Ísland í eigin skinni Rósa Líf Darradóttir skrifar 18. mars 2026 12:02 Kveikur sýndi í gær myndefni frá íslenskum minkabúum sem sýnir ömurlegan veruleika loðdýraræktar. Tilvera minka í loðdýraeldi er sú dapurlegasta sem hugsast getur. Frá fæðingu til dauðadags dvelur minkurinn í þröngu vírnetsbúri. Eina afþreying sem er í boði er ráfa í tilgangslausa hringi á þessu takmarkaða svæði. Fætur hans fá aldrei að hvíla á öðru undirlagi en mjóum vírunum. Það er minkum eðlislægt að hlaupa, leika, grafa, synda og kanna umhverfi sitt. Þegar dýr fá ekki tækifæri til að sýna sitt eðlilega atferli þá er útkoman er þá þessi: Streita, vanlíðan, sjálfskaðahegðun sem brýst út í nagi, að éta og naga eigin líkama, skott eða útlimi, síendurteknar hringferðir um búrið, leiði og taugaveiklun. Loðdýraeldi hefur árum saman hefur þurft á opinberum stuðningi að halda til að halda sér á floti. Iðnaður sem veldur mengun, fnyk og endurteknum usla fyrir nágranna. Á síðasta minkabúi landsins hafa eftirlitsaðilar ítrekað gert athugasemdir við reksturinn og ítrekuð brot á lögum um velferð dýra og reglugerð um velferð minka átt sér stað. Þar hefur meðal annars verið bent á: að ekki sé til áreiðanleg skrá yfir fjölda dýra að þjálfun starfsfólks sé ekki skráð að hæfnisskírteini til neyðaraflífunar vanti að dýr fái ekki fóðrun samkvæmt reglum að minkar sleppi ítrekað að dýr hafi merki um sjálfsskaða og alvarleg sár að veik dýr fái ekki viðeigandi meðhöndlun, meira að segja tilvik þar sem beinendi stóð út úr opnu sári að umhverfisauðgun vanti Matvælastofnun hefur metið búið í versta áhættuflokki og meira að segja rætt um lokun þess vegna ástandsins. Á sama tíma hefur þetta bú svokallaða WelFur vottun sem á að votta góða meðferð dýranna. Íslensk stjórnvöld verja opinberu fé í að borga fyrir veiðar á mink til að sporna við fjölgun hans enda skilgreindur sem framandi ágeng tegund í íslenskri náttúru. Á sama tíma er fjöldaframleiðsla á mink að eiga sér sem stað á búi þar sem hann ítrekað sleppur út í umhverfið. Þetta gengur einfaldlega ekki upp. Sífellt stækkar hópur þeirra landa sem hafa bannað loðdýrarækt á grundvelli dýravelferðar og náttúruverndar. Nú síðast var það Pólland, en landið er næst stærsti framleiðandi loðskinna á eftir Kína. Ísland á auðvitað að slást í hópinn. Það væri mikilvægt fyrir íslenska náttúru og þúsundir dýra sem enn þjást á síðasta loðdýrabúi landsins. Við einfaldlega vitum betur, svona meðferð á dýrum á ekki að líðast. Klárum málið og hvetjum íslensk stjórnvöld til að loka þessum ljóta kafla. Samtök um dýravelferð hafa því hrint af stað herferð til hvatningar um endanlegt bann við loðdýraeldi á Íslandi. Vinir okkar hjáHumane World for Animals styðja herferðina og leggja sitt af mörkum til að vekja athygli á málinu á alþjóðavettvangi. Verum bara í okkar eigin skinni! Undirskriftalista má nálgast hér Höfundur er læknir og formaður Samtaka um dýravelferð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rósa Líf Darradóttir Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar