Hildur Guðnadóttir hátíðarlistamaður 2026 Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar 30. mars 2026 15:02 Lára Sóley listrænn stjórnandi Listahátíðar 2026 kynnti spennandi dagskrá hátíðarinnar í Iðnó. Eygló Gísla Það var líf og fjör í menningarrýminu Iðnó síðastliðinn föstudag þegar Listahátíð í Reykjavík kynnti dagskrá sína. Hátíðin fer fram í lok maí fram til miðs júní mánaðar og er dagskráin sannarlega fjölbreytt.
Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts lék nokkur lög og gestir fengu forsmekk af bragði og ilmi hátíðarinnar ásamt því að listrænn stjórnandi, Lára Sóley Jóhannsdóttir, kynnti dagskrána. Listahátíð verður sett í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, þann 30. maí og stendur til 14. júní. „Listahátíð í Reykjavík var fyrst haldin árið 1970 og í sumar fer hún fram í 35. sinn. Umfjöllunarefni Listahátíðar í ár eru tengsl og hvernig við tengjumst hvert öðru í gegnum listsköpun, samveru og skynjun. Á hátíðinni koma fram um 1300 flytjendur á öllum aldri, víða að úr heiminum, úr öllum hverfum borgarinnar og landshlutum. Hildur Guðnadóttir er hátíðarlistamaður og verða fjórir ólíkir viðburðir á dagskrá tengdir henni,“ segir í fréttatilkynningu. Á opnunarhátíð í Hafnarhúsinu fá gestir að heyra og sjá brot frá nokkrum viðburðum hátíðarinnar og samhliða opnar Listasafn Reykjavíkur sýningu Karin Sander. Í kjölfarið sameinast allar skólahljómsveitir Reykjavíkurborgar í frumflutningi á tónverki eftir Samúel Jón Samúelsson. „Meðal annarra viðburða má nefna flutning Sinfóníuhljómsveitar Íslands, kóra og einsöngvara á áttundu sinfóníu Mahlers sem aldrei hefur verið flutt hérlendis, listsýningu úkraínska listahópsins Open Group í Nýlistasafninu, sýningar Bjarkar Guðmundsdóttur og James Merry í Listasafni Íslands, fjölskyldudagskrá bæði í Elliðaárdal og Hörpu, Rót - nýja brúðuleiksýningu sem sýnd verður í Þjóðleikhúsinu og Ilmtónleika Fischersund í Austurbæjarbíói. Koma fyrstu kvennatrommuhljómsveitar Rúanda, Ingoma Nshya, er einn af hápunktum hátíðarinnar en þær sýna glænýja sýningu á stóra sviði Borgarleikhússins, gleðisprengju með trommuleik, dansi og söng. Hópurinn var stofnaður 2004 til að leita leiða til að endurheimta styrk, reisn og von í kjölfar þjóðarmorðsins í landinu. Þær stigu byltingarkennt skref, brutu aldagamlar hefðir sem meinuðu konum að svo mikið sem snerta trommur.“ Khalid Abdalla verður með áhrifaríkan einleik í Tjarnarbíói en hann hefur leikið í kvikmyndum á borð við United 93, The Kite Runner og þáttaröðinni The Crown. Flautuseptettinn viibra frumflytur tónverk Bergrúnar Snæbjörnsdóttur í sviðsetningu Margrétar Bjarnadóttur í Norðurljósum þann 8. júní og verkið LOVE LOVE eftir Arnbjörgu Maríu Danielsen verður frumflutt 9. júní í Silfurbergi. Á lokahelgi Listahátíðar verða tveir viðburðir í Eldborg, annars vegar John Grant ásamt hljómsveit 13. júní og hinsvegar sópransöngkonan Angel Blue þann 14. júní. Hér má nálgast nánari upplýsingar um hátíðina og hér má sjá vel valdar myndir frá föstudeginum: Hallveig Kristín Eiríksdóttir og Birnir Jón Sigurðsson, forsprakkar tóma rýmisins og þátttakendur í Klúbbnum.Eygló Gísla Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi hátíðarinnar og Helga Matthildur Viðarsdóttir, listakona hjá Listvinnzlunni.Eygló Gísla Skvísur á spjalli.Eygló Gísla Hannah Rós Sigurðardóttir Tobin, þátttakandi í Klúbbi Listahátíðar.Eygló Gísla Kara Hergilsdóttir fyrrum kynningarstjóri hátíðarinnar og Þura Stína Kristleifsdóttir kynningar- og markaðsstjóri hjá Listahátíð.Eygló Gísla Þórunn Sigurðardóttir fyrrum listrænn stjórnandi Listahátíðar og Lára Sóley Jóhannsdóttir núverandi listrænn stjórnandi.Eygló Gísla Christina Agueda í litríkum bol.Eygló Gísla Cristina Agueda, Rebbecca Hidalgo og Eva Yggdrasil – Partur af listrænu teymi Move with Pride sem er opnunarpartý Klúbbs Listahátíðar.Eygló Gísla Luis Lucas.Eygló Gísla Margt um manninn.Eygló Gísla Andrea Vilhjálmsdóttir, dagskrár- og verkefnastjóri Klúbbs Listahátíðar.Eygló Gísla Glæsilegir blástursleikarar stóðu sig með prýði.Eygló Gísla Lára Sóley kynnir dagskránna og Ástbjörg Rut Jónsdóttir táknmálstúlkar.Eygló Gísla Glæsilegt opnunaratriði.Eygló Gísla Hönnunarstofan STRIK stúdíó sem hannaði einkenni hátíðarinnar: Jakob Hermannsson, Gabríel Benedikt Bachmann, Flóki Sigurjónsson, Snorri Eldjárn Snorrason, María Gudjohnsen, Viktor Weisshappel, Auður Albertsdóttir.Eygló Gísla Tania Zarak Quintana hjá marvöðu og Yuliana Palacios úr dagskrárráði Listahátíðar.Eygló Gísla Steinunn Knúts Önnudóttir, Vigdís Jakobsdóttir fyrrum listrænn stjórnandi Listahátíðar og Hrefna Lind Lárusdóttir.Eygló Gísla Kara Hergils glæsileg.Eygló Gísla Markús safnstjóri Listasafns Reykjavíkur í góðum félagsskap.Eygló Gísla Gleði!Eygló Gísla Lára Sóley.Eygló Gísla Flottar dömur.Eygló Gísla Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samskipta og menningar hjá Landsbankanum, Daddi Diskó og Hjalti Harðarson markaðsstjóri Landsbankans.. Eygló Gísla Öflugt teymi Listahátíðarinnar.Eygló Gísla Guðbrandur Benediktsson safnstjóri Borgarsögusafns og Klara Þórhallsdóttir frá safnaráði.Eygló Gísla Stuð!Eygló Gísla Þura Stína skvísa.Eygló Gísla Ikram Zubaydi, Íris Stefanía Skúladóttir og Saadia Ennaji skipuleggjendur Arabískrar yfirtöku í Klúbbnum.Eygló Gísla Berglind María Tómasdóttir, flautuleikari í viibru og Tryggvi M. Baldvinsson úr stjórn Listahátíðar.Eygló Gísla
Listahátíð í Reykjavík Menning Tónleikar á Íslandi Tónlist Myndlist Dans Hildur Guðnadóttir Mest lesið Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Lífið Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Lífið Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Lífið Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Lífið Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig Lífið Samdi lagið meðan hún gekk í gegnum erfiða tíma Tónlist Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Fleiri fréttir Sumir sáttir en flestir keppast við að tæta Michael í sig „Ég er búinn að eyðileggja keppnina“ Drakk óvart áfengi í fyrsta sinn og það undir stýri Mætti hættulegasta dýri Afríku og hélt að það væri „einhver belja“ Ísland: „Lauslátasta nunnan í klaustrinu“ Sigga Ósk er Ungfrú Ísland Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sjá meira