Jóhann Berg hætti við að skrifa undir Sindri Sverrisson skrifar 26. mars 2026 12:01 Jóhann Berg Guðmundsson lék sinn hundraðasta landsleik í nóvember en hér er hann í vináttulandsleik við Englendinga. Getty/Marc Atkins Jóhann Berg Guðmundsson hefur verið sterklega orðaður við heimkomu í Breiðablik en ekkert verður af henni, í bili að minnsta kosti.
Frá þessu greinir Fótbolti.net í dag og hefur eftir heimildum að Jóhann hafi verið búinn að ná samkomulagi við Breiðablik um kaup og kjör en á endanum hafnað því að skrifa undir samning. Ekki er því ljóst hvað tekur við hjá þessum 35 ára gamla landsliðsmanni en hann er laus og liðugur eftir að hafa fengið samningi sínum við Al Dhafra í Sameinuðu arabísku furstadæmunum rift. Jóhann var ekki valinn í landsliðshóp Íslands sem nú er staddur í Kanada, til að spila vináttulandsleiki við heimamenn á laugardag og við Haítí í fram. „Það eru tímamót hjá honum, hvað gera skal. Ég tjáði honum það að hann gæti hjálpað okkur í haust. Maður hefur ekki áhrif á það sem hann og fjölskylda hans gera. Það væri innspýting fyrir Bestu deildina að sjá hann kljást við Gylfa í fyrsta leik í Bestu deildinni,“ sagði Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari en Víkingur og Breiðablik mætast í fyrstu umferð Bestu deildarinnar 10. apríl. Jóhann lék sinn hundraðasta A-landsleik í nóvember, í undankeppni HM, og var svo einnig í B-landsliðshópnum sem fór til Mexíkó í síðasta mánuði og spilaði vináttulandsleik við heimamenn. Hann hefur verið atvinnumaður í fótbolta frá því að hann skrifaði undir samning við hollenska félagið AZ í ársbyrjun 2009. Jóhann lék svo með Charlton og Burnley á Englandi, þar á meðal sjö leiktíðir í ensku úrvalsdeildinni, áður en hann fór til Al Orobah í Sádi-Arabíu í ágúst 2024 og svo þaðan til Al Dhafra ári síðar.
Besta deild karla Breiðablik Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira