Kaleo efnir til tónleikaveislu á Þingvöllum í júní Hólmfríður Gísladóttir skrifar 27. mars 2026 07:17 Jökull segir tónleikana í Vaglaskógi hafa verið algjöran draum og nú stendur til að endurtaka leikinn á Þingvöllum. Vísir/Viktor Freyr „Þegar Coldplay báðu um leyfi þá var svarið nei og þegar U2 báðu um leyfi þá var svarið nei. Þegar Kaleo biðja um leyfi með Jökul í forsvari; þá er svarið auðmjúkt já.“
Þetta segir Jakob Frímann Magnússon, tónlistarmaður og tónleikahaldari, um fyrirhugaða tónleika hljómsveitarinnar Kaleo á Þingvöllum 20. júní næstkomandi. Hann og Jökull Júlíusson, söngvari Kaleo, ræddu við Ívar Guðmundsson um tónleikana, sem þeir segja verða „heimsviðburð“ fyrir alla fjölskylduna. Tónleikarnir í Vaglaskógi þóttu heppast einstaklega vel.Vísir/Viktor Freyr „Við vorum auðvitað búnir að undirbúa okkur vel,“ segir Jakob aðspurður um tónleika Kaleo í Vaglaskógi, þar sem veðurguðirnir og hljómsveitin léku við hvurn sinn fingur. „Og ef menn kunna til verka og eru með samhent lið og flotta músík þá á allt að ganga upp. Og með það í reynslubankanum stígum við næsta skref núna.“ Jökull hefur áður sagt að tónleikar sveitarinnar í Vaglaskógi hafi verið algjör draumur. Þingvellir séu næstir, undir yfirskriftinni Bergmál. „Við búum svo vel að því að búa á þessu fallega landi; það eru margir fallegir staðir,“ segir Jökull. „En já, þetta var auðvitað bara draumi líkast í fyrra og gekk vonum framar. Og nú er það bara næsti draumur. Það eru Þingvellir.“ Að sögn Jökuls og Jakob verður dagskráin á þessum helgasta stað landsins „lífræn“, það er að segja að þar munu stíga á stokk með Kaleo „menn og konur sem semja eigin lög“, eins og Jakob orðar það. Þeirra á meðal má nefna Hjálma, GDRN og Mugison. Verður þetta heimsviðburður? „Þetta er klárlega heimsviðburður fyrir mig,“ svarar Jökull. „En jú jú, við erum auðvitað bara að vonast til þess að fá sem flesta Íslendinga. Þetta er auðvitað eins og ég segi á helgasta stað landsins og okkur langar bara alveg eins og síðasta sumar að búa til minningar og líka að fólk sé að koma með börnin. Þetta var náttúrulega mjög fjölskylduvænt og ótrúlega svona góður andi líka fannst mér bara í mannskapnum í fyrra. Fólk að tjalda og svo framvegis. En það kæmi mér einmitt ekki á óvart ef einhver fjöldi erlendis frá myndi mæta líka. Þannig að vissulega viljum við meina að þetta sé heimsviðburður.“ Hljómsveitin kemur fram ásamt einvala liði tónlistarmanna.Vísir/Viktor Freyr Hvað miðasölu varðar fer hún fram á keytoiceland.is, þar sem menn verða að skrá sig til að eiga sem mesta möguleika á því að fá miða. Miðarnir á tónleikana í Vaglaskógi seldust upp á mínútu í bæði skiptin sem þeir voru settir á sölu. Tvö svið verða á svæðinu; Valhallarsvið fyrir fjölskyldur og yngri gesti frá klukkan 11 til 18 og aðalsvið þar sem dagskrá mun standa yfir frá klukkan 14 til dagsloka. Þá má heyra á Jökli að það sé aldrei að vita nema von sé á nýrri tónlist frá Kaleo eftir þrjú og hálft ár á tónleikaferðalagi og stutt hlé. „Við erum að setja allt í gang núna og rútan fer að rúlla af stað aftur,“ segir hann. Viðtalið var spilað í Bítinu í morgun.
Tónlist Þingvellir Kaleo Tónleikar Kaleo á Þingvöllum 2026 Mest lesið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Bíó og sjónvarp Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Bíó og sjónvarp Ætlaði að skríða í þrjá daga en horfir fram á sex Lífið Fleiri fréttir Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Sjá meira