályktunartillögu Þorgerðar stendur eftirfarandi um ferlið í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu verði niðurstaðan áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið: „Í kjölfarið færu formlegar aðildarviðræður fram þar sem unnið yrði út frá samningsmarkmiðum sem Ísland hefði sett sér, en nánar er fjallað um þann þátt í 5. kafla. Aðildarviðræðum er skipt upp í viðræður um skilgreinda samningskafla samkvæmt viðræðufyrirkomulagi sem sambandið hefur sett sér.“ [1] Formlegar aðildarviðræður er vel skilgreint ferli. Skilgreining Evrópusambandsins er mjög einföld (þýðingar eru mínar eigin): „Í aðildarviðræðum undirbýr umsóknarríkið innleiðingu laga og staðla Evrópusambandsins, einnig þekkt sem acquis.“ [2] „Umsóknarríkið fer þá í formlegar aðildarviðræður, ferli sem felur í sér upptöku gildandi laga Evrópusambandsins, undirbúning til að geta beitt þeim og framfylgt þeim á réttan hátt, og innleiðingu dómsmála-, stjórnsýslu-, efnahags- og annarra umbóta sem nauðsynlegar eru til að landið uppfylli skilyrðin fyrir aðild, svokölluð aðildarskilyrði.“ [3] Þorgerður leggur það fyrir almenning að kjósa um áframhaldandi aðildarviðræður en vill ekki veita almenningi réttar upplýsingar um hvað það felur í sér. Þetta er grafalvarlegt. Samfélagsmiðlar loga af athugasemdum á borð við: „Að kjósa já í þessum kosningum mun ekki leiða til neinna breytinga fyrir þig eða mig eins og er.“ „Það er bara verið að kjósa um að setjast að samningsborðinu og sjá hvað við getum fengið(undanþágur og fleira).“ „Sé ekkert að því að kjósa já við aðildarviðræðunum, vil sjá hvað er í boði (þessi erfiðu atriði sem snerta okkur mest).“ „Þjóðaratkvæðagreiðslan er bara um hvort við ættum að ræða meira við esb og semja um skilyrði.“ „Ég segi já við að kíkja í pakkann og sjá hvað verður í boði “ „Megum við hin enn fá að sjá samninginn minn kæri og taka upplýsta ákvörðun?“ Þetta er hinn almenni skilningur á þjóðaratkvæðagreiðslunni í ágúst. Væri það svo að Þorgerður vildi að fólk hefði réttar upplýsingar, og veitti atkvæði á réttum forsendum, þá myndi hún gera annað af eftirfarandi: A) Leiðrétta þennan víðtæka misskilning fólks og útskýra að í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslunnar mun taka við tímabil breytinga á dómsmála-, stjórnsýslu- og efnahagsmálum Íslands, full innleiðing á regluverki Evrópusambandsins sem og viðamikil uppbygging stofnanna á vegum ríkisins. B) Útskýra nákvæmlega hvernig þær „formlegu aðildarviðræður“ sem hún nefnir eru frábrugðnar formlegum aðildarviðræðum í skilningi Evrópusambandsins og lofa því í lagabindandi formi að á milli fyrri og seinni þjóðaratkvæðagreiðslu verði ekki farið í neina aðlögun að regluverki Evrópusambandsins. Þar til hún gerir annað hvort er niðurstaðan augljós og hún er ljót. Hún er sú að Þorgerður Katrín, utanríkisráðherra Íslands, er markvisst að blekkja þjóðina til þess að fá þá niðurstöðu í þjóðaratkvæðagreiðslunni sem hún vill. Ég vil ekki trúa þessu. Ég vil ekki trúa því að Þorgerður sé tilbúin að blekkja almenning til þess að svíkja forfeður sína og komandi kynslóðir með því að láta það kjósa undan sér fullveldið á röngum forsendum. Því biðla ég til Þorgerði Katrínu að gera hið rétta í stöðunni og annað hvort leiðrétta þennan misskilning fólks að engin aðlögun muni eiga sér stað eftir fyrri þjóðaratkvæðagreiðsluna eða fullvissa almenning um að engin aðlögun muni eiga sér stað fyrr en eftir seinni þjóðaratkvæðagreiðsluna. Sömuleiðis biðla ég til fjölmiðla að krefjast þess af henni. Það er jákvætt að vilji þjóðarinnar fái að ganga fram. Til þess verður þó að vera skýrt um hvað verið er að kjósa. Höfundur er tölvunarfræðingur. [1] https://www.althingi.is/altext/157/s/0875.html [2] https://european-union.europa.eu/principles-countries-history/eu-enlargement_en [3] https://enlargement.ec.europa.eu/enlargement-policy/steps-towards-joining_en Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar