Valdið færi annars til Brussel Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 23. mars 2026 06:02 Varanlegar undanþágur frá yfirstjórn Evrópusambandsins (e. opt-outs) væru eina leiðin til þess að Ísland gæti haldið yfirráðum yfir tilteknum málaflokkum ef til inngöngu landsins í sambandið kæmi. Til dæmis sjávarútvegs- og orkumálunum. Auðlindum þjóðarinnar. Hins vegar hafa umsóknarríki að Evrópusambandinu aldrei fengið slíkar undanþágur. Einungis hér áður ríki sem voru þegar í sambandinu og við sérstakar aðstæður. Þá er slíkt ekki í boði lengur eins og Heather Grabbe, sérfræðingur við Bruegel-hugveituna í Brussel, benti á í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins þann 6. marz síðastliðinn. Hið sama kom fram í máli Andrésar Péturssonar, fyrrverandi formanns Evrópusamtakanna, forvera Evrópuhreyfingarinnar, núverandi samtaka hérlendra Evrópusambandssinna, á í grein sem birt var á Vísi fyrr í vikunni þar sem sagði: „Við þurfum sérlausnir – ekki undanþágur. Munurinn skiptir öllu máli. Svokallað opt-out þýðir að ríki sleppir heilum málaflokkum í regluverki ESB. Danir fengu slíkar undanþágur á sínum tíma, til dæmis frá evrunni. En þetta kerfi er lokað. Ný aðildarríki fá ekki slíkar undanþágur – punktur. Það sem er hins vegar í boði eru sérlausnir innan regluverksins.“ Svonefndar sérlausnir, eins og hérlendir Evrópusambandssinnar vilja tala um en Evrópusambandið kallar sérstakar aðlaganir, fela aðeins í sér afmarkaðar breytingar í undantekningartilfellum á stjórnsýslu innan regluverks sambandsins samkvæmt gögnum þess og breyta engu um það að yfirstjórnin yfir viðkomandi málaflokki, valdið yfir honum, fer til Brussel. Hér er á ferðinni algert lykilatriði í umræðunni um Evrópusambandið og mikilvægt að fólk geti áttað sig á þeim grundvallarmuni sem þarna er á milli. Andrés á góðar þakkir skildar fyrir að hafa lagt sitt að mörkum í þeim efnum. Dæmin um sérstakar aðlaganir, sem umsóknarríki að Evrópusambandinu hafa fengið og Andrés nefnir, eru öll þessu marki brennd. Til að mynda heimskautalandbúnaður Finnlands og Svíþjóðar sem heimilar þeim að styrkja landbúnað sinn norðan 62. gráðu norðlægrar breiddar úr vösum eigin skattgreiðenda til viðbótar við styrki sambandsins. Hins vegar er aðeins kveðið á um hámark í þeim efnum en ekkert lágmark. Fyrir vikið er í höndum Evrópusambandsins að ákveða hversu mikið ríkin megi styðja landbúnaðinn og sá styrkur getur því farið niður í núll með breyttri stefnu eða löggjöf þess. Við getum einnig tekið dæmi Andrésar um sjávarútveg Möltu. Maltverjar fóru fram á undanþágu frá reglu Evrópusambandsins um jafnan aðgang að sameiginlegri efnahagslögsögu sambandsins en fengu neitun. Niðurstaðan varð sérstök aðlögun sem breytti engu um jafnan aðgang frekar en að yfirstjórn sjávarútvegsmála eyríkisins færi til Brussel. Byggir hún á því að einungis bátar af ákveðinni stærð megi veiða í 25 mílna lögsögu þess vegna verndarsjónarmiða en fiskistofnar þar eru flestir ofveiddir. Erlendar útgerðir telja einfaldlega ekki hagkvæmt að senda þangað báta af umræddri stærð. Vert er að hafa í huga að vægi ríkja innan Evrópusambandsins tekur allajafna fyrst og fremst mið af íbúafjölda þeirra. Ekki sízt í ráðherraráði sambandsins þar sem vægi Íslands yrði fyrir vikið um 0,08% eða á við 5% hlutdeild í einum þingmanni á Alþingi. Þar á meðal þegar teknar væru ákvarðanir um sjávarútvegs- og orkumál landsins. Um þetta yrði ekki samið. Nýverið komu fjölmennustu ríki Evrópusambandsins í veg fyrir það í ráðinu að staðið væri við samning sem Írland hafi gert við sambandið í sjávarútvegsmálum. Írar eru þó 5,4 milljónir, um 14 sinnum fjölmennari en við Íslendingar. Fram hefur komið í máli Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra og formanns Viðreisnar, flokks Andrésar, að markmiðið sé að Ísland haldi fullum yfirráðið yfir sjávarútvegamálum landsins komi til inngöngu í Evrópusambandið. Hið sama hefur komið fram í máli Kristrúnar Frostadóttur forsætisráðherra. Hins vegar er það ekki mögulegt sem fyrr segir nema með varanlegri undanþágu frá yfirstjórn Brussel í málaflokknum sem er ekki í boði fyrir umsóknarríki eins og Andrés áréttaði í greininni sinni. Hver er þá tilgangurinn með því að hefja umsóknarferli að sambandinu? Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar