Hamingja og fjármálalæsi haldast í hendur Gústaf Steingrímsson skrifar 23. mars 2026 11:02 Fjármálaheimurinn verður sífellt flóknari og möguleikarnir fleiri. Þetta felur í sér að færni okkar og geta til að fóta okkur í þessum heimi og taka upplýstar ákvarðanir verður stöðugt mikilvægari. Þarna skiptir fjármálalæsi máli en það má skilgreina vítt sem sambland þekkingar, færni, viðhorfa og hegðunar sem þarf til að taka upplýstar og árangursríkar ákvarðanir í fjármálum. Fjármálalæsi dregur úr líkum á slæmum ákvörðunum Að búa að góðu fjármálalæsi dregur úr líkum á því að slæmar ákvarðanir séu teknar í fjármálum. Slæmar fjármálalegar ákvarðanir geta komið fólki út í skuldafen og fjárhagserfiðleika sem erfitt getur verið að ná sér upp úr. Sumir komast aldrei út úr slíkum aðstæðum. Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sviðsstjóri Lýðheilsusviðs hjá embætti Landlæknis, hefur rannsakað tengsl hamingju við ýmsa þætti meðal Íslendinga. Öfugt við það sem flestir halda hefur Dóra Guðrún komist að því að tengsl á milli tekna fólks og hamingju eru veik hér á landi. Aftur á móti sýna rannsóknir hennar að fólk sem glímir við fjárhagserfiðleika upplifir meiri óhamingju en fólk sem glímir ekki við slíka erfiðleika. Líðan þeirra sem glíma við fjárhagserfiðleika er lakari en þeirra sem gera það ekki. Einstaklingar í fjárhagserfiðleikum fá minni svefn en þeir sem eru ekki í fjárhagserfiðleikum og er einmannaleiki fjórfalt meiri meðal þeirra sem eiga erfitt með að ná endum saman en annarra. Erlendar rannsóknir sýna almennt séð fram á jákvæð tengsl á milli fjármálalæsis og hamingju. Ein sú þekktasta og mest er vitnað til er síðan 2014 og ber heitið „The economic importance of financial literacy: theory and evidence“. Önnur rannsókn frá Kína síðan 2022 sýnir að fjármálalæsi hefur betra forspárgildi á hamingju en tekjur einar og sér sem rímar ágætlega við íslenskar niðurstöður. Rannsóknin sýndi einnig að gildi og viðhorf til peninga hefði jafnvel enn meira forspárgildi um hamingju en fjárhagsleg þekking. Meira fjármálalæsi leiðir til betri fjárhagslegrar stöðu Rannsóknir virðast einnig benda til þess að aukið fjármálalæsi auki hamingju með því að draga úr fjárhagsáhyggjum og líkum á því að fólki steypi sér í of miklar skuldir, auk þess að líklegra er að fólki finnist það hafa stjórn á eigin fjármálum. Sálfræðingurinn Jeffrey Bernstein segir að „þeim mun minni fjárhagsáhyggjur, þeim mun hamingjusamara er fólk“. Viðamikil kínversk rannsókn frá síðasta ári sýnir að fjármálalæsi virðist bæta líðan með því að koma í veg fyrir of mikla skuldsetningu (Unpacking the role of financial literacy in the debt-mental health nexus: evidence from China). Rannsóknin sýnir fram á tvíþætt áhrif fjármálalæsis. Það hjálpar ekki bara einstaklingum til þess að skuldsetja sig ekki um of til að byrja með heldur dregur það einnig úr neikvæðum sálfræðilegum áhrifum skuldsetningar þegar hún er til staðar. Fjármálalæsi virðist því virka eins og stuðpúði gagnvart kvíða og áhyggjum ef fjármálin eru erfið. Það hefur aldrei verið jafn auðvelt að koma sér í fjárhagsvandræði Með tilkomu netsins og öllu því sem þar er í boði hefur sennilega aldrei verið jafn auðvelt að tapa miklum peningum með skjótum hætti. Svikahrappar eru stöðugt að stela og svíkja peninga af fólki, mjög auðvelt er að tapa háum fjárhæðum á fjárhættuspilum og sennilega hefur aldrei verið jafn auðvelt að steypa sér í skuldir t.d. með því að kaupa eitthvað í dag en greiða seinna. Unga fólkið okkar sem hefur ekki alltaf þroska til þess að vita hvað það er að gera er sérstaklega viðkvæmt fyrir því að tapa peningum eftir einhverjum þessara leiða. Við sem samfélag ættum að vilja að koma í veg fyrir að fólk hefji lífið í greiðsluerfiðleikum sem það losnar kannski aldrei eða seint út úr. Aukið fjármálalæsi getur stutt fólk við að taka betri og upplýstari ákvarðanir. Almenningur og SFF vilja efla fjármálalæsi í grunnskólum Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu (SFF) hafa lengi barist fyrir því að efla fjármálalæsi hér á landi. Það eru ekki bara SFF sem telja þetta mikilvægt. Skoðanakannanir meðal almennings sýna að 74% fólks telja að fólk ætti að læra meira um peninga og fjármál í grunn- og framhaldsskólum. Um 10% taldi sig hafa fengið fræðslu um peninga og fjármál í grunnskóla og tæplega 90% hefði viljað læra meira um fjármál í grunnskóla. Grunnskólar hafa ríku hlutverki að gegna til þess að undirbúa börnin okkar fyrir lífið. Í grunnskólum lærum við mikið af þeirri grunnfærni sem hjálpar okkur til þess að fóta okkur í lífinu og eiga kost á því að finna hamingjuna. Fjármálalæsi er einn af þessum grunnfærniþáttum sem er þó ekki kenndur nema í hluta skóla. Í sumum skólum er þetta skylda, í öðrum val, en í of mörgum skólum er þetta ekki kennt. Þó að margir skólar kenni fjármálalæsi er allur gangur á því hversu miklum tíma er varið í þá kennslu og hversu mikil áhersla er lögð á hana. Mikilvægt er að allir sitji við sama borð og eigi kost á því að fá öfluga og samræmda kennslu í fjármálalæsi. Það verður varla gert svo vel sé nema gera fjármálalæsi að sérstöku fagi innan grunnskólanna og það sé kennt með heildrænum og samræmdum hætti. Í síðustu viku lauk Fjármálaleikunum hér á landi en þá kepptu grunnskólarnir með sér í netkeppni um fjármálalæsi. Sá skóli sem ber sigur úr býtum fær að senda tvo fulltrúa í Evrópukeppni í fjármálalæsi sem fram ber í Brussel 18.-19 maí næstkomandi. Höfundur er hagfræðingur Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Fjármál heimilisins Mest lesið Halldór 18.04.2026 Halldór Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson Skoðun Skoðun Skoðun Trillukarlar – síðasta vígið gegn fáræði og spillingu Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Lyfjatengd dauðsföll eru pólitísk ákvörðun Unnar Þór Sæmundsson skrifar Skoðun Börn með málþroskaraskanir geta ekki beðið endalaust Hildur Jónsdóttir skrifar Skoðun Regnbogagrýlan Sigtryggur Ellertsson skrifar Skoðun Tímasetning efnahagsaðgerða er lykilatriði Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Snorri Másson Heller Mills Sjöfn Asare Hauksdóttir skrifar Skoðun Menntamálin eru í alvarlegum vanda Ragnar Þór Pétursson skrifar Skoðun Ríkisstjórnin má ekki bíða lengur Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Fullveldi eða ESB: Hver greiðir heimilisreikninginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum lengra Auður Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Ilmefni í umhverfi barna Harpa Fönn SIgurjónsdóttir skrifar Skoðun Í stuttu máli: Villandi tal um aðlögunarviðræður Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Vald í velvild Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun „Hugmyndafræði“ regnbogans Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Álag vegna keppnisferða að buga suma foreldra Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Kostnaður, kvíði og aðskilnaður Sigdór Yngvi Kristinsson skrifar Skoðun Staðfestur kerfisbrestur! Hver ber ábyrgð? Jón Þór Guðjónsson skrifar Skoðun Aðlögun Íslands að ESB: Þrír ólíkir farvegir Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Sanngjörn þjónusta fyrir alla Kópavogsbúa - líka í efri byggðum Örn Arnarson skrifar Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar Skoðun Á leiksviði lífsins Hörður Torfason skrifar Skoðun Ekki nóg að ráða – við þurfum að rækta Ingunn Björk Vilhjálmsdóttir skrifar Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar Skoðun Þegar yfirmaður er skrímslið í okkar lífi Ómar Skapti Gíslason skrifar Skoðun Verða Íslendingar kvaddir í evrópskan her? Steinar Logi Hafsteinsson skrifar Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Mér er ekki sama Þorkell Daníel Eiríksson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjúklingar með langvinna sjúkdóma bera fastan kostnað sem heilbrigðir blessunarlega sleppa við Gestur Andrés Grjetarsson skrifar
Skoðun Áratugalöng barátta við sandfok í Þorlákshöfn Páll Marvin Jónsson,Garðar Þorfinnsson,Hreinn Óskarsson,Eva Lind Guðmundsdóttir,Davíð Halldórsson skrifar
Skoðun Húsnæði er hluti af grunninnviðum samfélagsins, ekki bara markaðsvara Mikael Snær Gíslason skrifar
Skoðun Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir,Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifar
Skoðun „Mér finnst, ég ræð!“ – en þannig byggjum við ekki upp skólastarf Lis Ruth Klörudóttir skrifar
Skoðun Þögnin fyrir storminn: Þegar blekkingin brestur og snjóhengjan fellur Sigurður Sigurðsson skrifar