Þeir svartsýnustu trúi varla að Trump muni ráðast á Kúbu Lovísa Arnardóttir skrifar 24. mars 2026 09:01 Eyjólfur segir að þó svo að ástandið sé krefjandi á Kúbu líði honum ekki eins og hann sé í hættu. Aðsend og Vísir/EPA Eyjólfur Eyvindarson, formaður Víkur – Vináttufélags Íslands og Kúbu og tónlistarmaðurinn Sesar A, er staddur á Kúbu og fór þangað með hópi fólks sem fór með hjálpargögn til Kúbu. Hópurinn siglir undir heitinu Nuestra America Flotilla og koma flest hjálpargögnin frá Mexíkó. Von er á stóru skipi með hjálpargögnum og olíu í dag.
Aðstæður á Kúbu hafa verið verulega krefjandi eftir að Bandaríkjastjórn handsömuðu Nicolas Maduro, forseta Venesúela, en Venesúela sá Kúbu til dæmis fyrir olíu og öðrum nauðsynjavörum. „Ég er hluti af loftbrú og skipalest sem ég flaug með hóp 120 manns frá 19 löndum frá Ítalíu, svo er að koma skipalest frá Mexíkó og frá Suður-Ameríku. Þetta verða allt í allt 650 manns frá 33 löndum. Hátt í 100 samtök, vináttufélög og önnur,“ segir hann og að fyrst og fremst séu þau að koma með hjálpargögn til aðstoðar í heilbrigðiskerfinu og sólarsellur. Alls eru um tuttugu tonn að ræða. Rætt var við Eyjólf í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Eyjólfur er að koma til Kúbu í fimmta sinn en hann kom í fyrsta sinn fyrir 30 árum aðeins 19 ára gamall. „Það eru margir sem eru að koma í fyrsta skiptið þannig að það er líka verið að sýna okkur bara sjúkrahúsin og heimsækja þau og fá tækifæri til að hitta fólk bara og láta okkur vita hvernig ástandið er,“ segir hann og að hópurinn verði fram á föstudag. Ástandið alls ekki nýtt Eyjólfur segir að þó svo að ástandið sé slæmt núna sé það ekki eitthvað sem hófst bara í janúar þegar Maduro var handsamaður. „Það er búið að vera viðskiptabann á landinu í 65 ár, hafbann og Helms-Burton-lögin sem að reyna að koma í veg fyrir til dæmis bara eins og símgreiðslur og öll viðskipti eru mjög erfið en þeir náttúrulega forgangsraða, þannig það rafmagn og sú orka sem þau eiga fer í að halda sjúkrahúsum gangandi og öðrum grunninnviðum.“ Hann segir að Kúbverjar noti það sem þeir hafi til að láta hlutina ganga upp en að sama skapi séu vináttufélög og aðrar þjóðir að styðja þau í gegnum þetta ástand. Stjórnvöld í Mexíkó hafa síðustu daga sent hjálpargögn til Kúbu. „Þannig að jú, ástandið er erfitt en við finnum hvað þeir eru þakklátir fyrir að við séum hérna og það er von alltaf.“ Hann segir olíuskortinn verulega krefjandi. Þú getur náttúrulega bara ímyndað þér einhvern tímann eins og á morgun kæmi engin olía til Íslands. Kúbverjar eru með einhvern hluta sínar eigin olíu og þeir eru búnir að byggja upp með hjálp annarra landa. Grunnrafmagnsþörfin hérna er 2000 þúsund megavött. Þannig það má ekki mikið út af að bera.“ Hann segir Kúbverja þurfa að vera sjálfbæra með margt út af viðskiptabanninu og til dæmis framleiði þau sjálf lyf fyrir lungnakrabbamein og Alzheimer og það sé erfitt að gera það þegar engin olía er og þar með engin orka. Geta bara unnið tvo daga í viku „Þeir geta kannski bara unnið tvo daga í því á viku, þannig að það fer allt bara svona í að halda þessu grunnástandi áfram en það er von á olíu,“ segir hann og að hópurinn sem hann er með fari seinna í dag að taka á móti skipalest með hjálpargögnum, þar með talið olíu, frá Mexíkó. Eyjólfur segir margt við Kúbu heilla sig. Upphaflega hafi það verið tónlistarmenningin, salsa, en það heilli hann einnig hvernig Kúberjar hafa tekist á við það að hafa þurft að fara sínar eigin leiðir. Sjálfboðaliðar setja hjálpargögn í bát í Mexíkó sem sigldi af stað til Kúbu fyrir helgi. Vísir/EPA „Í grunninn er öllum séð fyrir sínu húsnæði og mat upp í skömmtunarkerfi og svo hefur ferðaþjónustan komið ofan á það,“ segir hann og að upplifi hann aðra hugmyndafræði, ekki sömu gróðasjónarmið og meiri lífsgleði og jákvæðni. „Hvernig er verið að nota listina til að þú vitir af pirringi og stressi. Það er nú eitt sem Íslendingar geta líka og ég hef tekið til mín, og ég hef tekið til mín, er að nota tjáningu, dans og tónlist til þess að bara svona lifa lífinu.“ Gróðursælt og gott líf Hann segir einnig minnsta mun á sumri og vetri og því sé afar gróðursælt. „Girðingarstaurarnir hérna, það koma laufblöð á þá,“ segir hann og að landbúnaður sé mestmegnis lífrænn vegna viðskiptabannsins. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur síðustu vikur verið með ýmsar yfirlýsingar um að hann ætli að „taka Kúbu næst“. Þá á eftir Venesúela, Íran, Grænlandi og öðrum löndum sem hann ýmist vill taka eða hefur ráðist inn í síðan hann tók við sem forseti. „Varðandi Bandaríkjaforseta segir hann ýmislegt og svo dregur hann í land þannig að við vitum eiginlega aldrei hvað hann er að hugsa. En ég hef talað við fólk hérna og ég hef farið heim til fólks og meira að segja þeir sem eru svartsýnastir trúa ekki á að Bandaríkjamenn séu að fara að ráðast inn.“ Báturinn með hjálpargögnum á leið til Kúbu. Vísir/EPA Hann segir marga hafa varað hann við þessu ferðalagi í aðdraganda þess og óttast að hann gæti ekki komist í flug frá Kúbu láti Trump verða af þessum áætlunum. Eyjólfur segir mikið af ferðamönnum á Kúbu og stöðugar flugsamgöngur. „Það er svona ákveðin herferð í gangi að fólk eigi ekki að fara hingað og það sé hættulegt, en það er ekki það… Bandaríkin hafa reynt innrás. Það kom bátur með tíu harðvopnuðum mönnum, bátur sem var skráður í Flórída. Hann kom inn 24. febrúar og komst nú ekki langt. Þeir voru stoppaðir þannig að mér finnst að þeir sem eru svartsýnastir, þeir trúa ekki á að það verði ráðist hérna inn.“ Reyna að stöðva brottflutta að senda pening Hann segir fólk frekar tala um að Bandaríkin muni reyna að stöðva brottflutta Kúbverja í að senda pening heim. Algengt sé að menntað fólk fari annað að vinna og sendi pening heim. Bandaríkin muni þannig frekar reyna að loka á þetta. „Mér líður ekki eins og ég sé í hættu hérna. Þetta eru að verða 65 ár. Það er frekar að þeir reyni einhverjar svona aðgerðir, einhvern svona þrýsting.“ Eyjólfur hvetur fólk til að heimsækja Kúbu. Hans hvati fyrir fyrstu ferðina hafi verið að sjá með eigin augum hvernig staðan er. Það hafi verið gott að koma og auðvelt sé að ræða við fólk.
Kúba Bandaríkin Venesúela Íslendingar erlendis Bítið Tengdar fréttir „Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu flesta hafa gert sér ljóst að þeir muni ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Forsetinn segir þetta ekki koma sér á óvart, þar sem hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu. Þá segir hann að Bandaríkin hafi ekki þurft hjálp þeirra og þurfi ekki hjálp frá neinum. 17. mars 2026 15:43 Segir Kúbu brátt munu falla Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk stjórnvöld hafa verið „geld“ og að hann vilji að ný forrusta landsins komi vel fram við Bandaríkin og Ísrael, jafnvel þó það yrði ekki lýðræðisríki. Þá segir hann Kúbu brátt munu falla. 6. mars 2026 23:31 Ekkert nema hégómi hjá Trump að vilja setja bandaríska fánann á Grænland Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir allar yfirlýsingar Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um Grænland og Venesúela fjarstæðukenndar og forsendur hans líka. Hann segir að frá herfræðilegu sjónarmiði sé í raun einfalt fyrir Bandaríkin að taka Grænland, og þau gætu gert það, ef þau vildu, í dag. Það sé þó alls ekki nauðsynlegt og í raun aðeins hégómi „gamla fasteignabraskarans frá New York“ að vilja það. 7. janúar 2026 09:07 Mest lesið Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Innlent Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Innlent Ein lægð fjarlægist en önnur djúp nálgast Veður Gefa út gula viðvörun fyrir allt landið Veður Viðræður eða ekki viðræður, þarna er efinn Erlent „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Innlent Notuðu myndavélar klerkastjórnarinnar til að fella Khamenei Erlent Meloni beið „bitran“ ósigur í þjóðaratkvæðagreiðslu Erlent „Hætt við því að byggingamarkaðurinn fari í frost“ Viðskipti innlent „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Innlent Fleiri fréttir „Við megum vera vond við börn“ Sýnileiki öryggisgæslu aukinn eftir hópaárás „Þið komið ekki til Íslands til að brjóta af ykkur“ Telja litla áhættu af notkun vagnanna en ráðfæra sig við ríkislögreglustjóra Starfsmaður leikskóla rekinn vegna atviks en foreldrar ekki látnir vita Ekki skylt að upplýsa um trúarlegar slátrunaraðferðir Reikna með að rýmingu verði aflétt í hádeginu Þeir svartsýnustu trúi varla að Trump muni ráðast á Kúbu Stofnun atvinnuveganna: Matvælastofnun og Fiskistofa lagðar niður Úttekt á loftslagsstjórnsýslu frestast fram á haust „Gærdagurinn reyndi á kerfið sem stóð sig vel“ „Okkar bestu menn valdir í afísinguna“ Mikið að gera á mörgum vígstöðvum Óhjákvæmilegt að Ísland fái sjálfkeyrandi ökutæki Fluginu aflýst eftir að vélin rann út af akbraut Rýma hús á Seyðisfirði Fylgi Samfylkingar ekki verið minna í eitt ár Hátt í hundrað skjálftar út af Reykjanesi Glæný könnun, óveðrið og sjálfkeyrandi bílar Flugvél fór út af og öllum brautum lokað Fjórðungur Hringvegarins lokaður Drengur skar mann í Strætó Saka stjórnarþingmenn um að vanvirða bændur Skjálftahrina á Reykjaneshrygg Öllu innanlandsflugi aflýst Einn í gæsluvarðhaldi eftir stunguárás í miðborginni Þrjár nýjar rennibrautir á Sauðárkróki í sumar Vegalokanir, snjóflóðahætta og óvissustig Bændurnir í Gunnbjarnarholti hlutu landbúnaðarverðlaunin Eyjagöng sækja í sig veðrið með nýjum hluthöfum Sjá meira
„Við þurfum ekki hjálp frá neinum!“ Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir ráðamenn í bandalagsríkjum Bandaríkjanna í Atlantshafsbandalaginu flesta hafa gert sér ljóst að þeir muni ekki taka þátt í hernaðaraðgerðum gegn klerkastjórninni í Íran. Forsetinn segir þetta ekki koma sér á óvart, þar sem hann hafi lengi talið NATO vera einstefnugötu. Þá segir hann að Bandaríkin hafi ekki þurft hjálp þeirra og þurfi ekki hjálp frá neinum. 17. mars 2026 15:43
Segir Kúbu brátt munu falla Donald Trump Bandaríkjaforseti segir írönsk stjórnvöld hafa verið „geld“ og að hann vilji að ný forrusta landsins komi vel fram við Bandaríkin og Ísrael, jafnvel þó það yrði ekki lýðræðisríki. Þá segir hann Kúbu brátt munu falla. 6. mars 2026 23:31
Ekkert nema hégómi hjá Trump að vilja setja bandaríska fánann á Grænland Erlingur Erlingsson hernaðarsagnfræðingur segir allar yfirlýsingar Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, um Grænland og Venesúela fjarstæðukenndar og forsendur hans líka. Hann segir að frá herfræðilegu sjónarmiði sé í raun einfalt fyrir Bandaríkin að taka Grænland, og þau gætu gert það, ef þau vildu, í dag. Það sé þó alls ekki nauðsynlegt og í raun aðeins hégómi „gamla fasteignabraskarans frá New York“ að vilja það. 7. janúar 2026 09:07