Frábært að sleppa við austantjaldið Valur Páll Eiríksson skrifar 19. mars 2026 15:03 Einar Þorsteinn Ólafsson fagnar góðri æfingaviku og stórleikjum hér heima. Vísir/Bjarni „Ég held þetta sé sérstaklega ljúft núna að ná heilli viku hérna heima á Íslandi. Það er ógeðslega mikil snilld,“ segir Einar Þorsteinn Ólafsson, landsliðsmaður í handbolta. Íslenska liðið hefur nýtt tímann vel til æfinga í vikunni og mikil spenna er fyrir leik við Svíþjóð í kvöld.
Ísland náði besta árangri liðsins í 16 ár þegar liðið lenti í fjórða sæti á EM karla í handbolta í janúar. Einar segir hafa tekið tíma að venjast daglegu lífi eftir þá keyrslu en fagnar því að koma heim og hitta hópinn aftur. Klippa: Fínt að sleppa við að fara austur fyrir tjaldið „Það tók alveg smá tíma að ná sér niður eftir þá spennu. Einmitt þegar maður var kominn í smá rútínu er maður núna mættur aftur. En ég ætla ekki að kvarta, það er alltaf frábært að vera hérna,“ „Ég held það séu allir rosalega spenntir og ánægðir að fá að taka toppleiki á Íslandi sem gerist ekki oft. Þetta er kannski smá sérstakt verkefni núna. Ég er persónulega ótrúlega spenntur,“ segir Einar Þorsteinn. Ísland mætir Svíþjóð í kvöld og aftur á laugardag. Það hefur ekki gerst oft undanfarin ár að Ísland fái heimaleiki í landsliðsgluggum og heyra má á landsliðsmönnum að þeir fagna því mjög. „Að fá Svíana, það er geggjað að þeir hafi nennt að koma. Svo verður geggjað að fá að spila heima með Íslendinga í stúkunni og geggjuð stemning,“ segir Einar. Það sé sérlega gott að spila báða leikina hér heima og ná góðri æfingaviku fyrir leikina. Vegna góðs árangurs í janúar sleppur Ísland við forkeppni fyrir HM á næsta ári og fær þess í stað æfingaleiki við sterkar þjóðir. „Eftir svona mót vill maður halda rytmanum og stiginu, að spila á móti svona góðu liði. Að við séum ekki að fara í þessa grínleiki og geggjað að vera ekki að fara í forkeppnina og þurfa að fara eitthvað til Austur-Evrópu. Það er betra að vera bara hér, vera allir saman og tengjast enn meira,“ segir Einar. Viðtalið má sjá í spilaranum. Ísland og Svíþjóð mætast klukkan 19:30 í kvöld. Leikurinn fer fram á Hlíðarenda og verður lýst í beinni textalýsingu hér á Vísi.
Landslið karla í handbolta Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira