Menningarhúsið fer ekki í íbúakosningu Þórarinn Þórarinsson skrifar 26. mars 2026 11:10 Á fundi sveitarstjórnar Skagafjarðar í gær lét Einar Einarsson, forseti sveitarstjórnar, lét til bókar að meirihlutinn undraðist tillöguna um íbúakosninguna sem var síðan felld. Vísir/Vilhelm Einar Einarsson, forseti sveitarstjórnar Skagafjarðar, lét á fundi hennar í gær færa til bókar að það verði „gleðidagur“ þegar starfsemi hefst í fyrirhuguðu menningarhúsi á Sauðárkróki. Meirihlutinn felldi síðan tillögu um íbúakosningu um bygginguna sem Einar segir að verði „glæsileg menningarmiðstöð.“
Tillaga íbúa um að bygging Menningarhússins á Sauðárkróki færi í íbúakosningu, samhliða sveitarstjórnarkosningunum, var felld á fundi sveitarstjórnar í gær.Jóhönnu Ey Harðardóttur, fulltrúa Byggðalista, varð því ekki að ósk sinni en fyrir fundinn sagðist hún í samtali við Vísi vonast til þess að tillagan yrði samþykkt, enda hafði hún sjálf áður flutt sambærilega tillögu sem hlaut sömu örlög.Tillagan var felld með fimm atkvæðum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks en Álfhildur Leifsdóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir, fulltrúar Vg og óháðra, sátu hjá. Álfhildur tók þó undir að rétt væri að leggja stærri og veigameiri ákvarðanir undir íbúa. „Að okkar mati er hins vegar of seint að fara þá leið í þessu tilviki. Atkvæðagreiðsla í vor myndi raska tímalínu verkefnisins verulega og þar með stefna í hættu mótframlagi ríkisins sem er bundið þeirri tímalínu.“Þá hafi tillagan um bygginguna farið í gegnum lögbundið kynningarferli með tilheyrandi ferlum sem eigi meðal annars að tryggja lýðræðislega aðkomu þar sem allir geta sent inn umsagnir. Aðeins ein slík hafi borist um deiliskipulagið frá íbúa sem hafði áhyggjur af skuggavarpi á hús í hans eigu. Aðrar athugasemdir hafi ekki borist frá íbúum Skagafjarðar. Í samtali við Vísi vill Álfhildur einnig minna á að í maí 2022 hafi fulltrúar Vg og óháðra haldið til haga þeirri stefnu sinni að við stærri framkvæmdir á borð við menningarhús sé vilji íbúanna kannaður. Þá lagði hún fram tillögu um að staðsetning og hlutverk fyrirhugaðs menningarhúss yrði sett í íbúakosningu. Þáverandi meirihluti, ásamt Byggðalista, hafi fellt þá tillögu. Einar Einarsson, fulltrúi Framsóknarflokks og forseti sveitarstjórnar, lýsti undrun fulltrúa meirihlutans á tillögunni um íbúakosningu um bygginguna á þessum tímapunkti. Gert sé ráð fyrir að jarðvinna hefjist í apríl eða maí og að fyrirhuguðum framkvæmdum ljúki í lok árs 2027. „Það er því mjög sérstakt að vilja núna fara að láta íbúa kjósa um hvort byggja eigi húsið eða ekki þegar verkið er rétt að fara af stað.“Einar sagði meirihlutafulltrúana hafa trú á að tilkoma hússins muni hafa „mjög jákvæð áhrif á menningarlíf og varðveislu menningararfs í Skagafirði.“ Þá muni fjöllistasalur í húsinu auka mjög og bæta möguleika til sviðslistasýninga og tónleikahalds á Sauðárkróki. „Það verður því gleðidagur þegar þessi glæsilega menningarmiðstöð verður risin og starfsemi hefst í húsinu.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Skagafjörður Menning Mest lesið Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Sjá meira