„Skutum í hringinn en ekki í körfuna“ Árni Jóhannsson skrifar 20. mars 2026 21:13 Baldur Þór Ragnarsson hefur verið ánægðari með sína menn en í kvöld. Hann kaus að vera glaður með sigurinn. Vísir / Anton Brink Baldur Þór Ragnarsson kaus að vera jákvæður í viðtalinu sem hann mætti í eftir leik Stjörnunnar og ÍA. Hann þurfti þó að tína til það sem var að leik hans mann þó að sigur hafi unnist á ÍA í 21. umferð Bónus deildar karla í körfubolta. Leiknum lauk 113-100. „
Ég er bara ánægður með að hafa unnið en ekki tapað. Það er bara þannig sem ég met þennan leik“, sagði Baldur þegar hann var spurður að því hvernig hann mæti sigurleikinn gegn ÍA. Hann var þá spurður hvort hann hafi verið óánægður með frammistöðu sinna manna en hann þurfti að birsta sig við leikmenn sína í leikhléi í lok leiks þegar leikurinn var í járnum. „Varnarlega erum við ömurlegir. Við skorum nánast að vild en varnarlega var þetta bara lélegt. Mér fannst við ekki keppa að fullum krafti en á sama tíma eru Darryl og Zudzum og fleiri, þeir eru ekki lélegir í körfu, þeir voru árásargjarnir og tóku það sem við vorum að gefa þeim. Varnarlega náðum við aldrei stjórn á þessum leik.“ Stjarnan fór á nokkur áhlaup í dag og virtust ráða því hvenær forskotið yrði aukið. Alltaf stigu þeir þó af bensíngjöfinni og hleyptu Skagamönnum inn í leikinn. „Þegar þeir voru að komast inn í leikinn þá var það alltaf sama sagan. Við héldum áfram að skjóta galopnum skotum, þriggja stiga eða sniðskotum, við skutum bara í hringinn en ekki í körfuna. Við hefðum getað skorað 140 stig hérna í dag. Þetta var bara ekki leikur að mínu skapi. Við vorum lélegir varnarlega og ekki eins mikil keppni og ég hefði viljað. Sérstaklega á hálfum velli.“ „En ég ætla bara að vera glaður með sigurinn og fagna honum. Því það er hundleiðinlegt að tapa og skemmtilegra að vinna og það þýðir ekkert að vera bara í þyngslunum og neikvæðni endalaust. Þetta var bara góður sóknarleikur og við skoruðum mikið. Svo lögum við bara hitt“, sagði Baldur að lokum áður og gat leyft sér að brosa. Stjarnan jafnar Tindastól að stigum í deildinni og lyftir sér upp í annað sætið. Þar verða þeir þangað til á morgun í það minnsta þegar Tindastóll etur kappi við Álftanes.
Stjarnan Bónus-deild karla Mest lesið Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti „Vissi bara ekki hvað var að gerast hérna“ Íslenski boltinn „Ég er rígmontinn af þeim” Fótbolti „Arfaslakir og undir í öllum þáttum leiksins“ Íslenski boltinn Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti „Allir tala um hvað ég er gamall“ Íslenski boltinn Þykja Alpine liðið vera of dýrt Formúla 1 Uppgjör: FH - ÍA 0-1 | ÍA sótti sigur í Kaplakrika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Pirraður yfir því hvernig Baldur yfirgaf Stjörnuna Grét alla Reykjanesbrautina Sjá meira