„Hann er svo klár maður“ - Hagfræðistofnun HÍ á hálum ís Sveinn Atli Gunnarsson skrifar 25. mars 2026 21:30 Á föstudaginn ætlar Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að bjóða til fyrirlestrar um kolefnishlutleysi. Við fyrstu sýn virðist þetta vera eðlileg fræðileg umræða um eitt stærsta hagsmunamál samtímans. En þegar rýnt er í dagskrána blasir við hreinasta fásinna, fyrirlesarinn er Frosti Sigurjónsson, maður sem hefur gert það að nánast fullu starfi á síðustu misserum að dylgja um vísindaleg svik og afbaka grundvallarlögmál eðlisfræðinnar. Bók Frosta, Hitamál, er ekki „innlegg í umræðuna“. Hún er samansafn af löngu marg hröktum rökum sem byggir á sérstaklega valkvæðri gagnaöflun og beinum rangfærslum sem loftslagsfræðingar landsins hafa þegar þurft að eyða dýrmætum tíma í að leiðrétta. Að bjóða honum í ræðustól innan Háskóla Íslands er á pari við að Læknadeild fengi andstæðing bólusetninga til að fjalla um faraldursfræði. „Hann er svo klár maður“ Viðbrögð forsvarsmanna Hagfræðistofnunar við gagnrýni eru rýr. Forstöðumaðurinn hefur látið hafa eftir sér að hann „þekki nú Frosta“ og að hann sé „klár maður“. Með fullri virðingu: Síðan hvenær varð persónulegt mat á „klárheitum“ kunningja æðra vísindalegri rýni og akademískum kröfum háskólasamfélagsins? Hlutverk Háskóla Íslands er ekki að vera það hlutlaus „allir mega vera memm“ vettvangur, þetta er ekki leikskóli. Hlutverk háskóla er að sía úr vitleysuna svo samfélagið geti byggt ákvarðanir sínar á þekkingu frekar en áróðri. Með þessu er Hagfræðistofnun að stunda svokallað „academic laundering“, að þvo orðspor gervivísinda með því að gefa þeim vettvang í sölum háskólans. Þverstæðan í stjórn stofnunarinnar Það sem vekur einnig athygli mína í þessu máli er samsetning stjórnar Hagfræðistofnunar. Þar situr Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði og varaformaður Loftslagsráðs. Loftslagsráð hefur það lögbundna hlutverk að veita stjórnvöldum ráðgjöf um loftslagsmál byggða á vísindum. Auðvitað situr Brynhildur ekki við stjórnvölinn í daglegum rekstri stofnunarinnar, en hún ber engu að síður einhverja ábyrgð sem stjórnarmaður. Maður getur spurt sig þeirrar spurningar hvort það sé boðlegt að varaformaður Loftslagsráðs sitji í stjórn sem veitir manni pallborð sem gerir lítið úr einmitt þeim vísindum sem ráðinu er ætlað að verja? Er þetta það „faglega jafnvægi“ sem við eigum að búast við frá Háskóla Íslands? Ábyrgðin á þessum gjörningi liggur þó fyrst og fremst hjá starfsmönnum Hagfræðistofnunar, þeim Sigurði Jóhannessyni og Kára Kristjánssyni. En það er hlutverk stjórnar að grípa í taumana þegar verkferlar bresta og starfsmenn fara út af sporinu með þeim afleiðingum að trúverðugleiki stofnunarinnar, og háskólans alls, skaðast. Ef stjórn Hagfræðistofnunar telur það ekki sitt hlutverk að tryggja lágmarks vísindalega rýni á þeim boðskap sem þar er fluttur í nafni stofnunarinnar, til hvers er þá stjórnin yfirhöfuð? Ábyrgðin er stofnunarinnar Svarið sem ég fékk frá Hagfræðisstofnun var að fólk gæti bara mætt og „dæmt sjálft“. Þetta eru undanbrögð og hrein og bein fagleg firring. Almenningur á að geta treyst því að þegar stofnun innan HÍ boðar til fundar, sé búið að lágmarki að sía út augljósar rangfærslur, hvað þá beina afneitun á vísindalegri þekkingu. Það er ekki hlutverk áhorfenda í salnum að vinna vinnuna sem starfsfólk háskólans átti að gera; að leggja faglegt mat á heimildagildi fyrirlesara sem fær, með þessu boði, að baða orðspor sitt í ljóma akademíunnar. Ef Hagfræðistofnun telur þetta framlag til „líflegrar umræðu“, þá er stofnunin komin langt út fyrir sitt faglega hlutverk. Vísindi eru ekki lýðræði þar sem allar skoðanir vega jafnt. Sumar skoðanir byggja beinlínis á röngum gögnum, og þær eiga hreinlega ekki heima í ræðustól Háskóla Íslands. Greinarhöfundur er í loftslagshópnum París 1,5 sem berst fyrir því að Íslandi leggi sitt af mörkum til að leysa loftslagsvandann. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveinn Atli Gunnarsson Mest lesið Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Sjá meira
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar