Uppselt á alla leiki Íslands en HSÍ verður með hópferðir Ágúst Orri Arnarson skrifar 26. mars 2026 08:03 Stuðningsmenn Íslands gripu margir í tómt þegar þeir ætluðu að kaupa miða á næsta stórmót. vísir / vilhelm Þó það séu tæpir tíu mánuðir þangað til HM í handbolta hefst er orðið uppselt á alla leiki Íslands. Eina leiðin til að fá miða er í gegnum hópferðir sem HSÍ mun standa fyrir.
Enn situr í fersku minni þegar þúsundir Íslendinga sátu svekktir eftir hér á landi með engan miða á úrslitahelgi EM í janúar. Einhverjir eru kannski farnir að hugsa um að skella sér á næsta stórmót, HM í janúar, en þar eru allir miðar í almennri sölu orðnir uppseldir. „Það eru ekki nema nokkrir dagar síðan við fengum að vita hvar við myndum spila. Við komum til með að spila riðilinn í Magdeburg, förum svo yfir til Hannover í milliriðla og þaðan til Köln, ef allt gengur vel. Miðasala hófst fyrir mörgum mánuðum, og eins ótrúlegt og það er þá er búið að selja þúsundir af miðum. Þýska þjóðin virðist hafa keypt ótrúlega mikið magn af miðum án þess að vita hvaða lið eru að fara að spila í höllinni,“ sagði Jón Halldórsson, formaður HSÍ. Aðeins tvö lítil bláber sáust í eldrauðum dönskum berjamó á EM í janúar. vísir / vilhelm HSÍ náði hins vegar að redda nokkur hundruð miðum og verður með hópferðir til Þýskalands. „Nú erum við með þessa miða og þessa dagana erum við bara að setjast niður til að skipuleggja. Þetta verða pakkaferðir sem verða seldar út og við komum til með að birta þær bara á næstu tveimur vikum.“ Á bilinu 400 til 1500 miðar Þannig að eini möguleikinn á því að fá miða, ef þú ert ekki nú þegar búinn að tryggja þá, er að bóka sig í hópferð á vegum HSÍ. En hversu margir miðar verða seldir þar? „Það er ekkert rosalega mikið sko. Við erum með tæplega 400 miða í fyrstu leikina en það er misjafnt miðamagnið eftir leikjum. Þetta er svona frá 400 og upp í 1300, 1400, 1500 miða sem við erum með á þessa leiki… Við erum komin með samtals eitthvað á bilinu 4500-5000 miða sem kosta okkur örugglega tæpar fjörutíu milljónir. Við erum að vinna dag og nótt við að finna þessar 40 milljónir svo við getum keypt miða og selt þá áfram.“ Hversu margir fara svo raunverulega í sölu? Stór hluti af þessu miðum mun síðan fara til fjölskyldna leikmanna, starfsfólks HSÍ og styrktaraðila sambandsins. Hversu margir miðar fara þá raunverulega í sölu? „Það kemur í ljós,“ svaraði Jón. Fjallað var um miðamálin í Sportpakka Sýnar í gærkvöldi. Innslagið má sjá í spilaranum að ofan. Hér fyrir neðan má finna lengri útgáfu af viðtalinu við Jón Halldórsson, formann HSÍ. Klippa: Formaður HSÍ um miðamálin á HM í Þýskalandi
Landslið karla í handbolta HSÍ HM karla í handbolta 2027 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira