Hesturinn í umferðinni Ólafur Gestur Arnalds skrifar 13. mars 2026 13:30 Þegar bíll situr pikkfastur í forarpytti er um að gera að stíga inngjöfina í botn og reyna að komast dýpra út í fenið. Eða hvað? Þegar stór hluti þjóðarinnar situr fastur í umferðarteppu daginn langan, þá er náttúrulega um að gera að fjölga bara bílum í umferðinni. Með svona 70-100 bílum á viku eins og nú er. Og lengja hinar yndislegu stundir í þvögunni – taka slökunaræfingar, jógaöndun og hlusta á spekingana í útvarpinu úthúða áætlunum um bættar almenningssamgöngur. Borgarlínu. Náttúruheimspekingurinn Edward Abbey skilgreindi kúreka sem mann sem situr á hesti og horfir á afturendann á beljum allan daginn. Hann sá ekkert rómantískt við það. Bílar hafa verið hluti af lífinu alla mína tíð. En mér finnst betra að bíllinn hreyfist – það er eiginlega hugmyndin á bak við þá ágætu uppfinningu, bifreiðina. Að sitja lengi starandi á afturendann á næsta bíl í umferðarþvögu, ja – það er eins og þetta með kúrekann. Ekki heillandi hugmynd. Það er annars merkilegt hvað Íslendingar eru fundvísir á að apa upp mistök annarra þjóða en horfa fram hjá því sem vel er gert. Almenningssamgöngur eru víðast taldar meðal mikilvægustu lífsgæðanna í borgum Evrópu. En við viljum náttúrulega ekki svona lausnir, vitum betur, þar sem við sitjum föst í bílahrúgunni, gott ef sjáum ekki í hyllingum hestvagna og hrossaskít á drullufor gatnakerfisins um þarsíðustu aldamót. Já, það er þetta með „hestinn“... Ég er búinn að hlakka lengi til að fá góðar almenningssamgöngur. En hef nú tekið þann pól í hæðina að nenna ekki lengur að ræða Borgarlínuna og allt það. Þið sem viljið horfa á afturljósin á næsta bíl allan daginn: verði ykkur að góðu. Það er hópur fólks, aðallega eldra karlar á atkvæðaveiðum, sem hefur trumpað umræðu um betri samgöngur og látið skynsemina lönd og leið, enda er hún ekki vænlegur útgangspunktur í stjórnmálum nútímans. Við kjósum yfir okkur það fólk sem við eigum skilið. En „hesturinn“ er ekki minn kostur. Ég keypti rafmagnshjól í gær. Höfundur er fyrrverandi prófessor og áhugamaður um bættar almenningssamgöngur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar