Öllu flugi dagsins aflýst Árni Sæberg skrifar 20. mars 2026 11:52 Flugvélar Icelandair taka ekki á loft í dag. Vísir/Vilhelm Icelandair hefur aflýst öllu flugi sem var á áætlun dagsins, bæði innanlandsflugi og millilandaflugi. Öllu flugi annarra flugfélaga til og frá Keflavíkurflugvelli hefur sömuleiðis verið aflýst. „
Vegna veðurs höfum við aflýst öllu flugi okkar í dag, bæði innanlands og milli landa. Stefnt er að því að flug verði á áætlun á morgun en við fylgjumst vel með veðurspám næstu daga. Við munum bæta við aukaflugi á nokkra áfangastaði á morgun, Alicante, Las Palmas og París,“ segir í skriflegu svari Guðna Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa Icelandair, við fyrirspurn Vísis. Farþegar sem áttu bókað með flugi sem nú hefur verið aflýst verði endurbókaðir og muni fá senda nýja ferðaáætlun. Um sé að ræða fjölda ferða og því geti endurbókun tekið tíma en reynt verði eftir fremsta megni að koma farþegum sem fyrst á áfangastað. „Farþegum er bent á að fylgjast vel með tilkynningum sem sendar eru með tölvupósti og SMS, auk þess sem hægt er að fylgjast með uppfærslum á heimsíðu félagsins undir „Bókunin mín“ og í Icelandair appinu.“ Á vef Keflavíkurflugvallar má sjá að öllu flugi til og frá flugvellinum hefur verið aflýst. Þar er varað við því að röskun á flugi gæti varað til hádegis á morgun.
Icelandair Veður Fréttir af flugi Tengdar fréttir Gular viðvaranir um allt vestanvert landið til morguns Gular veðurviðvaranir eru nú í gildi um allt vestanvert landið og einu svæðin sem eru undanskilin eru Norðurland eystra, Austurland og Austfirðir. Á höfuðborgarsvæðinu verður viðvörun í gangi í allan dag og fram á morgundaginn en spáð er suðvestan hvassviðri og dimmum éljum. Annars staðar er einnig spáð hvassviðri eða jafnvel stormi og er varasamt að vera á ferðinni. 20. mars 2026 07:21 Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Vegna veðurs hefur Icelandair aflýst öllum brottförum sínum fyrir hádegi á morgun og öllum komuflugum nema tveimur. Fleiri flugfélög hafa þurft að aflýsa flugferðum en gul viðvörun tekur gildi víða um land. 19. mars 2026 21:01 Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Eldur í Árbænum Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Hafnar kreddum um verðbólguna Innlent Fleiri fréttir Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Sjá meira
Gular viðvaranir um allt vestanvert landið til morguns Gular veðurviðvaranir eru nú í gildi um allt vestanvert landið og einu svæðin sem eru undanskilin eru Norðurland eystra, Austurland og Austfirðir. Á höfuðborgarsvæðinu verður viðvörun í gangi í allan dag og fram á morgundaginn en spáð er suðvestan hvassviðri og dimmum éljum. Annars staðar er einnig spáð hvassviðri eða jafnvel stormi og er varasamt að vera á ferðinni. 20. mars 2026 07:21
Sextíu flugferðum aflýst vegna veðurs Vegna veðurs hefur Icelandair aflýst öllum brottförum sínum fyrir hádegi á morgun og öllum komuflugum nema tveimur. Fleiri flugfélög hafa þurft að aflýsa flugferðum en gul viðvörun tekur gildi víða um land. 19. mars 2026 21:01