Innlent

Á­rekstur við Suður­lands­braut

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla var að störfum á mótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegi skömmu fyrir níu í morgun.
Lögregla var að störfum á mótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegi skömmu fyrir níu í morgun. Vísir

Árekstur varð á mótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegar í Reykjavík á níunda tímanum í morgun.

Einhverjar umferðartafir voru um tíma og mátti þar sjá lögreglumenn að störfum. 

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins kom málið ekki inn á þeirra borð svo að ekki virðist hafa orðið slys á fólki. 

Lögregla gat ekki gefið upplýsingar um málið þegar eftir því var leitað.  




Fleiri fréttir

Sjá meira


×