Gengishækkun bréfa ISB vegna mikilla endurkaupa var „ekki forsendubrestur“
Þegar samið var um helstu skilmála samruna Íslandsbanka og Skaga í október, meðal annars með því að festa gagngjaldið til hluthafa Skaga í tilteknum fjölda hluta, var gert ráð fyrir áframhaldandi kaupum bankans á eigin bréfum sem hafði „óhjákvæmilega áhrif til hækkunar“ á hlutabréfaverðinu, að sögn stjórnarformanns Skaga. Hann segir það hafa verið „veruleg vonbrigði“ þegar Íslandsbanki setti fram kröfur um mikla lækkun á gagngjaldinu á grundvelli ólíkrar þróunar á markaðsvirði félaganna sem hafi ekki átt sér stoð sem ein forsenda breytinga á samkomulaginu.
Tengdar fréttir
Telur stjórnarmenn þurfa að útskýra fyrir hluthöfum breytta afstöðu til samruna
Fjárfestirinn Bjarni Ármannsson segist „ekki trúa öðru“ en að stjórnir Íslandsbanka og Skaga muni á aðalfundi félaganna í komandi viku gera efnislega grein fyrir því gagnvart hluthöfum af hverju samrunaviðræðum var slitið og kallar eftir því að lífeyrissjóðir hafi skoðun á slíkum „strategískum ákvörðunum.“ Þá er Bjarni, annar stærsti hluthafi Skaga, afar gagnrýninn á að ekki hafi verið upplýst um hvaða fjárfestar voru í samfloti með Heiðari Guðjónssyni þegar óskað var eftir hluthafafundi í Íslandsbanka í því skyni að efna til stjórnarkjörs og segir slíka „leyndarhyggju ekki vera í lagi“ þegar um sé að ræða kerfislega mikilvægan banka.
Einkafjárfestarnir sem vilja leiða Heiðar til forystu í stjórn Íslandsbanka
Heiðar Guðjónsson, sem fer fyrir hópi sem telur á annan tug einkafjárfesta, hélt áfram að stækka stöðu sína í Íslandsbanka nokkrum dögum áður en hann fór fram á að boðað yrði til hluthafafundar þar sem hann ætlar að sækjast eftir stjórnarformennsku núna þegar félagið er í samrunaviðræðum við Skaga. Þótt beinn stuðningur við Heiðar komi einkum úr röðum umsvifameiri einkafjárfesta, sumir hverjir sem tengjast honum nánum böndum eins og Andri Sveinsson, þá eru einnig ýmsir lífeyrissjóðir sagðir áfram um að hann geri sig gildandi í stjórn bankans.
„Ekki mikill vilji“ meðal hluthafa að samruninn við Skaga klárist óbreyttur
Nýkjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka telur „allt í lagi líkur“ á því á að boðaður samruni við Skaga muni klárast, en tekur hins vegar fram að hann telji að það sé „ekki mikill vilji“ fyrir því á meðal hluthafa að viðskiptin muni ganga í gegn óbreytt frá því sem um var samið á síðasta ári.