Hver er stefna sveitarfélaga í menningar- og safnamálum? Dagrún Ósk Jónsdóttir skrifar 23. mars 2026 19:01 Núna um daginn bárust fréttir af því að fólki sem starfar í menningargeiranum hefur fækkað um tæplega 20% á síðasta áratug samkvæmt nýrri rannsókn Hagstofunnar. Það ætti að vekja sterk viðbrögð og við ættum að hafa raunverulegar áhyggjur af stöðunni. Ég held þó að mörgum sem starfa í menningu, listum og á söfnum hafi ekki komið þetta neitt sérstaklega á óvart. Við vitum það öll, sem erum svo heppin að starfa í þessum bransa, að það er ótrúlega gefandi og þetta eru mikilvæg og oft á tíðum fjölbreytt og skemmtileg störf. En mörg okkar eru kannski líka orðin svolítið þreytt. Það getur stafað af ýmsu, en það er ekki óalgengt að fólk á þessu sviði upplifi ákveðið skilningsleysi stjórnvalda, ófyrirsjáanleika í skipulagi, undirfjármögnun og undirmönnun. Fólk í menningar- og safnageiranum er vant að halda ótal boltum á lofti og gera mikið fyrir lítið. Nú þegar sveitarstjórnarkosningar eru framundan er rétt að staldra við og spyrja hvernig á að bregðast við. Hver er stefna sveitarfélaga í menningar- og safnamálum? Að halda úti öflugu menningar- og safnastarfi ætti að vera kappsmál sveitarfélaga. Hér skipta söfnin sjálf og fólkið sem þar vinnur miklu máli. Söfn af ólíkum stærðum og gerðum eru staðsett víða um land og sinna öflugu starfi; varðveita, miðla, rannsaka og fræða. Þannig varðveita þau sögu, list og menningu sinna starfssvæða og efla með því staðarvitund og sjálfsmynd íbúa. Þá skapa söfn fjölbreytta atvinnumöguleika í heimabyggð, sinna rannsóknum og eru vettvangur nýsköpunar, auk þess sem þau eru segull á svæðinu og áningarstaður ferðafólks. Söfn standa jafnan fyrir fjölbreyttum verkefnum og viðburðum og eru oft samkomustaður heimafólks, menningarmiðstöð í héraði. Söfn eru líka mikilvægur og lifandi námsvettvangur, þau brúa bil milli kynslóða, vinna gegn einmannaleika, auka skilning og samkennd og skipta verulegu máli við inngildingu. Öflugt menningar- og safnastarf er jákvæður og mikilvægur þáttur í ímynd svæða og hefur áhrif á hvar fólk velur sér búsetu. Svo hafa þau auðvitað líka jákvæð áhrif á mannlíf og stemmningu, auka ánægju og efla lífsgæði íbúa þar sem starfið er öflugt. Það ætti því að vera kappsmál sveitarstjórnarfólks að efla menningar- og safnastarf í sínu sveitarfélagi. Það er ótrúlega mikilvægt fyrir sveitarstjórnarfólk að eiga í samtali við safnafólkið í sveitarfélaginu (og auðvitað líka öfugt). Framboð til sveitarstjórna þurfa að vera með stefnu sem hlúir að og styður við safnastarf, listir og menningu. Söfnin eru svo ótrúlega mikilvæg og áhrif þeirra margþætt. Höfundur er verkefnastjóri FÍSOS (Félags íslenskra safna og safnafólks). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Menning Söfn Stjórnsýsla Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar