Höttur endurheimti sætið í Bónus-deildinni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. mars 2026 21:12 Obie Trotter hélt nýverið upp á 42 ára afmælið sitt en hann var frábær í leiknum í kvöld. Vísir/Hulda Margrét Höttur er komið aftur upp í Bónusdeild karla í körfubolta eftir aðeins eins árs fjarveru.
Höttur vann hreinan úrslitaleik á móti Sindra á Hornafirði í kvöld en sigurvegarinn tryggði sér sigur í 1. deildinni en deildarmeistaratitilinn gefur beint sæti í efstu deild. Hattarmenn sýndu reynslu sína, samheldni og styrk og unnu þriggja stiga sigur, 96-93, í æsispennandi leik á mjög erfiðum útivelli. Sindramenn áttu möguleika á að komast upp í úrvalsdeildina í fyrsta sinn en fá nú annað tækifæri í úrslitakeppni liðanna í öðru til níunda sæti. Hattarmenn féllu fyrir ári síðan eftir þriggja ára veru í Bónusdeildinni en þetta verður annað skiptið í röð sem Viðar Hafsteinsson kemur liðinu strax upp aftur ári eftir að liðið fellur úr úrvalsdeildinni. David Ramos, Obie Trotter og Nemanja Knezevic fóru niður með Hattarmönnum í fyrra en voru allt í öllu í kvöld. Ramos skoraði 19 stig, Trotter var með 16 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar en Knezevic var með 15 stig og 14 fráköst. Bandaríkjamaðurinn Deontaye Buskey var með 17 stig. Jason Gigliotti var með 30 stig og 16 fráköst fyrir Sindra og Clayton Ladine bætti við 21 stigi, 8 fráköstum og 10 stoðsendingum. Sindramenn byrjuðu vel og náðu mest níu stiga forskoti í fyrsta leikhlutanum. Þeir leiddu 25-21 eftir fyrsta leikhluta og voru síðan tveimur stigum yfir í hálfleik, 47-45. Hattarmenn sýndu styrk sinn í þriðja leikhlutanum sem þeir unnu með tíu stigum, 30-20. Höttur var því 75-67 yfir fyrir lokaleikhlutann en heimamenn gáfust ekki upp og komu muninum aftur niður í eitt stig, 94-93, þegar fjörutíu sekúndur voru eftir. Dani Koljanin skoraði risakörfu fyrir Hött í lokin og tryggði liðinu endanlega sætið í Bónusdeildinni.
Bónus-deild karla Höttur Sindri Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Ég er ríkmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 Fara í efstu deild þrátt fyrir jafntefli í umspili Fótbolti Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina „Er týpan sem er til í að taka nýjar áskoranir“ Sjá meira