„Ekki endilega það sem maður vildi“ Valur Páll Eiríksson skrifar 18. mars 2026 12:02 Stiven er klár í slaginn og ætlar að sýna sig og sanna í komandi leikjum við Svía. Vísir/Bjarni „Ég er helvíti illa sofinn. Ég flaug yfir í nótt og lenti um klukkan fjögur,“ sagði Stiven Tobar Valencia þegar Sýn bar að garði á fyrstu æfingu karlalandsliðsins á mánudagsmorgun fyrir komandi leiki við Svía hér heima. „
Það er bara mikil tilhlökkun. Það er alltaf gaman koma heim og hitta strákana. Það er búið að vera mikið álag í félagsliðinu en gott að koma heim og anda aðeins,“ segir Stiven. Klippa: Stiven smá þreyttur en klár í slaginn Stiven var utan leikmannahóps Íslands sem fór á EM í janúar eftir að hafa farið á EM 2024 og HM 2025. Bjarki Már Elísson og Orri Freyr Þorkelsson voru valdir fram yfir hann í vinstri hornamannastöðuna fyrir nýliðið mót og eðlilega voru vonbrigði að fara ekki með á mótið. „Þetta var ekki endilega það sem maður vildi en maður studdi strákana. Ég var mjög ánægður með þá og studdi við bakið á þeim alla leið og í hverju einasta skrefi sem þeir tóku á þessu móti,“ segir Stiven. En er þá ekki kjörið tækifæri núna í leikjunum við Svía að vinna sér aftur inn sæti í hópnum? „Jú, klárlega,“ segir Stiven sem tekur sæti Bjarka Más í hópnum fyrir komandi leiki vegna meiðsla hans. Bjarki æfir með liðinu en mun ekki taka þátt í leikjunum tveimur. Varðandi hvað menn vilji fá út úr komandi leikjum segir Stiven: „Þetta eru tveir mjög erfiðir leikir við Svíþjóð og við þurfum að spila mjög vel á móti þeim til að ná þessum tveimur sigrum. Við ætlum að ná eins miklu og við getum út úr þessum tveimur leikjum.“ Ísland mætir Svíþjóð að Hlíðarenda klukkan 19:30 annað kvöld og svo aftur í Kaplakrika klukkan 17:00 á laugardaginn kemur. Viðtalið má sjá í spilaranum að ofan.
Landslið karla í handbolta Mest lesið Blaðamannafundi lauk skyndilega með sorglegum fréttum Fótbolti Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Hvað er að gerast hjá Manchester United? Enski boltinn Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Már getur andað aftur: „Ég bara man eiginlega ekki eftir þessari tilfinningu“ Sport „Ég er farinn“ Íslenski boltinn „Leyfið börnunum að vaka“ Fótbolti Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira