Innlent

Vaktin: Björgunar­sveitir á fullu um land allt

Hólmfríður Gísladóttir, Lovísa Arnardóttir og Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifa
Þessi beið eftir því að komast yfir Reykjanesbrautina í morgun. Opnað hefur verið fyrir umferð um Reykjanesbrautina.
Þessi beið eftir því að komast yfir Reykjanesbrautina í morgun. Opnað hefur verið fyrir umferð um Reykjanesbrautina. Vísir/Vilhelm

Appelsínugular veðurviðvaranir eru í gildi á Suðausturlandi, Vestfjörðum og Miðhálendinu. Fjölda vega hefur verið lokað og er varað við ferðalögum.

Lokað er um Öxnadalsheiði, Mosfellsheiði, Holtavörðuheiði, Steingrímsfjarðarheiði, Dynjandisheiði, Klettsháls, Flateyrarveg, Siglufjarðarveg, Mýrvatnsöræfi, Svínadal og Fróðárheiði.

Veðurstofa Íslands hefur gefið út gular veðurviðvaranir á Norðurland eystra, Austurlandi, og Austfjörðum. Óvissustig er á Austfjörðum vegna snjóflóðahættu.

Hvernig er veðrið hjá þér? Þú getur sent okkur myndir og myndbönd af veðrinu eða fréttaskot á ritstjorn@visir.is.

Fréttastofa Sýnar fylgist með þróun mála í vaktinni hér fyrir neðan. Ef hún birtist ekki er ráð að endurhlaða síðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira
×