Rannsökuðu meint kynferðisbrot á leikskóla Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 23. mars 2026 11:06 Um er að ræða leikskólann á Flúðum. Vísir/Vilhelm Lögreglan á Suðurlandi hafði til rannsóknar tilkynningu um meint kynferðisbrot á leikskólanum á Flúðum fyrr á árinu. Enginn er með réttarstöðu sakbornings en starfsmanni var vikið úr starfi meðan á rannsókninni stóð. „
Ég get staðfest að lögreglan á Suðurlandi fékk mál til rannsóknar nýverið, kynferðisbrot í leikskóla á Suðurlandi. Það var tekið til rannsóknar en enginn er með réttarstöðu sakbornings í því máli í dag,“ segir Rúnar Steingrímsson, lögreglufulltrúi hjá lögreglunni á Suðurlandi. Rúnar staðfestir að málið hafi verið til rannsóknar á þessu ári en henni sé lokið. Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps, staðfestir að slíkt mál hafi komið upp á Flúðum og á meðan rannsókn stóð var starfsmanninum vikið úr starfi. Hann hefur ekki snúið aftur að rannsókninni lokinni. Einungis einn leikskóli er á Flúðum, Undraland. Fyrir tæpum tveimur vikum var haldinn fundur með öllum foreldrum barna á leikskólanum og greint frá rannsókninni. Að sögn Aldísar, sem var viðstödd fundinn, var fólki brugðið en telur hún að haldið hafi verið vel utan um hópinn. Foreldrunum var boðin sérstök aðstoð. Aldís ítrekar að rannsókninni sé lokið og að enginn sé með réttarstöðu sakbornings. Síðustu mánuði hefur ítrekað verið fjallað um meint kynferðisbrot gagnvart leikskólabörnum af hálfu starfsmanna. Í síðustu viku var greint frá því að starfsmaður leikskóla á Akranesi væri grunaður um kynferðisbrot gegn barni og hefur starfsmaður leikskólans Múlaborgar verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni. Í gær var greint frá því að Barnavernd Garðabæjar skoði hvort framið hafi verið brot á barnaverndarlögum á leikskólanum Krakkakoti á Álftanesi.
Hrunamannahreppur Ofbeldi gegn börnum Börn og uppeldi Leikskólar Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira