Fannst ellefu mínútum síðar með stunguvopn og blóðugar hendur Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 22. mars 2026 10:50 Árásarmaðurinn fannst í leigubíl skömmu eftir árásina. Hann hélt á stunguvopninu og var með blóðugar hendur. Lögreglan gat fylgst með flóttanum í gegnum myndavélakerfið í miðbænum. Vísir/Vilhelm Maður á þrítugsaldri var fluttur á bráðamóttöku eftir að hafa verið stunginn með eggvopni í kvið og læri í miðbæ Reykjavíkur í nótt. Árásarmaðurinn lagði á flótta eftir árásina en fannst ellefu mínútum síðar með hnífinn á sér og með blóðugar hendur. Lögreglan segir eftirlitsmyndakerfið enn og aftur hafa sannað sig. Það var laust fyrir klukkan þrjú í nótt sem lögreglan fékk útkall vegna stunguárásar í miðbæ Reykjavíkur. Sjónarvottur hefur lýst gríðarlegum viðbúnaði lögreglu vegna málsins en árásin átti sér stað fyrir utan skemmtistað við Tryggvagötu. Árni Friðleifsson er aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Ja, það fara hátt í 20 lögreglumenn þarna á svæðið.“ Fjöldi lögreglumanna en þá voru sjúkrabílar sendir á vettvang til að flytja hinn særða á bráðamóttöku. Illa særður en ekki í lífshættu Maðurinn sem varð fyrir árásinni, var hann stunginn oftar en einu sinni? „Hann virðist vera með þrjú stungusár, sem sagt á kvið og læri og svo rispu á hálsi.“ Og vitum við eitthvað hvernig líðan hans er á þessari stundu? „Hann er ekki í lífshættu miðað við þær upplýsingar sem við höfum núna.“ Árni segir að bæði árásarmaður og árásarþoli séu á þrítugsaldri. „Sá sem framkvæmdi hnífsstunguna hefur komið við sögu hjá okkur áður.“ Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Fylgdust með flóttanum í beinni Árni segir að lögreglu hafi gengið einstaklega vel að hafa hendur í hári árásarmannsins. „Þarna er eftirlitsmyndavélakerfi miðborgarinnar að hjálpa okkur gríðarlega af því að sá sem er valdur að þessari árás hleypur í burtu og lögreglumenn eru hérna fljótir til og fylgjast með flótta hans í myndavélakerfum og geta staðsett hann í leigubifreið og hann er handtekinn í leigubifreið aðeins 11 mínútum eftir að tilkynning kemur til lögreglunnar. Og hann er þá með stunguvopn á sér og er með blóðugar hendur. Þannig að þarna er myndavélakerfið að sanna sig enn og aftur varðandi að upplýsa alvarleg brot í miðbænum.“ Lögreglumál Reykjavík Tengdar fréttir Handtekinn vegna stunguárásar í miðbænum Einn var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt eftir að hafa stungið mann fyrir utan skemmtistað. 22. mars 2026 07:25 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira
Það var laust fyrir klukkan þrjú í nótt sem lögreglan fékk útkall vegna stunguárásar í miðbæ Reykjavíkur. Sjónarvottur hefur lýst gríðarlegum viðbúnaði lögreglu vegna málsins en árásin átti sér stað fyrir utan skemmtistað við Tryggvagötu. Árni Friðleifsson er aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Ja, það fara hátt í 20 lögreglumenn þarna á svæðið.“ Fjöldi lögreglumanna en þá voru sjúkrabílar sendir á vettvang til að flytja hinn særða á bráðamóttöku. Illa særður en ekki í lífshættu Maðurinn sem varð fyrir árásinni, var hann stunginn oftar en einu sinni? „Hann virðist vera með þrjú stungusár, sem sagt á kvið og læri og svo rispu á hálsi.“ Og vitum við eitthvað hvernig líðan hans er á þessari stundu? „Hann er ekki í lífshættu miðað við þær upplýsingar sem við höfum núna.“ Árni segir að bæði árásarmaður og árásarþoli séu á þrítugsaldri. „Sá sem framkvæmdi hnífsstunguna hefur komið við sögu hjá okkur áður.“ Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið. Fylgdust með flóttanum í beinni Árni segir að lögreglu hafi gengið einstaklega vel að hafa hendur í hári árásarmannsins. „Þarna er eftirlitsmyndavélakerfi miðborgarinnar að hjálpa okkur gríðarlega af því að sá sem er valdur að þessari árás hleypur í burtu og lögreglumenn eru hérna fljótir til og fylgjast með flótta hans í myndavélakerfum og geta staðsett hann í leigubifreið og hann er handtekinn í leigubifreið aðeins 11 mínútum eftir að tilkynning kemur til lögreglunnar. Og hann er þá með stunguvopn á sér og er með blóðugar hendur. Þannig að þarna er myndavélakerfið að sanna sig enn og aftur varðandi að upplýsa alvarleg brot í miðbænum.“
Veistu meira um málið eða áttu myndefni? Þú getur sent okkur fréttaskot hér eða sent okkur línu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði er heitið.
Lögreglumál Reykjavík Tengdar fréttir Handtekinn vegna stunguárásar í miðbænum Einn var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt eftir að hafa stungið mann fyrir utan skemmtistað. 22. mars 2026 07:25 Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira
Handtekinn vegna stunguárásar í miðbænum Einn var handtekinn í miðbæ Reykjavíkur í gærkvöldi eða nótt eftir að hafa stungið mann fyrir utan skemmtistað. 22. mars 2026 07:25