Ólína löðrunguð þrisvar á sviðinu Jakob Bjarnar skrifar 26. mars 2026 07:01 Guðni Ágústsson lofar því að Salurinn og Kópavogur allur muni nötra þegar Gissur Páll hefur upp raustu sína. vísir/vilhelm Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra, er nú á fullu við að undirbúa sérstaka Njálusýningu og hann kann að lýsa því en auk hans verða þau Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir rektor og Gissur Páll Gissurarson tenór sem flytja textann. „
Þetta er nú þannig til komið að Njálufélagið var stofnað og við héldum mikla héraðshátíð þar sem við settum allt á svið úr Njálu í sumar, þar riðu 99 hetjur Flosa í skykkjum á glæstum hestum um héraðið á leið til Bergþórshvols að brenna. Þar settum við upp 700 manna sýningu, þar sem Svandís Þóra Einarsdóttir Bollasonar á Hvolsvelli var stóra númerið með landsfrægum leikurum. Mikil sýning, beint úr Njálu. Og svo brenndum við Njál, og Bergþóru, Skarphéðin og Þórð litla inni á Rangárbökkum. Þar voru sjö þúsund manns á menningarnótt.“ Salurinn og Kópavogur allur mun nötra Og Guðni er hvergi nærri af baki dottinn, Njála mun fylgja honum alla tíð og nú er ný Njálusýning. Guðni í fagurblárri skykkju Gunnars á Hlíðarenda.vísir/vilhelm „Nú erum við sigin af stað í áframhaldandi Njáluverkefni, þau verða auðvitað mörg í framtíðinni – vonandi – segjum söguna fram í tali og tónum í Salnum í Kópavogi þar sem Ólína Kerúlf Þorvarðardóttir gengur til liðs við okkur og Gissur Páll Gissurarson söngvarinn mikli. Við flytjum Njálu á tveimur tímum með tilþrifamiklum hætti, perlur Njálu, aðalatriðin; segjum hana á tveimur tímum. Og Gissur Páll brestur í söng við og við og Salurinn og Kópavogur nötrar undir þessum mikla söngvara. Þetta verður tilkomumikil sýning og ógleymanleg. Og ekki er að spyrja að flutningnum. „Ég tala náttúrlega hina fornu rödd Njálumanna og Ólína Kjerúlf kemur beint frá því að hafa verið þula í sjónvarpi, stjórnmálamaður og núna rektor á Bifröst. Gissur er einn af bestu tenórum í Evrópu. Ég trúi því að það verði óskaplega gaman í Salnum föstudags- og laugardagskvöld og ég vil hvetja fólk til að skrá sig sem allra fyrst í Salinn.“ Þessi granni mikli tenór ... Þetta er tilfinningaríkt. „Þetta er hlátur og þetta er grátur og tilfinningaríkar senur sem við flytjum úr Njálu. Menn upplifa söguna allt frá því að Hallgerður Langbrók er ung þar til Gunnar gefur henni kinnhestinn. Gunnar fellur í lýsingu okkar. Njáll er brenndur inni, og Bergþóra og Þórður litli. Þetta er Njála í allri sinni dýrð. Svo er undirleikari Matthildur Anna, sem leikur undir hin stórbrotnu lög Skarphéðins í brennunni. Og mörg mörg fleiri tilkomumikil lög og hann endar á Hamraborginni. Þessi lög, sum eru kórlög sem hann syngur einn, þessi granni mikli tenór. Þetta verður tilkomumikið.“ Ólína leikur Hallgerði, Hildigunni Starkaðardóttur og Bergþóru. Hvernig er þetta til komið að hún sé í sýningunni? „Ólína er með okkur, og Lilja Dögg Alfreðsdóttir sem kemur reyndar ekkert nálægt sýningunni, í stjórn Njálufélagsins og hefur tekið þátt í þessu öllu. Ólína er náttúrlega er doktor í íslenskum bókmenntum, þjóðfræðingur og vel að sér á öllum þessum sviðum. Það hefur verið gott að hafa fyrrverandi menningarmálaráðherra Íslands með okkur í liði, með sína menntun og sína framsögn, til að taka kvenhlutverkin í Njálu.“ Ólína er slegin utan undir í þrígang Þú leikur náttúrlega Gunnar á Hlíðarenda? „Við Gissur Páll flytjum þetta til skiptis. Hann er mikill sagnamaður og við köllumst á söguna frá upphafi til enda, aðalatriðin og tilfinningaríkust. Það mun enginn gleyma þessari sýningu sem á henni verður.“ Kinnhestarnir sem Hallgerði eru gefnir reynast afdrifaríkir.vísir/vilhelm Guðni segir þetta sem sagt frjálslegt og þeir Gissur Páll stökkva til og frá í hlutverkunum. „Stundum er maður Gunnar og stundum er maður Njáll. Og stundum er maður hinir og þessir. Við skiptum með okkur verkum og göngum inn í það að vera Skarphéðinn og Flosi. Þetta gerum við alveg hiklaust. Við erum ekki fastir í einhverju einu hlutverki, við erum að túlka svo margt úr Njálu og svo mörg nöfn koma fyrir í þessari vígasögu.“ En hvor fær að slá Ólínu utan undir? Ert það þú eða Gissur? „Við gefum henni kinnhestinn, hún fær þrjá kinnhesta á sviðinu hún Ólína; Hallgerður var svo harðvítug að við hvern kinnhest var maður hennar felldur hvort sem það var Þorvaldur, Glúmur eða Gunnar á Hlíðarenda. Sá sem er í hlutverki Gunnars gefur henni kinnhest sem hefur meiri afleiðingar en nokkur kinnhestur fyrr eða síðar.“ Guðni þjóðfrægastur Njálusérfræðinga nú um stundir Þetta eru vissulega stórkostlegar bókmenntir, en er einhver meiri Njálusérfræðingur hér á landi en þú? „Jájá, það eru gríðarlega margir sérfræðingar, kennarar og lögfræðingar sem eru spakir í Njálu. Ég hef tekið að mér hlutverk Jóns Böðvarssonar, ég hef verið leiðsögumaður og þá fer ég með söguna einn. Við komum á Bergþórshvol og á Hlíðarenda og etum kjötsúpu. Ég er svona sá sem er frægastur í dag í nafni Jóns Böðvarssonar að segja söguna. Guðni við Heklurætur. Hann kann að lýsa Njálusýningunni sem nú er í undirbúningi.vísir/vilhelm En það er mikið til af Njálusérfræðingum. Hermann Árnason hestamaðurinn mikli hefur náttúrlega riðið um slóðirnar með Íslendingum og útlendingum. Arthúr Björgvin Bollason er náttúrlega frægur Njálumaður og margir fleiri. En ég er auðvitað þjóðfrægastur núna. Menn telja víst að ég hafi verið uppi í Njálu.“ Nú? „Já, sagan segir að það hafi verið að grafa upp á Bergþórsholi og þá kom upp beinagrind af fullorðnum manni. Ég var kallaður til og sagði vitaskuld: Þetta er bara Njáll vinur minn lifandi kominn. Eftir hálfan mánuð komu þeir niður á beinagrind af barni. Og enn var ég kallaður til og sagði þá: Nú, þetta er Njáll þegar hann var drengur. Svona eru nú sögurnar í kringum þetta margar. En við höldum áfram í vor og haust. Ef Guð og Njáll lofa.“
Leikhús Tónlist Kópavogur Mest lesið Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Lífið Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni Lífið „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Lífið „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Lífið Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin Lífið Tuttugu gellur á einu kvöldi Lífið Bonnie Tyler vöknuð úr dái Tónlist Heitustu tískutrendin í sumar Tíska og hönnun Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Lífið Smáhlutirnir frá JYSK gefa heimilinu nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Sjötugar á TikTok og elska fíflaganginn Svaf til fóta eftir fyrstu sambandsslitin „Það reikna allir með að ég sé að nota þetta sem einhvern stökkpall“ Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö Hafþór Júlíus reynir að hafa uppi á manni „Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu“ Tuttugu gellur á einu kvöldi Dorrit á trampólíni 24 Jump Street á leiðinni Dagskráin í Reykjavík á 17. júní verður svona Inga Reynis selur hæð í Hafnarfirði Jakob Frímann stal senunni í hátískuskyrtu Stjörnulífið: Sjóðheit skvísuferð til Ibiza Oliver Tree látinn 32 ára að aldri Gáfu yfir 50 vinninga í beinni útsendingu Krakkatía vikunnar: HM, risaeðlur og naglaklippur Vildi hjálpa öðrum þótt hún vissi að tíminn væri naumur „Það er ástæða fyrir bólgunni“ Óboðni sturtugesturinn sextán sentímetra kónguló Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori Fréttatía vikunnar: NASA, Messi og Mette-Marit Stórslasaðist átján ára eftir ölvaðan ökumann: „Braut öll bein á vinstri hliðinni minni“ Myndaveisla: Veðrið leikur við íbúa höfuðborgarsvæðisins Stærstu rauðu flöggin á stefnumótaforritum Gestir geti fengið innsýn í skapandi samfélag Hafnar.hauss Backstreet Boys frumsýna lag nýrrar Hvolpasveitarmyndar Allt að 200 ára veggjakrot fannst við framkvæmdir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Sjá meira