Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. mars 2026 15:26 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra. vísir/ívar fannar Dómsmálaráðuneytið er í samningaviðræðum við Háskóla Íslands um framkvæmd íslenskuprófa svo erlendir ríkisborgarar geti sótt um íslenskan ríkisborgararétt. Samningur þess við Miðstöð menntunar og þjónustu rann út um áramótin.
Stefán Pálsson, varaborgarfulltrúi Vinstri grænna, vakti athygli á að mikil eftirsókn væri eftir því að taka íslenskupróf til að sækja um ríkisborgararétt. Tvö próf væru ár hvert og hefði verið uppbókað í næsta próf fáeinum dögum eftir að opnað var fyrir skráningu. Í uppfærðri færslu á Facebook vakti hann síðan athygli á því að hann hafi fengið símtal frá starfsmanni Útlendingastofnunar sem sagði að samningi um fyrirlögn prófanna hefði verið sagt upp og því hefði ekki verið hægt að ákveða hvernig ætti að hátta næstu prófum. „Starfsmaðurinn viðurkenndi að þetta væri auðvitað mjög óheppileg staða, en sagðist vonast til þess að planið væri fremur að fjölga þessum prófum en hitt,“ segir í færslu Stefáns. Samkvæmt svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn fréttastofu hefur Miðstöð menntunar og skólaþjónustu séð um prófið síðustu ár. Miðstöðin var með samning við einkaaðila á borð við Mími um fyrirlögn prófanna en séð sjálf um þróun og yfirferð þeirra en hafi síðan sagt upp samningnum við dómsmálaráðuneytið. „Dómsmálaráðuneytið leitaði til Háskóla Íslands með það í huga að semja um framkvæmd íslenskuprófa. Samningsgerð milli ráðuneytisins og háskólans er á lokametrunum og stefnt er að því að unnt verði að halda prófin í byrjun sumars,“ segir í svarinu. Ráðuneytið sé ekki með töluleg gögn um hversu margir bíði eftir því að þreyta prófið þar sem á meðan verið er að semja um framkvæmd prófanna sé ekki opið fyrir umsóknir. Á síðasta ári þreyttu alls 1376 einstaklingar prófið en 952 árið áður. Þeim hefur fjölgað talsvert en árið 2022 voru próftakar 724 og 799 árið 2023.
Ríkisborgararéttur Íslensk tunga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Háskólar Skóla- og menntamál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira