Ágúst tekur við brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Eyjum Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 27. mars 2026 11:45 Ágúst Þór Brynjarsson sendi frá sér lagið Á leiðinni árið 2024. Jóndís Inga Hinriksdóttir Tónlistarmaðurinn Ágúst Þór Brynjarsson mun sjá um brekkusönginn á Þjóðhátíð í Eyjum í sumar. Hann tekur við af Magnúsi Kjartani sem stýrði söngnum undanfarin ár.
Svipt var hulunni af því hver tekur við einum stærsta viðburði ársins í Brennslunni á FM957 í morgun. Hægt er að hlusta í spilaranum hér fyrir neðan en viðtalið við Ágúst hefst eftir eina klukkustund og 49 mínútur. Ágúst er Húsvíkingur og kynntust landsmenn honum er hann tók þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins árið 2025 þar sem hann söng lagið Eins og þú. Hann byrjaði að gefa út tónlist 21 árs og hætti í fótbolta til að sinna draumnum. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Ágúst fetar í fótspor Magnúsar Kjartans. Þegar Magnús Kjartan glímdi við veikindi sumarið 2024 tók Ágúst við sem aðalsöngvari Stuðlabandsins og ferðaðist með hljómsveitinni út um allt land. „Ég hef alltaf verið með það hugarfar að það er enginn að fara hringja í mig að fyrra bragði. Því er ég duglegur að hringja, senda skilaboð, kynna mig og koma mér á framfæri. Ég hef allavega aldrei tapað á því að hringja eða senda póst, versta sem gerist er að ég enda á sama stað og ég var á fyrir símtalið,“ sagði Ágúst í viðtali á Vísi sumarið 2024. Ágúst greinir sjálfur frá fréttunum með færslu á Facebook þar sem hann segist stoltur og þakklátur fyrir að fá að taka við brekkusöngnum. „Stór og mikil hefð með langa sögu, og það er ótrúleg tilfinning að fá að verða hluti af henni. Ég hlakka til að fá að syngja og spila með ykkur öllum í Herjólfsdal, á sunnudagskvöldi í ágústmánuði, á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum,“ segir hann.
Þjóðhátíð í Eyjum Tónlist Vestmannaeyjar Tengdar fréttir Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartan Eyjólfsson aðalsöngvari Stuðlabandsins mun ekki stýra brekkusöngnum í Eyjum í ár líkt og undanfarin ár. Hann segist ekki hafa fundið fyrir neistanum sem til þarf á síðasta ári og því hafa ákveðið að kalla þetta gott í Eyjum, þó hann sé alls ekki hættur í tónlistinni. 23. febrúar 2026 21:27 Mest lesið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Lífið Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Tónlist Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti Lífið Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Lífið „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Patrick Stewart látinn Lífið Missti röddina á ögurstundu Lífið Fleiri fréttir Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Sjáðu gjörbreyttan Kaffivagn úti á Granda Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Elliði Vignisson er eins og offitu-aktívisti „Ég ætla allavega að deyja á Íslandi“ Sjálfuglaður ráðherra og allt í boði mysu Sjóðheitar í ísköldu teiti „Eins og ein sál í tveimur líkömum“ Tryggðu sér sigurinn á ótrúlegan hátt Kakkalakkarnir í Ísrael tóku vel á móti Dorrit Extreme Chill í febrúar í stað september Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Noah Wyle sá kynþokkafyllsti í heimi Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Hvað veistu um… pitsur? Star Trek-leikarinn Walter Koenig látinn Chris Brown á skilorði Ný skjöl: Var túlkur Kennedys á mála hjá KGB? Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Tom Brady og Candice Swanepoel slá sér upp Theodór Elmar og Móheiður ástfangin Stjörnulífið: Laumugifting í helli Stukku fram af kletti ofan í Goðafoss Er hægt að treysta aftur eftir framhjáhald? Sjá meira
Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartan Eyjólfsson aðalsöngvari Stuðlabandsins mun ekki stýra brekkusöngnum í Eyjum í ár líkt og undanfarin ár. Hann segist ekki hafa fundið fyrir neistanum sem til þarf á síðasta ári og því hafa ákveðið að kalla þetta gott í Eyjum, þó hann sé alls ekki hættur í tónlistinni. 23. febrúar 2026 21:27