Harmi slegin vegna fjölda tilkynninga af leikskólum Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 24. mars 2026 19:01 Inga Sæland segir ljóst að bregðast þurfi við. Vísir/Einar Barnamálaráðherra segir ljóst að bregðast þurfi við holskeflu mála sem hafa komið upp nýverið þar sem starfsmenn leikskóla eru sakaðir um brot gegn börnum. Ráðherrann segist í áfalli vegna fjöldans en sex mál á jafnmörgum leikskólum hafa komið upp undanfarið ár.
Greint var frá því í dag að meint brot starfsmanns gegn barni á leikskólanum Tröllaborgum á Akureyri hafi verið tilkynnt til lögreglu í fyrra en málið er sjötta málið sem kemur upp undanfarna árið sem tengist meintum brotum starfsmanna gegn leikskólabörnum. Sex mál, sex leikskólar Í gær var greint frá meintu broti starfsmanns gegn barni á Undralandi á Flúðum, um helgina var tilkynnt um meint brot á Krakkakoti á Álftanesi, í síðustu viku frá meintu broti gegn barni á Garðaseli á Akranesi og áður hefur verið tilkynnt um meint brot á Brákarborg í Reykjavík auk þess sem starfsmaður Múlaborgar hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn barni og var grunaður um brot gegn minnst tíu börnum en rannsókn stendur enn yfir í máli þriggja. Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir fjölda slíkra mála verulegt áhyggjuefni. „Maður er bara í áfalli. Þetta er eitthvað það hræðilegasta sem maður getur ímyndað sér, hvernig nokkur er þannig innréttaður að hann geti verið að níðast á litlu barni sem hann á að vera að sinna.“ Ljóst að bregðast þurfi við Ekki hefur náðst í Harald Frey Gíslason formann Félags leikskólakennara vegna málsins, hvorki í dag né í gær þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir. Inga segir alveg ljóst að bregðast þurfi við. „Ég er harmi slegin ef ég á að segja alveg eins og er. Það þarf að gera einhverja stórkostlega bragarbót til þess að reyna að koma í veg fyrir eins og kostur er að svona lagað sé að gerast ítrekað. Þetta er bara hræðilegt, ég er í algjöru áfalli, ég hef bara aldrei séð aðra eins holskeflu slíkra mála á eins skömmum tíma og er að koma inn núna, hvað er að gerast?“
Leikskólar Ofbeldi gegn börnum Grunaður um kynferðisbrot á Múlaborg Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira