Úrgangur frá sjókvíaeldi samsvarar skólpi frá allt að tífaldri íbúatölu Noregs Jakob Bjarnar skrifar 18. mars 2026 11:55 Paul Larsson afbrotafræðingur og prófessor við Lögregluháskólann í Osló flytur erindi í Lögbergi í dag en hann fjallar um sjókvíaeldi í sjó við Noregsstrendur. Hann telur ótvírætt að um glæpi gegn náttúrunni sé að ræða. „Spurningin er hvernig við gátum látið þetta gerast,“ segir Paul Larsson, afbrotafræðingur og prófessor við Lögregluháskólann í Osló, um stöðu sjókvíaeldisiðnaðarins í Noregi.
Larsson flytur erindi á málstofu í Lögbergi í dag sem verður í beinu streymi hér á Vísi klukkan 17 en hann hefur rannsakað „glæpi gegn náttúrunni“ og fjallar í erindi sínu um störf fyrirtækja í Noregi sem stunda laxeldi í sjó, þar á meðal meðferð þeirra á eldislöxunum og heimild þeirra til að losa allan úrgang frá starfseminni óhreinsaðan í hafið. „Úrgangur frá sjókvíaeldi í Noregi sem er losað beint í sjóinn samsvarar skólpi frá átta- til tífaldri íbúatölu Noregs. Ein meðalstór sjókvíaeldisstöð ein og sér losar úrgang á við borg með 50.000 íbúa,“ segir Larsson í tilkynningu. Hann bendir á að árið 2018 hafi losun fosfórs frá sjókvíaeldi verið 45 sinnum meiri en frá öllum öðrum norskum iðnaði samanlagt, á sama tíma hafi losun köfnunarefnis mælst 24 sinnum meiri en hjá öðrum iðnaði samanlagt. Afleiðingarnar eru firðir sem glími við súrefnisskort og þéttar þörungabreiður. Lög sniðin að þörfum iðnaðarins Skýringarnar á því af hverju staðan er þessi segir Larsson vera að lög og reglugerðir í Noregi hafi verið hannaðar til að greiða götu iðnaðarins, ekki til að vernda umhverfið. Eftirlitið er að mestu leyti „innra eftirlit“ fyrirtækjanna sjálfra á sama tíma og opinberar eftirlitsstofnanir glíma við fjárskort og eru undirmannaðar. „Í Noregi eru til dæmis um 230 seiðaeldisstöðvar. Norska blaðið Dagbladet afhjúpaði á sínum tíma að eftirlitsaðilar hafi aldrei heimsótt þriðjung þeirra. Þegar fulltrúar eftirlitsins mæta loksins í eftirlitsferð hafa fundist frávik í níu af hverjum tíu tilfellum.“ Larsson bendir á að iðnaðurinn sé nánast vaxinn ríkinu yfir höfuð. „Fyrirtækin reka öfluga hagsmunagæslu og má segja að þau stýri nánast stjórnmálunum. Þau taka gagnrýni illa og fara hart í eftirlitsaðila.“ Spurning er hvort þetta sé „kúreka-menning“ eða úthugsuð hegðun bætir Larsson við. Umhverfisglæpir færast inn á radarinn Síðastliðið haust tók Efnahagsbrotadeild Noregs (Ökokrim) umhverfisglæpi í fyrsta skipti inn í árlega áhættumatsskýrslu sína og nefndi sérstaklega brotastarfsemi fyrirtækja sem stunda sjókvíaeldi á laxi við Noreg. Eins og áður segir verður Vísir með beint streymi frá fundinum en málstofan fer fram í fyrirlestrarsal Lögbergs, L101, Háskóla Íslands, og hefst klukkan 17. Viðburðurinn er í boði Íslenska náttúruverndarsjóðsins og Verndarsjóðs villtra laxastofna. Að sögn Jóns Kaldals, talsmaður Íslenska náttúruverndarsjóðsins, sem verður fundarstjóri á eftir, hefur þessi þáttur brotastarfsemi notið vaxandi athygli og hefur Europol, löggæslustofnun Evrópusambandsins, vakið athygli á að skipulagðir glæpir gegn umhverfinu geti verið jafn ábatasamir og viðskipti með fíkniefni. Að loknu erindi Larsson verða panelumræður þar sem hann mun sitja fyrir svörum með þátttöku gesta í sal.
Sjókvíaeldi Lax Umhverfismál Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira