Hinir treystu sér ekki en Íslendingarnir flugu Kristján Már Unnarsson skrifar 22. mars 2026 07:27 Ingibjörg Gísladóttir er starfsmaður flugvallarins í Narsarsuaq. Egill Aðalsteinsson Íslendingar skipa stóran sess í flugsögu Grænlands. Íslenskir flugmenn gátu sér þar snemma gott orð. Talað var um að þeir treystu sér oftar til að fljúga í krefjandi landslagi og misjöfnu veðri en aðrir flugmenn.
Í þættinum Flugþjóðin á Sýn+ er fjallað um þátt Íslendinga í flugsamgöngum Grænlands. Þetta er saga sem nær meira en sjötíu ár aftur í tímann þegar íslensk flugfélög, bæði Flugfélag Íslands og Loftleiðir, hófu að sinna þar margskyns verkefnum. Á safni í Narsarsuaq er saga flugvallarins rakin. Þar má kynnast ískönnunarfluginu sem Flugfélag Íslands sinnti um tíma fyrir dönsk stjórnvöld í öryggisskyni fyrir sjófarendur eftir hörmulegt sjóslys sem varð við suðurodda Grænlands. Tvær DC 6B-flugvélar Flugfélags Íslands á flugvellinum í Narsarsuaq árið 1968.Snorri Snorrason Í hópi flugvallarstarfsmanna er Íslendingurinn Ingibjörg Gísladóttir, sem lengi hefur búið á Grænlandi, en hún annast meðal annars þjónustu við flugmenn á leið um völlinn. Hún rifjar upp gamalt dæmi af samstarfi SAS og Flugfélagsins um áætlunarflug milli Kaupmannahafnar, Keflavíkur og Narsarsuaq. Hún segir umtalað að flugið hafi mun oftar fallið niður þegar SAS-vélin átti að koma heldur en þá daga sem Flugfélagið átti. Ólafur Indriðason, fyrrverandi flugstjóri, fór í sitt fyrsta Grænlandsflug til Meistaravíkur fyrir Flugfélag Íslands árið 1954.Egill Aðalsteinsson „Það er almennt talað um það að íslenskir flugmenn séu mjög hæfir, mjög reynslumiklir og þekki inn á þessar aðstæður með langa djúpa firði, há fjöll, umbreytilegt veður og skýjafar og annað. Þannig að þeir geti unnið öðruvísi úr þeim upplýsingum sem þeir fá og við þær aðstæður sem þeir eru að fljúga heldur en til dæmis danskir flugmenn, sem eru ekki vanir, - þeir hafa flogið kannski um alla Evrópu en það eru allt öðruvísi aðstæður,“ segir Ingibjörg. Þórður Bjarni Guðjónsson, ræðismaður Íslands í Nuuk, kveðst ekki í nokkrum vafa um að framlag Íslendinga til flugmála Grænlands hafi skipt máli. Þórður Bjarni Guðjónsson er ræðismaður Íslands á Grænlandi.Egill Aðalsteinsson „Og maður heyrir það þegar maður talar við fólk hérna að hlutur Íslands í flugsögunni hérna á Grænlandi er heilmikill. Við höfum komið þar víða við og sérstakega og ekki hvað síst á austurströndinni,“ segir ræðismaðurinn. Hér má sjá sex mínútna kafla úr þættinum um Grænlandsflugið: Framan af var þetta einkum flug fyrir dönsk stjórnvöld og bandaríska herinn en einnig fyrir vísindaleiðangra. Opnun flugvallarins í Kulusuk, sem bandaríski herinn lagði árið 1956, varð hins vegar grunnurinn að flugi Íslendinga með ferðamenn sem og áætlunarflugi til Grænlands. Fleiri íslensk flugfélög áttu eftir að bætast í Grænlandsflugið, eins og fræðast má um í þessu tíu mínútna myndskeiði úr þættinum: Þátturinn um Grænlandsflugið er sá sautjándi í þáttaröðinni. Áskrifendur geta séð hann í heild sem og alla þætti Flugþjóðarinnar á streymisveitunni Sýn+.
Flugþjóðin Fréttir af flugi Grænland Icelandair Tengdar fréttir Flugið er líflína milli byggða Grænlands Grænlendingar búa við eitt flóknasta og dýrasta samgöngukerfi allra þjóða. Þeir treysta mest á flugsamgöngur til að komast á milli byggða þar sem landið er án vegakerfis. 19. mars 2026 07:07 Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Íslendingar eiga enn eftir að uppgötva Grænland sem ferðamannaland en yfirgnæfandi meirihluti farþega Icelandair þangað eru útlendingar. 11. september 2025 21:41 Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Prófanir á flugleiðsögutækjum annarra þjóða eru ein sérhæfðasta útrás íslenska fluggeirans. Þannig er flugvél Isavia nýtt í mælingum fyrir Grænlendinga, Færeyinga og Norðmenn og íslenskir flugprófanamenn gegna um þessar mundir lykilhlutverki í úttekt á nýjum flugvöllum Grænlands. 28. september 2025 21:11 Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent Fleiri fréttir Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Sjá meira
Flugið er líflína milli byggða Grænlands Grænlendingar búa við eitt flóknasta og dýrasta samgöngukerfi allra þjóða. Þeir treysta mest á flugsamgöngur til að komast á milli byggða þar sem landið er án vegakerfis. 19. mars 2026 07:07
Segir Íslendinga eiga eftir að uppgötva Grænland Íslendingar eiga enn eftir að uppgötva Grænland sem ferðamannaland en yfirgnæfandi meirihluti farþega Icelandair þangað eru útlendingar. 11. september 2025 21:41
Aldrei neinn afsláttur gefinn í flugprófunum Prófanir á flugleiðsögutækjum annarra þjóða eru ein sérhæfðasta útrás íslenska fluggeirans. Þannig er flugvél Isavia nýtt í mælingum fyrir Grænlendinga, Færeyinga og Norðmenn og íslenskir flugprófanamenn gegna um þessar mundir lykilhlutverki í úttekt á nýjum flugvöllum Grænlands. 28. september 2025 21:11