Hollusta eða blekking? Elísabet Reynisdóttir skrifar 26. mars 2026 11:47 Undanfarið hef ég fengið margar fyrirspurnir um repjuolíu, hvað hún er og af hverju hún er svona vinsæl. Margir hafa einnig spurt hvort hún sé í raun eins holl og oft er haldið fram, þar sem hún er flokkuð sem jurtafita og svo hef ég verið spurð um “af hverju er repjuolía í öllu?” Þetta vakti mig til umhugsunar og ég ákvað að skrifa fræðandi pistil um repjuolíu svo neytendur geti betur skilið hvað hún er, hvað skiptir máli við val á henni, hvað ber að varast og hvaða tegundir geta talist hollari kostur. Við sjáum repjuolíu alls staðar í matvörum sem eru markaðssettar sem „heilsuvörur“, á veitingastöðum, í mötuneytum og seldar til daglegrar notkunar. En það sem lítur út fyrir að vera hollt er ekki alltaf eins og það virðist. Repjuolía hefur lengi verið kynnt sem hrein, hjartavæn og góð til steikingar. Hún er jú jurtaolía, án kólesteróls og rík af svokallaðri „mjúkri“ fitu sem tengd er við hjartaheilsu. Þetta hljómar sannfærandi og er að hluta til rétt. En sagan á bak við olíuna er alls ekki jafn einföld og hún virðist við fyrstu sýn, og ráðleggingar um notkun hennar til steikingar segja meira en margt annað. Mig langar að kafa dýpra í málið ekki til að dæma, heldur til að hjálpa ykkur að taka upplýstari ákvarðanir um hvaða tegund hentar best, og varpa ljósi á hvaða olíur ætti að forðast eða nota með varúð við hitun. Uppruni repjuolíu Repja (Brassica napus L. var. oleifera) er krossblómaplanta, náskyld káli og rófum. Hún hefur verið ræktuð víða um heim og var Kanada lengi stærsti framleiðandi hennar til olíuframleiðslu og sem fóðurjurt. Í dag eru Kína og Indland einnig stórir framleiðendur, ásamt löndum í Evrópu. Talið er að repja sé blendingur grænkáls og rófu. Upphaflega var olían notuð sem lampaolía, en síðar fann hún leið sína inn í matargerð og jafnvel í lífdíselframleiðslu (eldsneyti unnið úr jurtaolíum eða dýrafitu sem getur komið í stað hefðbundinnar dísilolíu). Tvær ólíkar leiðir – tvær ólíkar olíur Það sem skiptir mestu máli er hvernig repjuolían er framleidd. „Flæmski læknirinn og grasafræðingurinn Rembertus Dodonaeus skrifaði í plöntulista árið 1578 að repja hafi verið ræktuð veturinn 1470 sem fóður- og matarkál fátæklinga umhverfis Genf og víðar.“ (bbl.is 24/8 2018). Fræ repju eru rík af olíu og líklegt er að ræktun plöntunnar hafi hafist vegna þess. Kaldpressuð olía er kreist úr fræjum án hita eða efna. Iðnaðarframleidd olía er unnin með háum hita og leysiefnum (oft hexani, sem er litlaust og eldfimt lífrænt leysiefni unnið úr jarðolíu) til að hámarka framleiðslu og geymsluþol. Þegar „hollustan“ verður markaðssetning Margir ruglast þegar rætt er um hvað sé hollt og hvað ekki. Rannsóknir og ráðleggingar fagaðila eiga oft við um ákveðna gerð fitu, en ekki allar útfærslur á framleiðslu hennar. Ég hef rætt um repjuolíu í viðtölum og á námskeiðum og fengið svör á borð við:„En þetta er holl olía – allar rannsóknir segja það!“ Það sem gleymist er að ekki eru allar repjuolíur jafnar. Kaldpressuð og óunnin olía er gjörólík iðnaðarframleiddu útgáfunni sem er mest notuð í daglegri matargerð. Við erum því oft að neyta olíu sem hefur verið unnin með efnum og við háan hita sem er langt frá því að vera í sínu náttúrulega formi. Slík vinnsla getur haft áhrif á gæði olíunnar, sérstaklega ef hennar er neytt í miklu magni. Iðnaðarolían sem við neytum mest af Flestar repjuolíur í verslunum og unnum matvælum eru mikið unnar og fara í gegnum hreinsunarferli, háhita og efnameðferð til að: lengja geymsluþol gera bragðið hlutlaust lækka kostnað Við þetta tapast hluti af náttúrulegum andoxunarefnum og næringarefnum. Þegar olían er síðan hituð aftur, t.d. við steikingu eða djúpsteikingu, getur hún oxast og myndað efni sem geta haft óæskileg áhrif á líkamann. Þar sem stór hluti djúpsteikingarolíu á veitingastöðum hérlendis er repjuolía má sjá hversu villandi getur verið að kalla hana „hjartavæna“. Það er eins og að bera saman ferskt hráefni og mikið unna vöru – vinnslan skiptir sköpum. Kaldpressuð repjuolía – sami uppruni, önnur vara Kaldpressuð og lífræn repjuolía er hins vegar allt önnur vara. Hún er: unnin við lágan hita án efnalausna rík af E-vítamíni og fitusýrum Hún heldur betur náttúrulegu bragði, lit og næringu og hentar best: í salöt yfir mat eftir eldun í kaldar sósur og pestó Hún er hins vegar ekki ætluð til háhita steikingar. Falin í „hollustu“-vörum Repjuolía leynist víða – jafnvel í vörum sem eru markaðssettar sem „hreinar“ eða „heilsusamlegar“: veganvörum „sykurlausum“ snakki og próteinvörum súpum, sósum, kexi og sælgæti Ástæðan er einföld: hún er ódýr, bragðlítil og gefur góða áferð. Hvernig er repjuolía merkt? Repjuolía birtist ekki alltaf undir nafni. Hún getur heitið: Jurtaolía ( vegetable oil ) – oft blanda sem inniheldur repjuolíu Canola oil / canolaolía – sérstök tegund repjuolíu með lágu erucic-sýruinnihaldi Rapeseed oil / repjuolía – algengt heiti erlendis Grænmetisolía – annað orð yfir jurtaolíublöndu Ef ekki er tekið fram að olían sé kaldpressuð eða lífræn er yfirleitt um iðnaðarunna olíu að ræða. Repjurækt á Íslandi – góðar fréttir Á síðustu árum hefur repjurækt aukist á Íslandi, meðal annars á Suður- og Austurlandi. Íslensk framleiðsla, meðal annars innan Matarauðs Íslands, byggir á kaldpressun án efna, þar sem áhersla er á: gæði fram yfir magn lágmarks vinnslu hreina og ferska vöru Útkoman er olía sem heldur næringargildi og endurspeglar það sem repjuolía á að vera í eðli sínu. Niðurstaða Repjuolía getur verið bæði ágætur kostur og síðri kostur það fer eftir vinnslu, gæðum og notkun. Ef þú vilt velja betur: veldu kaldpressaða og lífræna olíu kynntu þér upprunann notaðu olíur rétt – ekki allar henta til hitunar lestu innihaldslýsingar Þetta snýst ekki um að óttast mat, heldur að skilja hann. Svarið við spurningunni er því: já, repjuolía getur verið holl en fyrst og fremst þegar hún er kaldpressuð. Flest mötuneyti og stór hluti matvælaframleiðslu notar hins vegar unnar olíur sem henta síður til daglegrar neyslu. Verum gagnrýnin og spyrjum spurninga, þannig verjum við heilsuna. Þekking og fræðsla skipta sköpum þegar kemur að því að greina á milli þess sem er raunverulega hollt og þess sem aðeins virðist vera það. Höfundur er næringarfræðingur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Neyðin kennir nöktum Íslendingi að spinna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Af hámarkshraða og pylsum Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Sjögren er miklu meira en augn- og munnþurrkur Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Verkin tala – en ekki um okkur Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Trillukarlinn og ESB Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Gerum Ísland betra Finnur Torfi Magnússon skrifar Skoðun Tjakkurinn, ljóstíran og tækifærin Dóra Magnúsdóttir skrifar Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Vísindaferð í Brussel eða umsókn um aðild? Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Arnarnesvegur og varnaðarorð sem voru hunsuð Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Varanlegar undanþágur? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Öryggisvottaðir leikvellir: Úlfur í sauðagæru Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber áfengið heim að dyrum? Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hugsjónir og hagsmunir fara saman Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Fótbolti og þjóðarmorð eiga ekki samleið Guðrún Sif Friðriksdóttir skrifar Skoðun Bikarveiðar í búningi atvinnurekstrar Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Þegar harður andstæðingur ESB-aðildar í Noregi skipti um skoðun Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Undarleg stefna í umræðunni um ESB Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun MBA: Meðvirkni, bómullar- og aumingjavæðing Davíð Bergmann skrifar Skoðun Börn þurfa meira en stærðfræði Aðalheiður Mjöll Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Er málflutningur SJÁ samtakanna marktækur? Birgir Finnsson skrifar Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar Skoðun Hvernig náum við til ykkar? Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Að leggja rækt við tortryggnina Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Milli gjörða og gilda býr vonin. Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Áfengi heim að dyrum? Halla Þorvaldsdóttir skrifar Sjá meira
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun
Skoðun Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Auðlindastýring, aflandsfjármagn og hið asymmetríska stríð um 29. ágúst Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson skrifar
Skoðun Krónan er ekki stríðsminjar – hún er megin ástæðan fyrir hagsæld okkar Eggert Guðmundsson skrifar
Skoðun Gjaldmiðill sem aldrei átti að verða til og þjóðin situr enn uppi með Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Hvernig gat fæðingarþjónustan orðið útundan í stærstu heilbrigðisframkvæmd Íslandssögunnar? Guðrún I. Gunnlaugsdóttir skrifar
Virðum jafnræði fólks og gerum það sem er best fyrir samfélagið í heild Gunnar Axel Axelsson Skoðun
Frá bónda til frumkvöðuls – Hvernig verður framtíð íslensks landbúnaðar? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun